Fréttablaðið - 12.06.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Vignir Freyr Andersen hefur óbilandi fataáhuga
enda hefur hann verið viðriðinn tískugeirann í
bráðum tvo áratugi.
„Ég byrjaði að vinna í Herragarðinum árið 1989, þá
nítján ára gamall, og vann þar í mörg ár,“ segir Vign-
ir Freyr, sem einnig hefur starfað í versluninni
Íslenskir karlmenn. Margir kannast við hann úr lottói
kynnt lottótöl
Vignir hefur alltaf haft mikinn áhuga á fötum og
segist eiga þau í stöflum. „Ég hugsa að ég eigi mun
meira af fötum en konan mín. Ég á til dæmis um tut-
tugu stakar sparibuxur en svo alls konar kakíbuxur
líka. Svo er ég með æði fyrir hvítum skyrtum og
nota þær mikið undir léttar og þægilegar
seinni tíð er ég farinn ð
Alltaf haft áhuga á fötum
Vignir er mikið í svörtu og hvítu en er þó óhræddur við að klæðast litríkum fötum og þá sérstaklega á golfvellinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALLT Í BLÓMAÁ sumrin getur verið skemmtilegt að koma litrík-um blómum fyrir í falleg-um pottum á svölunum.HEIMILI 2
RÓSÓTT ALLSRÁÐNDISumarkjólarnir verða allir þaktir blómum ef marka má það sem sást á tískusýningum í vor.
TÍSKA 4
bílarFIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2008 Kraftmiklir kaggarmeð sjónrænt aðdráttarafl
BLS. 4
Fjölbreytt dagskráfram undan á Bíladögum
BLS. 2
Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
12. júní 2008 — 158. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Orðum fylgir ábyrgð
Þrátt fyrir rúma skilgreiningu
mansals í íslenskri refsilöggjöf
hefur eigandi Goldfinger ekki
verið kærður fyrir slíkt brot, skrifar
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
UMRÆÐAN 26
VIGNIR FREYR ANDERSEN
Sparibuxur og hvítar
skyrtur í stöflum
• tíska • heimili • heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
BÍLAR
Hestöflin sýnd á Bíla-
dögum á Akureyri
Sérblað um bíla
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
Líf og fjör í
Reykjavíkurborg
Skapandi sumar hópar
hefja leikinn enn á ný.
TÍMAMÓT 28
ENGIR VEXTIR!
EKKERT VESEN!
Baldursnesi 6
Akureyri
0501414imíS
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Opið virka daga frá 8 -18
Heilsunuddpottar
VelduektaMyllu
Heimilisbrauð
- brauðið sem allir
á heimilinu velja
Samningar klárir
Gísli Örn Garðarsson
hefur gengið frá samn-
ingum um hlutverk
Hassansins í stórmynd-
inni Prince of
Persia.
FÓLK 58
LÖGREGLUMÁL Hækkun á eldsneyt-
isverði hefur veruleg áhrif á fjár-
hagsáætlun lögregluembættisins á
höfuðborgarsvæðinu sem verður
annað hvort að fá um 25 milljóna
króna aukafjárveitingu eða draga
úr starfsemi sinni til að mæta þess-
um aukakostnaði.
„Sé miðað við þær forsendur
sem hafðar voru til grundvallar
þegar fjárhagsáætlun var gerð þá
spái ég því að við munum fara um
25 milljónir fram úr áætlun ef ekk-
ert verður að gert,“ segir Halldór
Halldórsson, framkvæmdastjóri
fjármála- og þjónustudeildar lög-
reglunnar.
„Við þurfum alltaf að eyða hærra
og hærra hlutfalli af okkar fjár-
veitingu í bensín,“ segir Stefán
Eiríksson lögreglustjóri. „Ef þeir
peningar koma ekki inn núna þá
þurfum við að draga úr starfsemi.
Til dæmis með því að draga úr
akstri eða fækka bílum. En við
reynum náttúrulega alltaf að
bregðast þannig við að það hafi
ekki áhrif á það meginmarkmið
okkar að auka öryggi og öryggistil-
finningu. En við getum það ekki
alveg endalaust án þess að það hafi
áhrif á þjónustuna, það er alveg
ljóst.“
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu fær um þrjá milljarða á ári til
rekstursins og þykir þeim sem
Fréttablaðið talaði við það naumt
skammtað, jafnvel þótt hækkun
eldsneytisverðs væri ekki inni í
myndinni. „Við höfum gert bæði
dómsmálaráðuneytinu og fjárlaga-
nefnd Alþingis grein fyrir málinu
þannig að dómsmálaráðuneytið,
fjármálaráðuneytið og fjármála-
nefnd eru vel upplýst um þetta.“
Hann segist hins vegar ekki hafa
fengið nein viðbrögð ennþá.
