Fréttablaðið - 20.05.2008, Page 22
● lh hestar 20. MAÍ 2008 ÞRIÐJUDAGUR2
Fram undan er enn eitt keppnisárið, sennilega það fjölskrúðugasta til þessa. Þegar þessar línur eru festar á blað er nýlokið stærsta íþróttaviðburði ársins, fyrir utan Landsmót, Reykjavíkur móti
Fáks. Mótið var það stærsta til þessa, um sex hundruð skráningar, og
stóð í fimm daga. Framkvæmd og skipulag var gott og Fáksmönnum til
mikils sóma.
Það segir sig sjálft að það er ekki einfalt að skipuleggja og halda
slíkan íþróttaviðburð með sjálfboðavinnu einni saman. Þetta segir okkur
að innan hestamannahreyfingarinnar er ennþá til fólk sem er tilbúið að
leggja fram vinnu án þess að önnur greiðsla komi fyrir en ánægjan af
vel unnu verki. Hverju íþróttafélagi er nauðsynlegt að eiga slíka krafta
innan sinna raða til þess að starfið verði lifandi, ánægjulegt og gefandi
fyrir félagsmenn.
Landsmót hestamanna eru haldin annað hvert ár. Kostnaður er ærinn
og hefur reksturinn til þessa verið í járnum. Launakostnaður fer vax-
andi með hverju árinu og stefnir í að aukast enn. Á sama tíma hefur
sjálfboðavinna á Landsmótum dregist saman. Áður fyrr voru vinnulaun
aðeins brot af rekstrinum.
En er þetta svona alls staðar? Ef horft er til heimsmeistaramótanna,
þá byggja þau afkomu sína á ómældri sjálfboðavinnu félagsmanna gest-
gjafalandsins og annarra sem áhuga hafa á íslenska hestinum. Ein-
hverra hluta vegna hefur okkur ekki tekist að skapa þann anda í tengsl-
um við Landsmótin okkar.
Ekki ætla ég að vanþakka það óeigingjarna starf sem fjölmargir
hestaáhugamenn hafa innt af hendi á undanförnum Landsmótum. Það
væri ósanngjarnt. En ég vil hvetja alla þá, sem enn þá hafa gaman af
að taka þátt í félagsstarfi – án þess að full laun komi
fyrir – að hafa samband við þá sem stjórna starfs-
mannamálum á Landsmóti og bjóða fram krafta
sína. Og njóta svo vel unninna verka að loknu vel
heppnuðu móti. Lifið heil!
ÁGÆTU HESTAMENN
– GLEÐILEGT SUMAR
Einn skemmtilegasti útreiðar-
túr ársins er sleppitúrinn á
vorin. Fyrsta skrefið út í frelsi
sumarsins. Því miður eru reið-
vegir í nágrenni Reykjavíkur
ekki alltaf upp á sitt besta á
þessum árstíma.
Nokkrir hestamenn hafa haft sam-
band við LH-Hesta og skora á for-
menn og stjórnir hestamanna-
félaganna, og LH, að beita sér
fyrir því að helstu reiðvegir frá
höfuðborgarsvæðinu, austur fyrir
fjall og á Þingvelli, verði lagfærðir
áður en sleppitúrar hefjast. Hall-
dór Halldórsson, formaður reið-
veganefndar LH, segir að þessi
umræða sé stöðugt í gangi. Reynt
sé að halda reiðvegunum við eins
vel og efni og ástæður leyfi.
NÝ REIÐLEIÐ Í BURÐARLIÐNUM
„Hestamannafélögin á suðvestur-
svæðinu veittu nýverið 2,5 millj-
ónum króna í endurbætur á Skógar-
hólaleið,“ segir Halldór. „Á síðasta
ári var unnið í henni fyrir tvær
milljónir króna. Það hefur ekkert
verið gert í reiðleiðinni meðfram
Suðurlandsvegi undanfarin ár. En
unnið er í því í samstarfi við Orku-
veituna að færa þá reiðleið inn á
Mosfellsheiði, það er að segja frá
Hólmsheiði og að Kolviðarhóli.“
Því má bæta við að reiðvegafé
samkvæmt samgönguáætlun 2008
er 62 milljónir króna. Af þeim út-
hlutar LH fimmtíu milljónum.
Mótframlög sveitarfélaga og ann-
arra er um 55 milljónir króna. Um-
sóknir frá hestamannafélögunum
eru hins vegar upp á 290 milljónir
króna, þannig að það er nokkuð
ljóst að eftirspurn eftir fjármagni
er meira en framboðið.
