Fréttablaðið - 12.06.2008, Qupperneq 4
4 12. júní 2008 FIMMTUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Tvær líkamsárás-
arkærur hafa borist á mann sem
lenti í átökum við lögregluna á
Patreksfirði fyrir utan félags-
heimilið á staðnum þegar lokaball
sjómannadagsins fór fram í
síðustu viku. Maðurinn skallaði
mann í andlitið og var þá kallað á
lögreglu. Þegar hún kom á
staðinn hafði hann slegið annan í
höfuðið með þeim afleiðingum að
sá rotaðist, að því er vitni báru
við skýrslutökur. Fórnarlömbin
voru marin og blóðug í andliti
eftir árásirnar.
Auk þessa á árásarmaðurinn
yfir höfði sér kæru vegna brots
gegn valdstjórninni, þar sem
hann neitaði að hlýða lögreglu-
mönnunum sem kallaðir höfðu
verið á staðinn vegna árásanna.
Þeir notuðu varnarúða til að
yfirbuga hann. - jss
Tvær kærur á árásarmann:
Skallaði einn
og rotaði annan
STJÓRNMÁL Forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum í haust eru
áhugaverðari og mikilvægari en
þær hafa verið í langan tíma.
Þetta segir dr. Donna Shalala,
sem var heilbrigðisráðherra í
ríkisstjórn Bills Clinton. Hún
gegndi ráðherraembættinu í átta
ár, lengur en nokkur annar heil-
brigðisráðherra. Hún er rektor
Háskólans í Miami og var gerð að
heiðursdoktor við Háskóla
Íslands í gær.
Að sögn dr. Shalala eru báðir
frambjóðendurnir, Barack
Obama og John McCain, ólíkir
fyrri frambjóðendum. Til dæmis
hafi hvorugur þeirra ákveðið ríki
eða svæði á bak við sig. Þeir hafi
ekki alist upp í ákveðnum ríkjum
Bandaríkjanna eins og margir
fyrri frambjóðenda, heldur hafi
þeir þvert á móti báðir alist upp
að miklu leyti utan Bandaríkj-
anna. Þeir séu því í raun fyrstu
alþjóðlegu frambjóðendur til for-
setaembættis Bandaríkjanna, og
það muni koma til með að skipta
máli fyrir allan heiminn.
Dr. Shalala segir að í fyrri
kosningum hafi annað hvort stríð
eða efnahagskerfið verið stærsta
málið. Nú séu það í fyrsta skipti
bæði stríð og efnahagskerfið sem
séu í umræðunni. Þá verði heil-
brigðismál ofar á baugi en þau
hafi verið undanfarin ár, eða frá
því í forsetakosningunum 1992.
- þeb
Doktor Donna E. Shalala ræddi um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum:
Kosningarnar öðruvísi en áður
DR. DONNA SHALALA Fyrrverandi
heilsbrigðisráðherra Bandaríkjanna segir
kosningarnar áhugaverðari en áður.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Bassel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
17°
17°
15°
17°
16°
16°
20°
16°
20°
24°
22°
19°
17°
22°
31°
32°
27°
Á MORGUN
Hæg NV-átt, þoka með
ströndum norðanlands.
LAUGARDAGUR
Hæg breytileg átt.
15
12
14
15
14
12
14
15
17
12
5
4
3
3
2
7
4
3
2
6
414
12
14
15
10
11
10 14
14
1610
SUMARBLÍÐA
NÆSTU DAGA
Bjartviðri víðast
hvar á landinu
næstu daga.
Hafgola eða hægar
breytilegar áttir.
Hætt við þokulofti
með ströndum.
Hitinn verður á
bilinu 10-18 stig,
hlýjast í uppsveit-
um syðra.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
Ein undirgöng fyrir
átta þúsund íbúa
Gangandi og hjólandi vegfarendur komast aðeins um ein göng undir Reykja-
nesbrautina á löngum kafla þar sem brautin liggur í gegnum Kópavog. Bæjar-
stjórinn segir verktaka vera á eftir áætlun en ástandið batna með haustinu.
GUNNAR
I BIRGISSON
JAPAN, AP Japanar ætla að minnka
útblástur gróðurhúsalofttegunda
um 60 til 80 prósent fyrir árið
2050. Forsætis-
ráðherra
Japans, Yasuo
Fukuda,
tilkynnti þetta á
mánudag.
„Allar þjóðir
heims, þar með
talin okkar
eigin, verða að
taka þátt í
þessari tilraun til þess að láta þetta
ganga upp,“ sagði Fukuda í ræðu í
Tókýó. Hann kallar eftir því að
þjóðir heims minnki útblástur um
helming fyrir árið 2050. G8-hópur
mestu iðnríkja heims lýsti yfir
stuðningi við þau áform í fyrra.
Leiðtogafundur G8 fer fram í
Japan í næsta mánuði. - þeb
Japanar gerast stórhuga:
Allt að 80%
minni útblástur
YASUO FUKUDA
UMHVERFISMÁL „Við munum
gróðursetja hálfa milljón
plantna,“ segir Helgi Gíslason,
framkvæmdastjóri Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur. Félagið skrifaði
í gær undir samning við Reykja-
víkurborg um stórt gróðursetning-
arátak.