Spurður um hvort viðbragða
væri að vænta frá dómsmálaráðu-
neytinu svaraði Björn Bjarnason:
„Allir bílrekendur standa frammi
fyrir þessari augljósu spurningu.
Hjá ríkinu er henni endanlega
svarað af ríkisstjórn og fjárveit-
ingavaldi. Einstök ráðuneyti taka
ekki ákvarðanir um útgjöld
umfram heimildir.“ - jse
Bensínverð að sliga
lögregluembættið
Hækkun eldsneytisverðs setur rekstrarskilyrði lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu í uppnám. Ef ekkert er að gert fer embættið 25 milljónir fram úr áætlun.
Lögreglan gæti þurft að draga úr starfsemi, til dæmis með því að fækka bílum.
FÓLK „Ég er þeim eiginleika
gæddur að mér finnst gaman að
gera grín að sjálfum mér,“ segir
knattspyrnumaðurinn Tryggvi
Guðmundsson en hann og tíu aðrir
knattspyrnumenn, og einn
þjálfari, sitja fyrir í Wella-
auglýsingu. Tryggvi á það
sammerkt með hinum fótbolta-
mönnunum í auglýsingunni að
vera nauðasköllóttur. Ásgeir
Sveinsson, framkvæmdastjóri
Halldórs Jónssonar hf. sem flytur
inn Wella, hrósar knattspyrnu-
mönnunum fyrir að hafa
afspyrnugóðan húmor fyrir
sjálfum sér. „Þeir eru þó ekki
okkar uppáhaldsviðskiptavinir
þegar kemur að hárvörum.“
-shs/ sjá síðu 58
Fótboltamenn í nýju ljósi:
Sköllóttir aug-
lýsa hárvörur
GÓÐIR SKALLAMENN Drengirnir hafa
húmor fyrir hármissinum. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
FJÖR Í VINNUSKÓLANUM Þeir félagar, Róbert, Bjarki og Vilhelm voru meðal fjölmargra sem nutu veðurblíðunnar í Reykjavík í
gær. Strákarnir kláruðu níunda bekk fyrir skemmstu og eru nú meðal fjölmargra ungmenna sem starfa hjá Vinnuskólanum við að
snyrta borgina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Hugmyndir eru uppi um
að koma á fót nýjum millidómstól
í sakamálum.
Nefnd á vegum dóms- og
kirkjumálaráðuneytisins mun
skila af sér skýrslu á næstu
dögum um dómstigið. Allir
nefndarmenn hafa sagst vera
fylgjandi stofnun dómstigsins.
Dómstóllinn hefur hlotið
vinnuheiti á borð við Landsyfir-
réttur og Lögrétta.
Dómstólaráð tók saman kostnað
við stofnun dómsins og talið er að
hann verði um 150 milljónir
króna. - vsp / sjá síðu 6
Nýr millidómstóll í mótun:
Málum fækkar
í Hæstarétti
SUMARBLÍÐA Í dag verður hæg
norðvestlæg eða breytileg átt. Létt-
skýjað eða hálfskýjað víðast hvar.
Hætt við þokulofti með ströndum.
Hiti 10-18 stig, hlýjast í uppsveitum
syðra.
VEÐUR 4
14
14
14
14
17
UMHVERFISMÁL Rjúpnatalningar
Náttúrufræðistofnunar Íslands nú í
vor benda til þess að fækkunar-
skeið sem hófst 2005 til 2006 sé
afstaðið. Á austanverðu landinu
fjölgaði rjúpu verulega eða um 30-
70 prósent, en stofninn stóð í stað
vestanlands. Venjulega hafa fækk-
unarskeiðin varað í fimm til átta ár,
því koma þessar niðurstöður á
óvart.
Þetta eru niðurstöður talninga í
vor, en mat á veiðiþoli stofnsins
liggur fyrir í ágúst eftir mælingar
á varpárangri rjúpna, afföllum árin
2007 og 2008 og veiði 2007.
Rjúpnaveiði hefur verið tak-
mörkuð undanfarin ár og bannað
hefur verið að versla með veidda
fugla. Á síðasta veiðitímabili
veiddust um fimmtíu þúsund
fuglar en veiðin var 166 þúsund
fuglar árið 1997 þegar mest var.
- shá
Talningar í vor benda til að fækkunarskeið rjúpu sé afstaðið fyrr en ætlað var:
Rjúpnastofninn að hjarna við
Sætur sigur
Valsstúlkna
Valur vann upp-
gjör toppliðanna í
Landsbankadeild
kvenna í gær með
sigri á KR í hörkuleik.
ÍÞRÓTTIR 48