Tíminn - 05.02.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 05.02.1982, Qupperneq 1
„Helgarpakkirm” fylgir Tímanum í dag — — ----- -*= 8 —■*—^——----------—— ---------------- ---------- -- - TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAÐ! Föstudagur 5. febrúar 1982 27. tölublað—66. árg. ■ Feðgarnir Sigurjön Þorbergsson og Þorbergur Pétur nutu þess vei að fá hressingu á lögreglustöðinni i Arbæ klukkan tvö i nótt eftir hrakningarnar. Timamynd: Róbert EKKERT HRÆDDUR EN SVOLÍTIÐ KALT — sagði Þorbergur Pétur klukkan tvö í nótt, en þá höfðu hann og faðir hans staðið í sex klukkustunda hrakningum ■ „Við ætluðum að komast i þetta hesthús, sem var svona 50—100 metra frá þeim stað sem biliinn stöðvaðist. Ég þurfti að vaða upp að mitti til að komast að húsinu og siðan að klifra inn um glugga og okkur var orðið ansi kalt þegar við loks náðum að hús- inu” sagði Sigurjón Þorbergsson i samtali við Timann um tvö Ieytið i nótt, en Sigurjón var þá staddur ásamt syni sinum Þorbergi Pétri á lögreglustöðinni i Árbæ, þar sem þeir fengu hressingu eftir giftusamlega björgun. „Þegar við vorum komnir inn i húsið grófum við okkur niður i heyið og Þorbergur Pétur sofn- aði. Ég varð var við að björgun- armennirnir voru aö lýsa á hús- gaflinn og kallaði til þeirra, en þeir hafa örugglega ekki heyrt i mér þvi þeir fóru framhjá. Siðan þegar þeir komu til baka urðu þeir okkar varir. Ég hélt fyrst þegar þeir fóru framhjá að þeir væru að bjarga einhverjum öör- um þarna rétt hjá. Við vorum á leiðinni heim kl. 19.30 og mér fannst tilvalið að fara þennan veg. Ég sá að bill hafði farið þarna á undan mér svo mér fannst mér vera óhætt að fara þarna. Vatnið var alveg yfir veginn og ég álpaðist út af og festi bilinn og ákvað ég þá að reyna að komast inn i hesthúsið”. „Ég var ekkert hræddur en mér var orðið svolitið kalt” sagði Þor- bergur Pétur, sem drakk sjóðandi heitt kaffi á lögreglustöðinni i Árbæ og virtist óðum að hressast eftir hrakningarnar -röp./—p.m. MIKIL LEIT ■ Það var um klukkan 19.40 i gærkvöldi sem lögreglan i Reykjavik fékk boð um að tveir menn væru i vanda staddir á Lada-jeppa við efstu trébrúna i Elliðaánum. Þegar lögreglan kom á staðinn um átta leytið voru mennirnir farnir úr bílnum, sem virtist hafa farið dálltið út af veg- inum, en 30—40 sentimetra djúp- ur vatnsflaumur gekk þá yfir veginn á þessu svæði. Talið var að það heföi verið tiltölu lega vandræðalitið fyrir mennina að komast á þurrt land þannig að ekkert frekar var aðhafst á þessu stigi málsins. Klukkan að ganga tiu hringdi svo eiginkona mannsins til lög- reglunnar i þvi skyni að spyrjast fyrir um feðgana, en þá hefðu þeir að öllu eðlilegu átt að vera komnir heim fyrir löngu. Fjöl- skyldan býr á Vatnsendabletti. Þegar hér var komið sögu var ljóst að feðgarnir höfðu lent i vandræðum og auk lögreglunnar hófu nú Björgunarsveitin Ingólfur og Hjálparsveit skáta i Reykjavik viðamikla leit. Gengið var i brekkurnar bæði Árbæjar- og Breiðholtsmegin við Elliðaárnar auk þess sem leitað var i sumar- bústöðum i nágrenni Kópavogs. Það var svo laust fyrir klukkan hálf tvö sem kafari fann þá feðga i bragga nokkrum, um 50—100 metra frá þeim stað þar sem bill þeirra hafði stöðvast. —P.M./-röp. vfirlit: Jr * ■■ ** *■* Kvik- mynda- hátíðin Hvað kostar mjóikin? Björgunarmenn búa sig I leitarleiðangur. Timamynd: Sverrir prófin — fols. 27

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.