Fréttablaðið - 12.06.2008, Síða 12
12 12. júní 2008 FIMMTUDAGUR
VARNARMÁL „Breytingarnar [eftir
brottför varnarliðsins] eru býsna
augljósar, hinar fjölþjóðlegu
varnir NATO hafa tekið við af
hinu tvíhliða varnarsamstarfi við
Bandaríkin. Þið hafið ekki „tapað“
Bandaríkjamönnum, þeir eru enn
bandamenn ykkar í NATO, en
Íslendingar hafa uppgötvað Evr-
ópu og evrópsku NATO-þjóðirnar
hafa uppgötvað Ísland!“ Þetta
segir Francois Heisbourg, próf-
essor í París og formaður fjöl-
þjóðlegu varnarmálarannsóknar-
stofnunarinnar
IISS, í samtali
við Fréttablað-
ið, en hann
heldur fyrir-
lestur um
öryggismála-
stefnu Frakk-
lands við
Háskóla Íslands
síðdegis í dag.
Heisbourg
hefur víðtæka
reynslu á sviði öryggismála og
hefur tekið virkan þátt í mótun
franskrar öryggisstefnu síðasta
aldarfjórðung. Hann hefur kennt
við stjórnmálafræðiháskólann
Sciences-Po í París og veitt for-
stöðu rannsóknastofnun um
öryggismál í Frakklandi. Hann
hefur í tíu ár verið formaður
Geneva Centre for Security Pol-
icy og formaður stjórnar IISS frá
því árið 2001.
Heisbourg tekur aðspurður
undir það að í þá rúmu hálfu öld
sem bandaríska varnarliðið var
hér létu hinar evrópsku NATO-
þjóðirnar sig Ísland lítið varða,
þar sem það hafði sitt tvíhliða
samkomulag við Bandaríkin. Nú
sé Ísland hins vegar komið
„kyrfilega inn á Evró-Atlants-
hafskortið.“ Varnarskuldbinding-
ar Bandaríkjamanna gagnvart
Íslendingum séu nú orðnar hluti
af víðari skuldbindingum NATO.
„Þetta er flóknari staða, en
þetta er líka staða sem er mun
nær náttúrulegri land- og her-
fræðilegri stöðu landsins í Norð-
ur-Atlantshafi, með bandamenn
beggja megin við það,“ segir
Heisbourg.
Aukinn áhugi evrópsku NATO-
bandamannanna endurspeglist
meðal annars í áhuga Frakka á að
taka að sér, fyrstir þjóða, loft-
rýmiseftirlit NATO við Ísland.
Aukinheldur staðfestir Heis-
bourg að horfurnar á að nýjar
siglingaleiðir opnist yfir Norður-
Íshaf og aðgangur að nýjum auð-
lindum þar norður frá auki her-
fræðilegt mikilvægi Íslands og
nágrennis. Segja megi að sú
þróun komi Íslandi úr þeirri jað-
arstöðu sem hafi einkennt það
hingað til í „venjulegri“ stöðu;
með því að lenda í þjóðbraut
breyttra viðskiptaleiða, loftslags-
breytinga og auðlindanýtingar
verði Ísland líkara hverju öðru
Evrópuríki hvað varðar hættu-
mat og aðra þætti öryggismála-
stefnu.
audunn@frettabladid.is
Ísland uppgötvaði bandamenn
Einn fremsti varnarmálasérfræðingur Frakka segir að í kjölfar brottfarar bandaríska varnarliðsins héðan
fyrir tæpum tveimur árum hafi Ísland „uppgötvað“ hina evrópsku NATO-bandamenn sína − og öfugt.
FRANCOIS
HEISBOURG
LOFTRÝMISEFTIRLIT Frakkar sýna að sögn Heisbourg áhuga í verki á þátttöku í vörn-
um Íslands með loftrýmiseftirliti franskra orrustuþotna hér. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KÍNA, AP Hættuástandi vegna flóða-
hættu hefur verið aflýst í Setsúan-
héraði í Kína. Óttast hafði verið að
stöðuvatnið Tangjiashan, sem
myndaðist í jarðskjálftanum mikla
í síðasta mánuði, myndi ryðja sér
leið í gegn um stíflu sem jarð-
skriða myndaði. Unnið var að því
síðustu daga að búa til stóran
skurð til þess að lækka vatnsyfir-
borðið og létta þrýstingi af óstöð-
ugum bökkum vatnsins.
Íbúar bæja neðan við vatnið
höfðu verið í viðbragðsstöðu
vegna mögulegs flóðs, en um 1,3
milljónir manna búa á svæðinu.
250 þúsund þeirra höfðu flust
brott í varúðarskyni.
