Fréttablaðið - 07.05.2008, Side 48
24 7. maí 2008 MIÐVIKUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
12
16
7
WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 6 - 8 - 10
MADE OF HONOUR kl. 8 - 10
FORGETTING SARA MARSHALL kl. 6 12
WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 5.45 - 8 - 10.15
WHAT HAPPENS IN VEGAS LÚXUS kl. 5.45 - 8 - 10.15
IRON MAN kl. 5.20 - 8 - 10.40
MADE OF HONOUR kl. 5.45 - 8 - 10.15
STREET KINGS kl. 8 - 10.30
SUPERHERO MOVIE kl. 6
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
16
12
7
WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 6 - 8.20 - 10.30
MADE OF HONOUR kl. 5.45 - 8 - 10.15
STREET KINGS kl. 5.30 - 8 - 10.30
21 kl. 8 - 10.30
BRÚÐGUMINN kl. 6 ÍSLENSKUR TEXTI
5%
SÍMI 551 9000
16
16
16
7
REDACTED kl.6 - 8 - 10
MADE OF HONOUR kl.6 - 8.20 - 10.35
THE RUINS kl. 8 - 10
TROPA DE ELITE kl.5.30 - 8 -10.20 ENSKUR T
BRÚÐGUMINN kl. 6 ENSKUR TEXTI
SÍMI 530 1919
“EIN BESTA GAMANMYND ÁRSINS”
- V.J.V., TOPP5.IS / FBL
,,HUGLJÚF OG SKEMMTILEG"
VJV - TOPP5.IS/FB
TILBOÐSVERÐ
GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR
MERKTAR MEÐ RAUÐU
Barátta kynjanna er hafin.
Búðu þig undir... stríð!
Cameron Diaz og Ashton Kutcher
í frábærri gamanmynd!
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
IRON MAN kl. 8 - 10:30 12
SUPERHERO MOVIE kl. 8 L
P2 kl. 10 16
IRON MAN kl. 8 - 10:30 12
FORGETTING SARAH... kl. 8 12
21 kl. 10:30 12
IRON MAN kl. 8 - 10:30 12
OVER HER DEAD BODY kl. 8 7
THE RUINS kl. 10 16
DIGITAL
DIGITAL
DIGITAL
IRON MAN kl. 5:30D - 8D - 10:40D 12
IRON MAN kl. 5:30 - 8 - 10:40 VIP
MAID OF HONOR kl. 5:40 - 8 - 10:20 L
DRILLBIT TAYLOR kl. 5:40 10
IN THE VALLEY OF ELAH kl. 8 - 10:40 16
FORGETTING SARAH... kl. 8 - 10:20 12
SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:40 L
FOOL´S GOLD kl. 5:40 7
UNDRAHUNDURINN M/- ÍSL TALkl. 5:40 L
IRON MAN kl. 6D - 9D - 10D 12
OVER HER DEAD BODY kl. 5:50 - 8 7
P2 kl. 10:10 16
STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D 10
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
- bara lúxus
Sími: 553 2075
WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 5.50, 8 og 10.10 L
IRON MAN kl. 5.30, 8 og 10.30 12
FORGETTING SARAH MARSHALL kl. 8 og 10.15 12
SPIDERWICK CHRONICLES kl. 6 7
1/2
SV MBL
T.V. - kvikmyndir.is
“Ein besta gamanmynd ársins”
- V.J.V., Topp5.is / FBL
- V.J.V.
Topp5.is / FBL
Útgáfufyrirtækið Grandmothers Records efnir til
USB-tónleika á Organ á föstudagskvöld í tilefni þess
að allar plötur þess eru nú fáanlegar í fullum
stafrænum gæðum á síðunni Grapewire.net.
Plöturnar eru fimm með hljómsveitunum Sofandi,
Graveslime og Skátum.
Hægt verður að kaupa allar plöturnar í stafrænu
formi á staðnum og hlaða þeim m.a. niður á USB-
lykil og iPod. Allir sem mæta á tónleikana geta
einnig fengið fimm lög frá Grandmothers Records
ókeypis beint inn á USB-lykil á staðnum, eða fengið
lykilorð til að hlaða þeim niður seinna. Á meðal
þeirra sem koma fram á tónleikunum verða Kira
Kira, Skátar, Klive og Clap for Alaska. Partíið hefst
klukkan 21.00.
USB-lyklar á tónleikum
SKÁTAR Hljómsveitin Skátar spilar á tónleikum Grand-
mothers Records á föstudagskvöld.
Óskar Hrafn Þorvaldsson á
Vísi segir upplýsingar um
laun Sigrúnar Stefánsdóttur
og Þórhalls Gunnarssonar
munu liggja fyrir. Spurn-
ingin sé bara hvenær. Vísir
vann áfangasigur í vikunni
í því stríði að fá fram upp-
lýsingar um kjör dagskrár-
stjóranna.
„Ég fagna þessari niðurstöðu og
bíð nú spenntur að sjá til hvaða
bragða þeir grípa næst,“ segir
Óskar Hrafn Þorvaldsson, rit-
stjóri Vísis.
Úrskurðarnefnd um upplýs-
ingamál vísaði frá beiðni þeirra
Sigrúnar Stefánsdóttur og Þór-
halls Gunnarssonar dagskrár-
stjóra hjá RÚV ohf. um að nefndin
taki á ný fyrir synjun Ríkisút-
varpsins um birtingu ráðninga-
samninga þeirra. Þetta er að verða
löng saga því það var í september
sem Óskar fór fram á upplýsingar
um launin en Páll Magnússon
útvarpsstjóri hefur harðneitað að
upplýsa um kjörin.
Þórhallur segist aðspurður ekki
hafa nennt að setja sig inn í þessa
niðurstöðu úrskurðarnefndar og
vísaði á lögmann sinn Hróbjart
Jónatansson.
„Jú, eins og málið horfir við
núna virðist sem Útvarpinu sé
skylt að veita þennan aðgang. Ég
vil hugsa okkar næsta leik og
skoða þetta ofan í kjölinn,“ segir
Hróbjartur sem staddur er í
Madríd í námsleyfi. Hann segir
einu leiðina til að hindra að upp-
lýsingarnar verði gerðar opinber-
ar vera lögbann og nú sé verið að
skoða hvort það sé framkvæman-
legt. „Þessi niðurstaða er óásætt-
anleg af ýmsum ástæðum sem of
langt mál væri að fara út í hér.“ Í
þessum nýjasta úrskurði er sagt
að Þórhallur og Sigrún séu ekki
aðilar málsins en það þykir Hró-
bjarti skjóta skökku við. „Sérstak-
lega þegar fyrir liggur dómur
Hæstaréttar að einstaklingar eigi
rétt á að bera slíka úrskurði undir
dómstóla en teljast samt ekki aðil-
ar. Aðildarhugtak í stjórnsýslu-
rétti er víðtækt. Og þessi niður-
staða kemur á óvart,“ segir
Hróbjartur.
Sigrún Stefánsdóttir segist líta
svo á að laun sín séu einkamál, en
hún hefur ekki hugmynd um
hvernig þetta mál velkist og fer
úr því sem komið er. „En ég get
róað þig með því að um leið og
álagningaseðlar verða lagðir fram
geta allir komist að því hvað við
erum með í laun, þannig að það er
ekki langt í það. Og þá verður
þetta ekkert leyndarmál lengur.“
Óskar, sem er öllu kátari en þau
Þórhallur, Sigrún og Hróbjartur,
bendir hins vegar á að álagningar-
seðlar veiti ekki upplýsingar um
launakjör nema að takmörkuðu
leyti. Hann telur sig hafa unnið
þessa orrustu og stríðið með.
Hann skilur ekki hvers vegna
RÚV-arar þumbist við að veita
þessar upplýsingar.
„Þetta mun koma fram. Spurn-
ingin er bara hvenær. Og óskiljan-
legt hvers vegna þau vilja eyða
tíma okkar og sínum í að þrjóskast
við með undanbrögðum. Ég er orð-
inn leiður á þessu máli en dettur
þeim í hug í eina mínútu að ég
hætti bara?“ spyr Óskar. „Ef við
fáum ekki aðgang að þessum upp-
lýsingum fyrir klukkan tíu í fyrra-
málið [í dag] verður lögð fram
aðfararbeiðni.“ jakob@frettabladid.is
Þrengist um launaleyndina
ÞÓRHALLUR GUNNARSSON Vísar á
lögmann sinn sem segir niðurstöðu
úrskurðarnefndar óásættanlega.
ÓSKAR HRAFN Óskiljanlegt hvers vegna þau vilja eyða tíma í að þrjóskast við að
veita upplýsingarnar.
Þrjár mest seldu bækurnar á
Íslandi í dag eru ævintýrin um
heiðursfólkið Dísu ljósálf, Alfinn
álfakóng og dverginn Rauðgranda.
Bækurnar, sem eru eftir Hollend-
inginn Gerrit T. Rotman, komu
fyrst út á Íslandi í kringum 1930
og urðu strax vinsælar. Nú eru
bækurnar nýkomnar út í sjöundu
útgáfu og rjúka úr búðunum.
„Hluti af þessari miklu sölu
núna er að bækurnar kosta innan
við fimm hundruð kall stykkið.
Fólk kippir þeim umhugsunar-
laust með sér,“ segir Sigþrúður
Gunnarsdóttir hjá Máli og Menn-
ingu, sem gefur bækurnar út.
„Bækurnar hafa svo sem alltaf
selst vel, enda eiga þær vísan
stað í hugum Íslendinga og hafa
verið lesnar fyrir margar kyn-
slóðir.“
Sigþrúður segist hafa „gúglað“
bækurnar en gat hvergi séð að
þær væru í útgáfu annars staðar
en hér. „Það er eins og við höfum
ættleitt þessar bækur og að þær
hafi fengið ríkisborgararétt hér.
Þær eru ekki einu sinni fáanlegar
í Hollandi, landi höfundarins.“
Gerrit T. Rotman lést árið 1943,
slyppur og snauður og líklega án
þess að vita neitt um vinsældir
sínar á Íslandi. Ættingjar hans
njóta ekki heldur íslensku vin-
sældanna því bækurnar eru
komnar úr höfundarrétti.
- glh
Dísa ljósálfur á toppnum
SÍVINSÆLL LJÓSÁLFUR Dísa er á toppi
vinsældalistans.
LÖGBANN NÆSTI LEIKUR? Hróbjartur
Jónatansson segir það nú verða skoðað
hvort lögbann sé framkvæmanlegt.