Fréttablaðið - 27.05.2008, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 27.05.2008, Blaðsíða 35
R FRÁ STOFNUN jarðarbúa hætti. Þær eru til að mynda notaðar í matvælaiðnaði eins og mjólkur- framleiðslu, brauð og bjórgerð,“ útskýrir Viggó. Örverur keyra einnig efna- hringrásir jarðarinnar og sjá um niðurbrot á öllu lífrænu efni. „Þær eru gríðarlega harðgerar og þrí- fast við aðstæður sem engar aðrar lífverur lifa við til að mynda við mikinn hita, kulda og seltu. Þetta hafa menn nýtt sér og unnið úr þeim harðgerð ensím sem má nota í ýmsum hagnýtum tilgangi og hefur rannsóknum á erfðaefni til að mynda fleygt fram af þeim sökum,“ segir Viggó. Örverufræðifélag Íslands hefur á síðustu árum haldið regluleg fræðsluerindi og fengið til sín jafnt erlenda sem innlenda fyrir- lesara. „Við erum síðan félagar í Evrópsku örverufræðisamtökun- um Federation of European Neuro- science og í júní 2009 munum við taka þátt í að skipuleggja þriðju ráðstefnu félagsins ásamt hinum Norðurlandafélögunum,“ segir Viggó. vera@frettabladid.is ÞRIÐJUDAGUR 27. maí 2008 19 Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Þennan dag árið 1939 var Golden Gate-brúin á milli San Francisco og Marin Country opnuð fyrir bílaumferð. Tveimur dögum áður höfðu um tvö hund ruð manns farið yfir hana fótgangandi og á hjóla- skautum. Brúin er rúmlega 2.700 metrar á lengd, 27 metrar á breidd og 227 metrar á hæð. Áður en hún var byggð var siglinga leiðin eina raunhæfa leiðin frá San Francisco yfir til Marin County. Ferjusiglingar á milli hófust um 1820 en áætl- unarferðir hófust um 1840. Siglingaleiðin, sem tekur um tuttugu mínút- ur, er hættuleg enda eru straumar í flóanum afar sterkir. Margir lögðu á sínum tíma hart að stjórnvöldum að byggja brú þar sem San Francisco var eina stóra borgin í Bandaríkjun- um sem enn var háð ferjusiglingum á fjórða áratug síðustu aldar. Sjálfsmorð eru algeng á brúnni en hún er 79 metra yfir yfirborði sjávar. Fyrsta sjálfs- morðið var framið nokkrum dögum eftir að brúin var opnuð en ekki er vitað hvað þau eru mörg í heildina þar sem ekki eru alltaf vitni. ÞETTA GERÐIST: 27. MAÍ 1939 Golden Gate brúin opnuð umferð MERKISATBURÐIR 1746 Tilskipun um húsvitjanir er sett. Samkvæmt henni voru prestar skyldir til að vitja safnaðarins í þeirra hús og híbýli að minnsta kosti tvisvar á ári. 1941 Þýska orrustuskipinu Bismarck er sökkt á Norður-Atlantshafi og með því fórust 2.100 manns. 1981 Flugvél ferst á Holtavörðuheiði og með henni fjórir menn. Flak vélarinnar fannst ekki fyrr en 10. júní. 1982 Ólafur Jóhann Ólafsson (síðar forstjóri og rithöfundur) hlýtur 9.67 á stúdentsprófi í Mennta- skólanum í Reykjavík. Það var hæsta einkunn sem gefin hafði verið. 1983 Hús verslunarinnar í Reykjavík er tekið í notkun. 1991 Landsbankinn yfirtekur rekstur Samvinnubankans. Stofutónleikaröð Gljúfrasteins hefst á ný næstkomandi sunnudag, þann 1.júní. Eins og undanfarin sumur verða tónleikar í stofunni á Gljúfrasteini alla sunnudaga og hefjast kl. 16.00. Fjöl- breyttur hópur tónlistarmanna mun leika en Laufey Sig- urðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari munu ríða á vaðið. Halldór Laxness var sem kunnugt er mikill áhugamaður um tónlist og tónlistarflutning. Hann lék sjálfur á píanó og hafði sérstakt dálæti á tónsmíð- um J. S. Bach. Tónlist var alla tíð stór hluti af heimilis- lífinu á Gljúfrasteini, enda stóðu Halldór og Auður kona hans gjarnan fyrir tón- leikum heima meðal ann- ars í samstarfi við Tónlistar- félag Reykjavíkur. Stofutónleikar hefjast aftur á Gljúfrasteini GLJÚFRASTEINN Tónar munu óma á ný á sunnudaginn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.