Fréttablaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 20
[ ]Hjólhýsaferð um Evrópu er tilbreyting frá hótelgistingum. Takið Norrænu frá Seyð-isfirði til Danmerkur og keyrið í suðurátt. Fátt er eins yndisfrítt og unaðs- blítt og nýfætt lamb. Fæst nútímabörn komast í snertingu við vorundur fjárhúsanna en um hvítasunnuhelgina gefst kostur á þátttöku sauðburðar í grænum sveitum Skagafjarðar. „Þetta er hugmynd sem ég hef lengi alið með sjálfri mér og komst loks í framkvæmd núna,“ segir Ingibjörg Klara Helgadóttir, húsfreyja á Syðri-Hofdölum í austanverðum Skagafirði, sem í samvinnu við Hótel Varmahlíð býður upp á sauð- burð og sveitalíf um hvítasunnu- helgina. „Mér finnst borgarbúa vanta aðgang að hefðbundnum sveita- störfum og daglegu lífi bænda. Börn hafa yndi af dýrum og hreint ævintýri að komast í fjárhús þar sem lömb eru að fæðast, fylgjast með bóndafjölskyldu að störfum og fá að taka þátt í sveitaverkunum,“ segir Ingibjörg Klara sem heldur stórt fjárbú með eiginmanni sínum Atla Traustasyni og þremur börn- um þeirra hjóna, en Atli er fjórði ættliður sinnar ættar sem býr á Syðri-Hofdölum. „Við búum hér á tvíbýli með tengdaforeldrum mínum. Þau eru með fjörutíu mjólkandi kýr en sum- arið 1996 tókum við hjónin við fjár- stofni þeirra og erum nú með 700 vetrarfóðraðar ær. Sauðburður er nú í hámarki og búist er við 1.100 lömbum, en þegar eru fædd 450 lömb,“ segir Ingibjörg Klara, en til viðmiðunar má geta þess að sauð- burði lauk á Syðri-Hofdölum þann 24. maí í fyrra. „Sauðburður er alveg sérstök upplifun og sveitalífið í heild sinni dásamlegt. Á bænum eru einnig geitur, kanínur, nautgripir, hross, hundar og kettir, og því nóg að snú- ast í vorverkunum,“ segir Ingibjörg Klara alsæl í fjárhúsinu þar sem mjóróma jarm heyrist frá nýfæddri gimbur. „Í helgarpakkanum er innifalin sveitaheimsókn í tvo daga, gisting með morgunverði í þrjár nætur á Hótel Varmahlíð, matur alla helgina og frítt í sundlaugina í Varmahlíð. Við verðum með grjónagraut og slátur eftir sauðburð í hádeginu á laugardaginn, kaffi og kleinur í fjár- húsunum þar sem börnin fá nýfædd lömb upp í fangið og bjóðum gestum að kíkja inn í hefðbundnar mjaltir hér heima, sem og róbótamjaltir í fjósi Ingimars Jónssonar á Flugu- mýri, en þar er notuð nýjasta tækni við mjaltir,“ segir Ingibjörg Klara sem fengið hefur góðar viðtökur við langþráðum draumi. „Ég held áfram næstu árin ef vel tekst til. Við bænd- ur viljum endilega leyfa sem flest- um að njóta töfra íslenskra sveita.“ Nánari upplýsingar og bókanir í síma 453 8170 eða á svanhild@hotel- varmahlid.is. thordis@frettabladid.is Kraftaverk í fjárhúsinu Skagfirsk hamingja í miðjum sauðburði; nýfædd og spriklandi lömb í faðmi hjón- anna Ingibjargar Klöru Helgadóttur og Atla Traustasonar ásamt börnum þeirra, Anítu Ýr, Trausta Helga og Friðriki Andra. MYND/ÍSAK ÓLI TRAUSTASON KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna. Geymið auglýsinguna. www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905 Leiðsögunám Leiðsögunám er spennandi eins árs kvöld- nám sem veitir nemendum þjálfun í leiðsögn og haldgóða þekkingu á svæðum landsins, náttúru, sögu og menningu. Kennt er mánudags- til miðvikudagskvölds, auk vettvangsferða um helgar. Umsækjendur skulu vera 21 árs, með stúdentspróf eða sambærilega menntun ásamt því að hafa gott vald á einu erlendu tungumáli. Tungu- málakunnátta er þó ekki nauðsynleg fyrir kjörsviðið „Leiðsögn með Íslendinga“. Afþreyingarleiðsögn Afþreyingarleiðsögumenn kynnast eðli og framboði afþreyingar á Íslandi með sérstakri áherslu á leiðsögn í hvata- og ævintýraferðum. Almenn leiðsögn Almennir leiðsögumenn eru þjálfaðir til skipulagðra ferða um landið í hópferða- bifreiðum. Gönguleiðsögn Gönguleiðsögumenn fá kennslu og þjálfun í að fara með ferðamenn í lengri eða styttri gönguferðir. Leiðsögn með Íslendinga Leiðsögn með Íslendinga er ný námsleið við skólann. Á því kjörsviði er áherslan á menningar- og sögutengda leiðsögn. Eftirfarandi námsleiðir eru í boði:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.