Fréttablaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 26
● lh hestar 20. MAÍ 2008 ÞRIÐJUDAGUR6
FRÉTTAMIÐLAR:
www.eidfaxi.is
www.hestafrettir.is
www.847.is
www.horse.is
www.seisei.is
STOFNANIR:
www.feif.org
www.lhhestar.is
www.holar.is
www.worldfengur.is
www.tamningamenn.is
www.fhb.is
HROSSABÚ:
Fjölmörg hrossabú og aðrir
þjónustuaðilar í hestamennsku
eru með heimasíður á netinu.
Ekki er að finna tæmandi skrá
yfir alla þá aðila á einum stað en
hægt er að finna þá flesta með
því að rekja sig áfram á leitar-
vélum.
Garri frá Reykjavík er hæst
dæmdi íslenski stóðhesturinn í
heimi. Nú er líka komið í ljós að
hann er rakinn kynbótahestur.
Afkvæmi hans fá góða dóma,
bæði hér heima og í Dan-
mörku þar sem Garri býr nú.
Ræktandi Garra er Berglind
Ágústsdóttir. Hún er Reykjavíkur-
barn en býr nú á Efra-Langholti
í Hrunamannahreppi með eigin-
manni sínum, Ragnari Geirssyni,
og þremur sonum. Enginn í fjöl-
skyldunni var í hestamennsku
þegar Berglind fékk áhugann sem
barn og fór í hesthúsið í strætó
með hnakkinn í tösku. Ragnar er
bóndasonur úr Suðursveit. Eftir
að þau kynntust var stefnan tekin
á að eignast jörð og rækta hross.
Berglind var mjög heppin með
fyrstu merina.
ÍSOLD FRÁ GUNNARSHOLTI
Það er sjálfsagt ekkert fínt að vera
rauðblesótt, glófext prímadonna
og vera ræktuð af Landgræðsl-
unni. Ekki frekar en að heita Elvis
Presley og vera fæddur í Holta-
og Landsveit. En það vildi nú bara
þannig til að Landgræðsla ríkisins
í Gunnarsholti átti á sínum tíma
nokkrar hryssur. Í þeim hópi var
Ísold, móðir Garra.
„Jón Finnur Hansson benti mér
á að Landgræðslan ætlaði að selja
hrossin,“ segir Berglind. „Ísold
bar af. Hún var rauð blesótt með
nærri hvítt fax og tagl. Alveg
eins og Barbie-dúkka. Hún var
þriggja vetra. Elvar Einarsson á
Skörðu gili frumtamdi hana þegar
hún var á fimmta vetri. Ég þjálf-
aði hana sjálf veturinn á eftir og
Trausti Þór Guðmundsson sýndi
hana í kynbótadómi um vorið.
Hún fékk 8,19 í aðaleinkunn, þar
af 9,0 fyrir tölt, vilja og fegurð í
reið. Ég leiddi hana síðan undir
Orra frá Þúfu og út úr því kom
Garri. Ísold hefur verið frjósöm.
Hún er átján vetra og kastar sínu
níunda folaldi í sumar. Þrjú af-
kvæmi hennar eru komin með
fyrstu verðlaun. Hún hefur alltaf
verið leidd undir fyrstu verðlauna
hesta.“
GARRI VAR EKKI TIL SÖLU
„Garri var ekki til sölu. Hann var
uppáhaldið okkar,“ segir Berglind.
„En þetta var um það leyti sem
við vorum farin að líta í kringum
okkur eftir jörð. Við vorum ekki
með mikla peninga milli handa
og fengum gott tilboð í hestinn,
miðað við að hann var ósýndur
og til þess að gera lítið taminn.
Þetta var spurning um að velja og
hafna. Við eigum al systur hans,
Írisi frá Efra-Langholti, mjög álit-
lega hryssu,“ segir Berglind. „Það
stóð til að sýna hana í vor en hún
var slegin á bóg og er hölt. Það
er óvíst hvað hún verður lengi að
jafna sig.“
Ræktaði besta hestinn
Fjölskyldan í Efra-Langholti: Berglind, synirnir Viktor Logi, Aron Ernir og Jón Valgeir, og svo húsbóndinn, Ragnar Geirsson.