„Við erum mjög stolt af þessu
verkefni. Þetta er mjög metnað-
arfullt verkefni og ég er ánægður
með að borgin sé aftur að sækja í
sig veðrið á þessu sviði. Í rúman
áratug hefur skógræktarstarf
legið niðri í Reykjavík en borgin
var áður í forustu meðal sveitar-
félaganna í uppgræðslustarfinu,“
segir Helgi. - ges
Uppgræðsluátak í Reykjavík:
Hálf milljón
trjáa gróðursett
DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri
hefur verið ákærður fyrir
vopnalagabrot og ítrekuð brot
gegn valdstjórninni, framin á
Akranesi. Honum er gefið að sök
að hafa í júní í fyrra haft í fórum
sínum stóran hníf og síðar sama
dag hótað tveimur lögreglumönn-
um ofbeldi.
Þá er hann sakaður um að hafa í
september slegið lögregluþjón
tvívegis með krepptum hnefa í
andlitið, sparkað í hné lögreglu-
konu þannig að liðband slitnaði,
hótað fjórum lögregluþjónum með
orðunum: „Ég drep ykkur öll þegar
ég losna“, og að auki hótað syni
eins lögregluþjónsins lífláti. - sh
Ákærður fyrir fjölda brota:
Slasaði lög-
reglukonu
HEILBRIGÐISMÁL Skurðstofum
kvennadeilda Landspítala hefur
borist vegleg tækjagjöf frá
Tilveru, samtökum um ófrjósemi.
Um er að ræða speglunartæki til
rannsóknar á grindarholslíffærum
kvenna; eggjaleiðurum, eggja-
stokkum og legi.
Tækin eru sérhönnuð til að nota
í staðdeyfingu. Þau geta sparað
mörgum konum óþægindi og
fyrirhöfn sem fylgir hefðbundnum
aðgerðum með djúpri svæfingu.
Tækin eru fyrst og fremst notuð
þegar kanna þarf ástand eggjaleið-
ara hjá konum sem eiga í erfiðleik-
um með að verða þungaðar. - kg
Samtök um ófrjósemi:
Færa speglun-
artæki að gjöf
Hótaði hópi lögregluþjóna
Hálfþrítugur maður hefur verið
ákærður fyrir eignaspjöll og brot gegn
valdstjórninni, en hann hótaði fjórum
lögreglumönnum lífláti í lögreglubíl á
leið á lögreglustöðina við Hverfisgötu
í júní í fyrra. Fyrr um kvöldið hafði
hann dældað bíl með því að berja í
hann.
DÓMSTÓLAR
KÓPAVOGUR Aðeins ein undirgöng
tengja Smárahverfi í Kópavogi
við hverfin austan við Reykja-
nesbrautina. Íbúar í Linda-, Sala-
og Kórahverfum auk íbúa í
Hvörfum og Þingum í Kópavogi,
alls um átta þúsund íbúar, þurfa
því allir að nota þessi einu óupp-
lýstu undirgöng ef þeir þurfa að
komast gangandi eða hjólandi í
önnur hverfi Kópavogs.
Göngin eru skammt frá hóp-
ferðabílamið-
stöð Teits Jón-
assonar, en um
tíma gátu gang-
andi og hjólandi
vegfarendur
einnig farið um
undirgöng móts
við verslun
Elko. Þeim var
lokað þegar
framkvæmdir
hófust á svæðinu.
Gunnar I. Birgisson, bæjar-
stjóri í Kópavogi, segir að undir-
göngum við Elko hafi einungis
verið lokað tímabundið. Þar
standi til að opna ný göng undir
Reykjanesbrautina og þau séu
ætluð akandi sem og hjólandi og
gangandi umferð. Segir hann
áætlað að framkvæmdum ljúki í
byrjun september.
„Síðan eru framkvæmdir við
brúna við Turninn á lokastigi,“
segir Gunnar. Þar eiga einnig að
koma brautir fyrir gangandi og
hjólandi umferð. Gunnar segir
verktaka á eftir áætlun með frá-
gang en að framkvæmdum eigi
að ljúka í júní.
Um frekari framkvæmdir á
svæðinu segir Gunnar að á Fífu-
hvammsvegi verði akreinum
fjölgað í tvær frá torgi við Linda-
veg og niður að brúnni.
Þá verði framkvæmdir við
Arnarnesveg frá Reykjanesbraut
upp að Fífuhvammsvegi boðnar
út síðar á árinu. Þeim fram-
kvæmdum eigi að ljúka næsta
sumar um leið og mislæg gatna-
mót á Reykjanesbrautinni verða
tilbúin. „Þá gerbreytist þetta, þar
sem öll umferð fer ekki lengur
niður Fífuhvammsveginn,“ segir
Gunnar.
olav@frettabladid.is
3
2
1
1. Einu nothæfu undir-
göngin í dag. Óupplýst.
2. Göng sem lokað var
vegna framkvæmda en
stefnt er að því að opna
önnur göng á þessum
sama stað í haust.
3. Frágangur á göngu-
stígum undir brúna við
Smáralind hefur tafist. Þar
eru nú illfærar tröppur.
GÖNG UNDIR REYKJANESBRAUT
GÖNGUSTÍGAR VIÐ SMÁRALIND Gangandi vegfarendur þurfa að fara um illa farnar
tröppur til að komast leiðar sinnar undir brúna við Smáralind. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
GENGIÐ 11.06.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
155,0305
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
151,69 152,43
151,69 152,43
120,13 120,81
16,105 16,199
15,046 15,134
12,849 12,925
0,7218 0,726
125,19 125,93
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR