Tíminn - 19.01.1982, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 19. janúar 1982
. •! ' v . 1 H VH 1
flokksstarfid
Miðstjórnarfundur SUF
Miðstjórnarfundur SUF verður haldinn i Hótel Heklu
sunnudaginn 31. jan. n.k. og hefst hann kl. 10 f.h. Dagskrá
fundarins verður nánar auglýst siðar.
Ef miðstjórnarmenn sjá sér ekki fært að mæta þá ber að
tilkynna það skrifstofu Framsóknarflokksins hið fyrsta
(simi 24480)
Stjórnin
Sjávarútvegsráðstefna
SUF efnir til sjávarútvegsráðstefnu i Festi, Grindavik
laugardaginn 30. janúar 1982, og hefsthún kl. 10.00 f.h.
Dagskrá auglýst siðar.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla i prófkjöri Framsóknar-
flokksins til borgarstjórnarkosningar i Reykjavik á kom-
andi vori, hefst mánudaginn 18. janúar á skrifstofu Fram-
sóknarflokksins að Rauðarárstig 18, og stendur yfir til 22.
janúar. Kosningin fer fram frákl. 18—19 þessadaga.
Kjörnefndin
Þorrablót
Þorrablót framsóknarfélaganna i Reykjavik verður
haldið i Hótel Heklu laugardaginn 30. janúar n.k.
Miðapantanir á skrifstofu Framsóknarflokksins (simi
24480) Nánar auglýst siðar.
Framsóknarfélögin
Kosningasjóður
Tekið er á móti framlögum i kosningasjóð framsóknar-
flokksins i Reykjavik alla virk^ daga á skrifstofunni að
Rauðarárstig 18.
Stjórn fulltrúaráðsins
Framsóknarfólk i Reykjavik ath.
Inntökubeiðnum i flokksfélögin i Reykjavik er veitt mót-
taka á skrifstofu Framsóknarflokksins Rauðarárstig 18
frá kl. 9-19 virka daga og laugardaginn 16. jan. frá kl. 13-
16.
Stjórn fulltrúaráðsins
Prófkjör i Njarðvik
Framsóknarfélagið i Njarðvik hefur ákveðið að taka þátt i
sameiginlegu prófkjöri með Alþýðubandalagi, Alþýðu-
flokknum og Sjálfstæðisflokknum vegna bæjarstjórnar-
kosninga i vor. Prófkjörið fer fram 12. og 13. febr. n.k. Þar
sem skila þarf framboðslista til sameiginlegrar kjör-
stjórnar fyrir 22. þ.m. er nauðsynlegt að þeir sem hyggj-
ast bjóða sig fram láti undirritaða vita eigi siðar en kl. 18
fimmtudaginn 21. janúar n.k. Allar nánari upplýsingar
veita undirritaðir:
Óskar Þórmundsson i sima 3917
Ingibjörg Danivalsdóttir i sima 1226
Sigurður Sigurðsson i sima 2255,
Gunnar Ólafsson í sima 2284
Óskar Grimsson i sima 6012.
Fulltrúaráð framsóknarfélaganna i
Reykjavik
heldur fund með frambjóðendum flokksins til prófkjörs
fyrir væntanlegar borgarstjórnarkosningar i Reykjavik á
komandi vori.
Fundurinn verður haldinn 21. jan. n.k. og hefst nann kl.
20.30 að Hótel Heklu Rauðarárstig 18
Stjórn fulltrúaraðsins
Kópavogur — Þorrablót
Hiðvinsæla þorrablót framsóknarfélaganna verður haldið
i Manhattan laugardaginn 23. janúar n.k. kl. 19 stundvis-
lega.
Miðapantanir fyrir miðvikudaginn 20. janúar. Upplýsing-
ar um miða hjá Guðbjörgu i sima 40435, Katrinu i sima
40576 og Vilhjálmi i sima 41190.
Framsóknarfélögin
Framsóknarmenn Selfossi
Framsóknarfélag Selfoss auglýsir eftir framboðum til
prófkjörs vegna bæjarstjórnarkosninga á Selfossi 1982
Framboði skal skila til formanns félagsins Sigurdórs
Karlssonar Rauðholti 9.
Framboðsfrestur rennur út 31. janúar 1982
Stjórnin
Frá Happdrætti Framsóknarfiokksins
Útdráttur hefur farið fram i hausthappdrættinu og eru
vinningsnúmerin innsigluð hjá borgarfógeta á meðan
fullnaðarskil eru að berast.
Dregið var úr öllum útsendum miðum. Samkvæmt giró-
seðlum má framvisa greiðslum enn um sinn i næsta póst-
húsi eða peningastofnun og eru flokksmenn vinsamlegast
beðnir um að gera skil.
23
eftir helgina
Lestunar-
áætlun
GOOLE:
Arnarfell...........25/1.
Arnarfell........... 8/2.
Arnarfell...........22/2.
Arnarfell........... 8/3.
Rotterdam:
Arnarfell..........27/1.
Arnarfell..........10/2.
Arnarfell..........24/2.
Arnarfell..........10/3.
ANTWERPEN:
Arnarfell..........28/1.
Arnarfell..........11/2.
Arnarfell..........24/2.
HAMBORG:
Helgafell..........25/1.
Jökuifell.......... 5/2.
Ilelgafell.........12/2.
Helgafell.......... 3/3.
LARVIK:
Hvassafell..........1/2.
Iivassafell........15/2.
Hvassafcll......... 1/3.
GAUTABORG:
Hvassafell ........20/1.
Hvassafell......... 2/2.
Hvassafell.........16/2.
Hvassafell......... 2/3.
Kaumannahöfn:
Hvassafell.........21/1.
Hvassafell......... 3/2.
Hvassafell.........17/2.
Hvassafell......... 3/3.
SVENDBORG:
Hvassafell.........22/1.
Helgafell..........27/1.
Hvassafell......... 4/2.
Helgafell..........15/2.
Hvassafell.........18/2.
Iivassafell........ 4/3.
HELSINKI/HANGÖ:
Ilisarfell..........5/2.
..skip”.............3/3.
CLOUCESTER/ Mass.:
Skaftafell........ 8/2.
Skaftafell..........9/3.
HALIFAX, Canada:
Skaftafell.........10/2.
Skafta fell........12/3.
öKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
if
ý' Ij
mnmímW x. 5
Aðfundnu
nýju núlli
■ Aðalviðburðir helgar-
innar, voru sjóm aunasam n-
ingarnir. og nú glcðjast menn
yfir að búið cr að finna rctt
núll handa þeim er starfa í
s já varútvcgi.
Veðrið á Suð-Vesturhorninu
var einnig búið að finna sitt
núll. Núll gráðu hita, eða núll
gráðu frost, og á Suðurlág-
lendinu var logn á jörðu. Sel-
vogsbanki blasti við af
Kambabrún, fullur af sild eða
hinum mælda sildarstofni,
sem nú telst vera um 300
þúsund tonn, eða hefur
tifaldast, eftir að rússneski
flotinn þurrkaði upp alla sild
norður og austur af landinu
með hundruðum veiðiskipa,
móðurskipa og landinn lét vist
heldur ekki sitt eftir liggja,
þótt minna hafi nú munað um
þáveiðien hina rússneksu.Nú
eru brátt liðin tiu ár, siðan
sildin fór á sitt núll.
Enn utar og austar, undir
gráleitu yfirborði sjávarins,
synti svo vertiðarþorskurinn
með þungum svip, út af fisk-
verðinu það var einkennilegt
að sjá tii hafsins, að ekkert
skip var á sjó, um hávertiðina
þrátt fyrir góðar gæftir.
Verðurliklega að leita langt
aftur i' aldir til að finna svo al-
gjört núll i útgerð um þetta
leyti árs á Selvogsbanka, sem
hefur haft lokað, eins og gjald-
eyrisdeildir bankanna i marga
daga. A morgun verður þetta
allt breytt og nýr áfangi i
bjargráðum verður hafinn.
og þjóðar-
Borðsiðir
kakan
Þótt flestir séu nú ánægðir
yfir þvi, aö enn skuli vort núll
hafa fundist, get ég á hinn
bóginn ekki varist sömu
hugsun, i hvert skipti sem
leitað er að núlli i þessu landi.
t hugann kemur viss kafli i
bók sem fröken Helga
Sigurðardóttir skólastjóri
skrifaði, en hún er sá rithöf-
undur, islenskur, sem
iðnaðstur hefur verið við að
rita matreiðslubækur og um
siði við borð. Þegar þjóðar-
kökunni er skipt, virðast
okkur borðsiðir forystumanna
vera nokkuð frjálsir, að ekki
sé nú meira sagt, og ef til vill
ættu þeir að taka upp rétta
borðsiði fröken Helgu, en hún
segir:
„Komið ætið hrein og snyrti-
lega klædd til máltíða. Mætið
stundvislega. Setjist ekki á
undan foreldrum ykkar eða
húsbændum. Sitjið rétt, hæfi-
lega langt frá borðinuog hafið
fæturna við stólinn. Leggið
handleggina ekki á borðið.
Takið ekki of mikið af fatinu
og ekki eingöngu það, sem
ykkur þykir gott, eða beztu
bitana. Skiljið ekkieftir. Takið
hóflega af eftirmat og öðrum
réttum, sem ekki eru ætlaðir
til þess að borða sig metta af.
Jafnvel þó að yður falli ekki sá
réttur, sem fram er borinn,
eða þér þekkið hann ekki, þd
takiðafhonum og borðið. Það
er ekki háttvisi að segja, að
yður langi ekki i þetta.
Matizt eins hljóðlega og
hægt er og tyggið með lok-
uðum munni. Sötrið ekki.
Súpan er borðuð úr hlið
skeiðarinnar,en grauturinn úr
henni beinni. Ekki má blása á
matinn til þess að kæla hann
og ekki taka diskinn upp með
hendinni. Haldið ekki of neð-
arlega á skeið, hnif eða gaffli.
Látið hnifinn aldrei upp i yður,
borðið með gafflinum. Bein og
annað skuluð þér taka út úr
yður meö gafflinum og láta á
diskbarminn. Talið ekki meö
mat uppi i yður. Teygið yður
ekki yfir borðið né sessunaut
yðar, biðjið heldurum að rétta
yður það, sem þér óskið eftir.
Við borðið á ekki að að ræða
um ógeðfellda hluti. Börn
mega ekki gripa fram i fyrir
fullorðnum við borðið fremur
en endranær, eða aðrir fyrir
húsbændum. Sérhver verður
að gefa þvi gætur, að sessu-
naut hans skorti ekkert, og
sérstaka athygli verður að
viðhafa, þegar gestir eru.
Það er ekki kurteisi að
stanga úr tönnum, þegar aðrir
sjá til. Ekkier háttvisi að lesa
við borðið. ”
Ekki veit ég hvort þessi bók
ertil i' Karphúsinu, en ef til vill
ætti hún að vera þar og á
öðrum stöðum, þar sem menn
leita að sinu núlli.
Jónas Guðm undsson
Jónas Guðmundsson,
rithöfundur skrifar: