Tíminn - 05.02.1982, Qupperneq 5
Föstudagur 5. febrúar 1982.
þingfréttir
Þjóðskjala-
safn fær allt
Safnahúsið
til afnota
■ „Hvað er að gerast i mál-
um Þjóðskjalasafns Islands?
Hver hafa orðið viðbrögð
menntamálaráðuneytis og
ráðherra að fengnum niður-
stöðum og tillögum skjala-
vörslunefndar, sem ráðuneyt-
iðskipaði i okt. 1980 til að gera
tillögur um vörslu og grisjun
embættisgagna er Þjóðskjala-
safnið á samkvæmt gildandi
lögum að veita viðtöku?
Má vænta þess að hreyfing
komist á þessi mál á nýbyrj-
uðu ári, sem er 100. afmælisár
Þjóðskjalasafns íslands?”
Þessar spurningar lagði
Sigurlaug Bjarnadóttir fyrir
menntamálaráðherra, og gat
þess i leiðinni að geymslurými
safnsins væri alls óviðunandi,
skjöl eru geymd á mörgum
stöðum og fámennt starfslið
hefur enga aðstöðu til að halda
safninu i þvi horfi sem til er
ætlast.
Fyrirspyrjandi sagði brýna
nauðsyn að endurskoða á-
kvæði um hvaða skjöl eigi aö
varðveita og hverjum að
henda. Þau kynstur af
pappirsflóði sem safninu
berast væri ekki allt þess eðlis
að neina þýðingu hefði að
varðveita það. í þvi sambandi
benti Sigurlaug á gögn frá
dómstólum um afsagða vixla
og fleira af þvi tagi. Það hefði
enga sögulega eða
menningarlega þýðingu að
varðveita þetta allt saman en
geymsla gagnanna kemur i
veg fyrir að hægt sé að varð-
veita það sem mikilvægara sé
með sómasamlegum hætti.
Þjóðskjalasafnið þarf á 25
þúsund hillumetrum að halda
til að sómasamlega sé aö þvi
búið hvað geymslurými snert-
ir. Til samanburðar benti
Sigurlaugá að Landsbókasafn
íslands hefði yfir 15 þús. hillu-
metrum að ráða.
Ingvar Gislason mennta-
málaráðherra sagði að mikið
skýrsluflóð dyndi yfir Þjóö-
skjalasafn og væri naumast
hægt að varðveita allt sem
þangað bærist, en erfitt væri
að segja fyrir um hvað á að
varðveita og hverju að henda.
Væri nauðsyn á að koma safn-
inu i nútimahorf og bæta úr
þeim þrengslum sem það býr
nú við. Ákveðið er að fá
erlendan sérfræðing i þessum
málum til ráðgjafar um mál
Þjóðskjalasafnsins, og
islenska sendiráðið i Kaup-
mannahöfn hefur nú milli-
göngu um að fá tiltekinn sér-
fræðing til starfans.
Fyrirhugað er að Lands-
bókasafn flytji i Þjóðarbók-
hlöðuna þegar hún verður
fullbyggð. Sagði menntamála-
Ingvar Gislason.
■ Sigurlaug Bjarnadóttir.
ráðherra að mikil áhersla
væri lögð á þá framkvæmd og
vonaðist hann til að byggingin
yrði fullgerð eftir 4 ár. Þjóö-
sl jalasafn og Landsbókasafn
eru nú til húsa i Safnahúsinu
og hefur siðarnefnda safnið
2/3 byggingarinnar til afnota.
Ráðgert er að Þjóðskjalasafn-
ið fái allt húsið þegar Lands-
bókasafn flytur og með ný-
tiskulegri geymsluaðferðum
en nú tiðkast ætti það að veröa
fullnægjandi.
Guðrún Helgadóttir lagði á-
hersluá að setja þyrfti ný lög
um varöveislu skjala.
Sigurlaug þakkaði mennta-
málaráðherra fyrir greið
svör, og sagði gleðilegt að á
alþingi væri gefinn svolitill
timi til að fjalla um
menningarmál og sögu
þjóðarinnar, en öll umræða
þar væri að koðna niður i si-
felldum umræðum um efna-
hagsmál og visitöluleik.
Oó
Þjódhagsstofnun spáir minni verðbólgu
en Verslunarráð
„UM 40%
TIL
— segir Ólafur
■ „Ég hef litið um þessa spá
þeirra að segja. En miðað viö þá
hækkun sem við höfunt áætiað að
verði á framfærsluvisitölunni við
útreikning nú i febrúar þá fáum
við um eða yfir 40% hækkun frá
upphafi til loka ársins út úr okkar
reikningum”, svaraði óiafur
Daviðsson, forstöðumaöur Þjóð-
hagsstofnunar er Tintinn bar
undir hann 51% verðbóiguspá
FRAUPP-
LOKA ÁRS”
Davíðsson. forstjóri
Verslunarráðs islands, sem sagt
var frá i Tlmanum i gær.
Ólafur sagði þá gengið út frá
svipuðum forsendum og gert er i
spá Verslunarráösins, þ.e. að
engar grunnkaupshækkanir verði
á árinu, viðskiptakjör komi inn i
og auknar niðurgreiðslur sam-
kvæmt yfirlýsingu rikisstjórnar-
innar. Mestan mun sagði hann
koma fram á útreikningi Þjóö-
hagsstofnunar og spá verslunar-
ráðsins varðandi siðustu hækkun
ársins, en þá spáir Verslunarráð-
ið 13% hækkun, eins og fram
hefur komið.
Hækkun framfærsluvisitöiu frá
upphafi til ioka ársins 1981 sagði
Ólafur áætiaða um 42%. En ná-
kvæmar tölur liggi þó ekki fyrir
fyrr en hækkunin nú i febrúar
hcfur veriö reiknuð út. —HEI
„Notum ekki skrúfur,
nagla, bolta eða tappa”
— segir Johnny Sörensen, húsgagnaarkitekt
■ Tveir danskir húsgagnaarki-
tektar, Rud Thygesen og Johnny
Sörensen, opna sýningu á hönnun
sinni að Kjarvalsstöðum,
vestursal, i dag klukkan 14.
Blaðamaður Timans hitti annan
þeirra Johnny Sörensen að máli
að Kjarvalsstöðum i gær, og þá
kom fram i máli hans að sýning
þessi hefur farið viða um heim
m.a. til Bandarikjanna, Japan,
Bretlands og Sviss.
— Hvað er það sem er sérstakt
við þessa sýningu?
„Danskur húsgagnaiðnaður
hefurá undanförnum árum staðið
með miklum blóma, þrátt fyrir
allar þær þrengingar sem annars
eru i Danmörku. Húsgagna-
iðnaður okkar byggi á langri hefð
sem á undanförnum árum hefur
mjög verið þróuð. Við t.d. höfum
sérhæft okkur i að hanna létt ein-
föld og sterk húsgögn, við notum
ekki skrúfur, nagla, bolta eða
tappa, heldur reynum að hanna
húsgögnin þannig að hlutarnir
beri hver annan. Áður en við
sendum húsgögnin á markað eru
þau vandlega próf'uð. Þau þurfa
að standast margskonar þolraun-
ir. Við hölum einnig sérhæft
okkur i smiði barnahúsgagna,”
sagði Johnny.
A sýningunni má einnig finna
ljós sem eru hönnuð af þeim
félögum auk ýmissa smáhluta og
verkfæra. —Sjó.
■ llönnun þeirra Rud Thygesen og Johnny Sörensen miðar aö þvi að
húsgögnin falli vel aö likama fólks. Timamynd: GE.
Verkamannabústaðir
í J?0\)Lrin\)íLr Suðursandsbraut 30, 105
# JWyhJUVUS, Reykjavík. Simi 81240
Umsóknir
Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik óskar eftir umsóknum um
kaup á 176 tveggja til fimm herbergja ibúðum, sem eru i byggingu við
Eiðsgranda i Reykjavik.
Ennfremur er óskað eftir umsóknum um eldri ibúðir, sem koma til
endursölu siðari hluta árs 1982.
Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara ibúða gilda lög nr.
51/1980.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30,
og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar. Skrifstofan er
opin mánudaga - föstudaga kl. 9 -12 og 13 -16.
Umsóknum skal skila eigi siðar en 27. febrúar n.k.
Óafgreiddar umsóknir frá nóv. - des. 1981 verða einnig taldar gildar
um þessar ibúðir, nema umsækjendur tilkynni um annað.
Stjórn verkamannabúst. i R.vik.