Fréttablaðið - 14.04.2008, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 14.04.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Í dag er mánudagurinn 14. apríl, 105. dagur ársins. 5.58 13.28 20.59 5.36 13.13 20.51 Leyfið bönkunum að koma til mín og bannið þeim það ekki! Að vandlega athuguðu máli og haf- andi ráðgast við fjölskyldu mína hef ég ákveðið að bjóðast til að losa þjóðina á einu bretti við vandamálið sem hangir yfir okkur öllum. Bankavandamálið. Vaxta- vandamálið. Seðlabankavanda- málið. Allir bankar sem erfiði og þunga eru hlaðnir geta komið til mín og ég mun kaupa þá og stað- greiða og eigendur þeirra geta gengið til móts við nýja tíma glað- ir og áhyggjulausir. Staðgreiðslu- verð fyrir stykkið getur numið allt að einni evru, sem er stabíll og góður gjaldmiðll og ekki síðri en íslenska krónan. ÉG LÝSI MIG hér með reiðubúinn að kaupa alla íslensku bankana, jafnvel Seðlabankann líka þrátt fyrir að ástandið á þeim bæ sé eins og allir vita. Fyrir hvern banka er ég reiðubúinn að greiða út í hönd allt að eina evru. Í kaupunum fylgja allar skuldir bankanna sem löglega er til stofnað og allar eign- ir þeirra, þar með talin leynihólf, leynireikningar hérlendis og erlendis, listaverkasöfn, hluta- bréfasöfn og annað fé fast og laust. ÞAR SEM ég hef ekki áhuga á að sóa nema sem allra minnstum hluta af lífi mínu sem kapítalisti er fyrirætlun mín sú að gefa íslensku þjóðinni aftur það sem var með rangindum, svindli, ref- skap og pólitískri spillingu frá henni tekið. Af fyrri reynslu treysti ég ekki stjórnmálamönn- um til að sjá um að einkavæða bankana að nýju og því ætla ég sjálfur að sjá um einkavæðinguna. Það ætla ég að gera með því að senda hverju mannsbarni sem á lögheimili sitt á Íslandi eitt hluta- bréf í hverjum banka og verða hlutirnir jafnmargir og íbúatala landsins gefur tilefni til. ÞETTA TILBOÐ stendur til mið- nættis í nótt. Þeir bankar sem ekki taka þessu tilboði skulu ekki voga sér að fara fram á að skattpening- ar mínir verði nýttir til að bjarga þeim úr þeim ógöngum sem „alþjóðlegur skortur á lánsfjár- magni“ hefur leitt þá í – ekki „græðgi og skeytingarleysi um almannaheill“ eins og margir halda. Seðlabankanum ætla ég að pakka saman í vasatölvu sem pípir þegar breyta þarf vöxtunum. Svörtuloftum verður breytt í rann- sóknarstofnun fyrir stórmennsku- brjálæði. Leyfið bönkunum að koma til mín
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.