MYND/JENS EINARSSON
Tveir ungir hestamenn í Fáki komnir í nýju öryggisvestin, og að sjálfsögðu með
hjálm. MYND/JENS EINARSSON
Hestamannafélagið Fákur hefur
í samvinnu við Sjóvá gefið öllum
reiðskólum í Reykjavík öryggis-
vesti. Fákur og Sjóvá hafa undir-
ritað samstarfssamning og verð-
ur Sjóvá aðalstyrktaraðili Íslands-
móta í hestaíþróttum sem Fákur
heldur í sumar. Öryggisvestin eru
nýjung hérlendis en góð reynsla
er af þeim erlendis. Öryggisvestin
verja knapa fyrir slysum og högg-
um, sem til dæmis geta hlotist
þegar knapi dettur af baki. Öllum
börnum og unglingum sem sækja
reiðskólana í Reykjavík verður
framvegis gert að nota öryggis-
vestin. Mikil umræða er nú um ör-
yggismál hestamanna. Framboð
á öryggisbúnaði fyrir hestafólk
eykst jafnt og þétt og notkun hans
verður æ almennari.
Hinn 8. maí síðastliðinn var
undirritaður styrktarsamningur
Hestamannafélagsins Fáks og
Sjóvár. Bjarni Finnsson, for-
maður Fáks, og Karl Wernersson,
stjórnar formaður Sjóvár, skrifuðu
undir samninginn.
Bylting í öryggis-
málum hestamanna
Ólíklegt er að stóðhesturinn og
gæðingurinn Þóroddur frá Þór-
oddsstöðum taki þátt í keppni og
sýningum á LM2008. Hann togn-
aði á fæti og er nú kominn heim
að Þóroddsstöðum þar sem hann
þjónar hryssum.
Þóroddur var í þjálfun hjá
Daníel Jónssyni á Pulu í vetur
og var kominn í gott form. Tekin
hafði verið ákvörðun í Þórodds-
félaginu að sýna hestinn, annað
hvort í kynbótadómi eða A-
flokki gæðinga. Öruggt má telja
að hann hefði blandað sér í topp-
baráttuna á hvorum staðnum
sem er. Hann setti heimsmet í
kynbótadómi fimm vetra, fékk
hæstu aðaleinkunn sem stóð-
hestur hafði hlotið fram að því.
Hann varð annar í A-flokki gæð-
inga á LM2006. En ekkert er
svo með öllu illt að ei boði gott.
Fyrstu trippin í tamningu undan
Þóroddi gefa til kynna að hann sé
rakinn gæðingafaðir. Það má því
segja að hann sé í toppmálum –
að þjóna köllun sinni!
Ekki á LM2008
Þóroddur var kominn í gott form.
MYND/JENS EINARSSON
Átta nemendur luku prófi á hesta-
braut Fjölbrautaskóla Suðurlands
í vor. Hestabrautin er samstarfs-
verkefni LH og FSu. Tekin hefur
verið ákvörðun um að þróa braut-
ina áfram.
„Þetta var tveggja ára tilrauna-
verkefni. Það tókst mjög vel og
vilji allra að brautinni verði haldið
áfram,“ segir Hugrún Jóhanns-
dóttir reiðkennari. „Það voru 38
nemendur á hestabrautinni í vetur.
Átta luku fjögurra anna námi í vor.
Flestir sýndu miklar framfarir. En
þetta er eins og annað nám. Þeir
verða bestir sem eru duglegir að
læra heima. Það er engin spurning
að þetta er besta leiðin til að búa
til fleiri og betri hestamenn.“
Hugrún segist vita um allmarga
fullorðna einstaklinga sem vilja
komast í þetta nám. „Draumurinn
er að boðið verði upp á kvöldskóla
í FSu fyrir fullorðna. Það eru
margir sem vilja komast í þetta
nám. Einnig að hægt verði að
bjóða upp á framhaldsnám fyrir
lengra komna.“
Hestabraut FSu þróuð áfram
Nemendur og kennarar við hestabraut FSu. Hugrún Jóhannsdóttir lengst til hægri.
Myndin var tekin á síðasta ári. MYND/JENS EINARSSON
Hestamenn á netinu