Fréttablaðið - 20.05.2008, Qupperneq 41
ÞRIÐJUDAGUR 20. maí 2008 25
Höfundar bresku gamanþáttanna
Little Britain, Matt Lucas og
David Walliams, eru með tvær
kvikmyndir í bígerð. Samkvæmt
Hollywood-tímaritinu Variety
eru þeir að vinna að mynd með
bandaríska framleiðandanum
Dreamworks, sem hefur gert
stórmyndir á borð við Trans-
formers og Sweeney Todd. Einnig
eru þeir að undirbúa mynd með
breska fyrirtækinu Working Title
sem hefur áður sent frá sér
myndirnar Hot Fuzz og
Atonement.
Lucas og Walliams virðast vera
sjóðheitir um þessar mundir því
þeir eru þegar byrjaðir að taka
upp bandaríska útgáfu af Little
Britain fyrir sjónvarpsstöðina
HBO.
Gera tvær kvikmyndir
LITTLE BRITAIN Höfundar Little Britain
eru heldur betur að færa út kvíarnar.
Rokkararnir í Jet Black Joe
héldu stórtónleika í Laugar-
dalshöll síðastliðið föstu-
dagskvöld ásamt Gospelkór
Reykjavíkur. Fullt var út
úr dyrum á tónleikana og
skemmtu gestir sér hið
besta.
Jet Black Joe flutti öll sín bestu
lög á tónleikunum, þar á meðal
Rain og Higher and Higher, við
frábærar undirtektir og sýndi
sveitin að hún er síður en svo dauð
úr öllum æðum. Á meðal gesta
sem stigu á svið voru Hreimur
Örn Heimisson og Guðmundur
Jónsson úr Sálinni.
Rokk og ról hjá Jet Black
DÚETT Páll Rósinkranz, söngvari Jet Black Joe, og Hreimur Örn Heimisson sungu
dúett á tónleikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÞRÍR Í STUÐI Félagarnir Frosti, Orri Freyr
og sjálfur Hemmi Gunn voru í góðu
stuði í Laugardalshöll.
FJÓRAR SPENNTAR Eftirvæntingin leyndi
sér ekki í andlitum þeirra Láru, Dagnýjar,
Auðar og Hrundar.
ANDRI OG ALÍSA Andri og Alísa létu sig
ekki vanta á tónleika Jet Black Joe.
BROSMILD Guðrún og Birkir brostu fyrir
ljósmyndara Fréttablaðsins.
EIR OG GUNNAR Eir og Gunnar mættu
í Höllina til að hlýða á rokkarana í Jet
Black Joe syngja sín helstu lög.