Framboð reiðvegafjár
minna en eftirspurn
Norðurlandamót í hestaíþróttum
verður haldið dagana 4. til 10.
ágúst í Seljord í Noregi. Ekki er
búið að velja knapa í landslið Ís-
lands. Áhugasamir geta sótt um.
Seljord er í Telemark í
fallegum dal þar sem aðstæður
eru góðar og keppnissvæðið
mjög skemmtilegt. Þar var
haldið heimsmeistaramót árið
1997. Einar Öder Magnússon
verður liðsstjóri landsliðsins og
sér hann um að velja keppendur.
Keppt verður í öllum hefðbundn-
um greinum hestaíþrótta í aldurs-
flokkunum 13 til 15 ára (15 ára
á árinu), 16 til 21 árs (21 árs á
árinu), og fullorðinsflokki (22
ára og eldri).
Þeir sem hafa áhuga á að keppa
fyrir Íslands hönd á NM2008 eru
vinsamlegast beðnir um að senda
inn umsókn. Í umsókninni þarf að
koma fram: Nafn, heimilisfang,
sími, aldur og netfang. Einnig
þarf að koma fram keppnis-
reynsla og árangur. Gott er ef
knapar geta útvegað sér hest, en
að öðrum kosti verður aðstoðað
við það. Umsóknum þarf að skila
inn til LH fyrir 20. maí, bréflega,
með tölvupósti á lhsolla@isi.is
eða á fax 514-4031. Nánari upp-
lýsingar í síma 514-4030.
Knapar óskast á
Norðurlandamót 2008
Norski landsliðsknapinn Stian Pedersen
á Jarli frá Miðkrika. MYND/JENS EINARSSON
Nítjánda Landsmót hestamanna
verður haldið á Vindheima melum
í Skagafirði 28. júní til 4. júlí
2010. Samningur þar að lútandi
var undirritaður 2. maí síðast-
liðinn.
Samningurinn markar tímamót
að því leyti að LH greiðir enga
leigu fyrir móts svæðið, eins og
jafnan hefur verið. Hefur leigan
oftast verið um tuttugu pró-
sent af heildarinnkomu. Leiga til
Rangár bakka ehf. vegna LM2008
á Gaddstaðaflötum verður tíu
prósent af innkomu. Haraldur
Þórarinsson, formaður LH, segir
að þetta sé í takt við fyrirkomu-
lag Landsmóta UMFÍ. Þar sjái
ríki og sveitarfélög alfarið um að
byggja upp mótssvæðin. Móts-
haldarinn greiði enga leigu. Flest
sveitarfélög sjái sér akk í því að
fá til sín svo stóra viðburði.
„Landsmót hestamanna er
íþrótta- og menningarviðburður,
sambærilegur við Landsmót
UMFÍ. Ég lít því svo á að hesta-
menn eigi að sitja við sama borð.
Leiga fyrir mótssvæðin og lög-
gæslukostnaður hefur sligað
Landsmótin. Það hefur sjaldan
tekist að reka þau réttum megin
við núllið. Við höfum rætt þessi
mál við ríkið og sveitarfélögin og
fengið jákvæðar undirtektir. Á
þeim forsendum er þessi samn-
ingur við hestamannafélögin
og sveitarfélögin í Skagafirði
gerður,“ segir Haraldur.
Landsmót á tímamótum
Samningur handsalaður. Frá vinstri: Haraldur Þórarinsson, formaður LH, Eymundur
Þórarinsson, fulltrúi Skagfirðinga, og Lárus Dagur Pálsson, stjórnarformaður Lands-
móts ehf. MYND/VILHJÁLMUR SKÚLASON
Sörlafélagar í hestaferð. MYND/SIGURÐUR SIGMUNDSSON
Einar Ragnarsson,
stjórnarmaður í LH.
Málgagn Landssambands hestamannafélaga
Útgefandi: Landssamband hestamannafélaga
Heimilisfang: Íþróttamiðstöðin, Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Netfang: lh@isisport.is Sími: 514-4030
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jens Einarsson
Netfang: jenseinars@simnet.is Sími: 862-7898
Auglýsingar: Fréttablaðið/Stefán P. Jones
sími: 512-5432 GSM 692-1522
HELSTU SAMSTARFSAÐILAR LH ERU:
lh hestar
ÍÞRÓTT • MENNING • LÍFSSTÍLL