Þyrla, sem hrapaði í fjöllum
eftir skjálftann, fannst einnig í
gær. Þyrlan var að flytja særða frá
skjálftasvæðunum þegar hún
hrapaði, með fjórtán sjúklinga og
fimm manna áhöfn um borð. Henn-
ar hafði verið leitað frá 30. maí.
17.516 manns er enn saknað
eftir jarðskjálftann 12. maí og
staðfest hefur verið að 69.146 hafi
látið lífið. Um fimm milljónir
manna misstu heimili sín. - þeb
Vatnsborð lækkar í stóru stöðuvatni í Kína:
Ekki lengur flóðahætta á
jarðskjálftasvæðunum
TANGJIASHAN Vatnsborð stöðuvatnsins hafði lækkað mikið í gær. Í kjölfarið var
flóðahættu aflýst. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Héraðsdómur Suður-
lands hefur dæmt tvo bræður um
þrítugt seka um líkamsárás á
Selfossi í október 2005. Mönnun-
um var hins vegar ekki gerð nein
refsing þar sem óheyrilegur drátt-
ur varð á málinu, eins og segir í
dómi. Skýrslur voru ekki teknar
af vitnum fyrr en tveimur árum
eftir að kæra barst.
Bræðurnir veittust að öðrum
manni, annar þeirra skallaði hann
í andlitið og hinn sló hann
hnefahöggi. Maðurinn nefbrotn-
aði. Þeir voru dæmdir til að greiða
manninum tæpar 400 þúsund
krónur í bætur, en er eins og áður
segir ekki gerð refsing. - sh
Dæmdir sekir en ekki refsað:
Tveggja ára bið
eftir skýrslutöku
MENNTUN Nokkuð hefur borið á því að háskólakennar-
ar hafi ekki skilað nemendum einkunnum á réttum
tíma. Það getur verið nemendum mikilvægt því þeir
þurfa að sýna fram á námsárangur sinn til þess að fá
námslán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Ástandið er öllu betra í Háskólanum í Reykjavík
(HR) en í Háskóla Íslands (HÍ). Innan HÍ á almennt að
skila einkunnum innan þriggja vikna frá því að próf
er tekið. Dæmi er þó um að einkunnum úr vorprófun-
um í ár hafi ekki verið skilað allt að fjörutíu dögum
eftir próf. „Við í Stúdentaráðinu höfum gert átak í því
að fylgjast með því að kennarar skili einkunnum á
réttum tíma og erum til dæmis með sjálfvirka
heimasíðu sem fylgist með einkunnaskilum“, segir
Björg Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs HÍ.
„Þetta er einn liður í því að Háskólinn nái því
markmiði að verða meðal hundrað bestu í heimi. Ég
vona að kennarar átti sig á því,“ segir hún.
Jóhanna Klara Stefánsdóttir, formaður Stúdenta-
ráðs HR, segist ekki hafa fengið kvartanir inn á sitt
borð um að einkunnir hafi borist of seint. „Þetta er
almennt ekki talið vandamál í HR.“ - gh
Misvel er staðið að einkunnaskilum í háskólunum:
Skil á einkunnum dragast
STJÓRNMÁL Sturla Böðvarsson,
forseti Alþingis, er í opinberri
heimsókn í Frakklandi. Með
honum í för eru
formenn
þingflokkanna
þau Siv
Friðleifsdóttir,
Lúðvík Berg-
vinsson,
Ögmundur
Jónasson og
Kristinn H.
Gunnarsson.
Þau munu
funda með
forseta neðri deildar Frakklands-
þings, umhverfisráðherra
landsins og viðskiptaráðherra.
„Þetta er nokkuð þétt dagskrá,“
segir Sturla en bætir þó við að frí
var á fundum meðan Frakkar
léku á Evrópumótinu í knatt-
spyrnu. „Hvort sem það er nú
viljandi eða óviljandi,“ bætir
Sturla við kankvís. Heimsókninni
lýkur á laugardag. - jse
Sturla Böðvarsson:
Frí á meðan
Frakkar spila
Burkiní fyrir konur
Komin eru á markað strandföt fyrir
múslimakonur, svokölluð burkini.
Fötin eru tvískipt, buxur sem ná niður
á ökkla og bolur sem nær niður á
mjaðmir, með síðum ermum auk
höfuðfatnaðar. Í þessu geta konurnar
farið á ströndina án þess að brjóta
reglur Kóransins um klæðnað kvenna.
ISLAM
STURLA
BÖÐVARSSON
Upplýsingar teknar af vefsíðu
Háskóla Íslands.
Áfangi: Fjöldi daga frá prófi:
Efnafræði ensíma 42
Efnavarmafræði 42
Finnsk málfræði III 42
Lífefnafræði 42
Vinnuréttur 41
Umhverfisjarðefnafræði 39
Sagnflokkar og rökliðavíxl 32
UI - Tölvunotkun og töflureiknir 32
Seinustu skilin
BJÖRG
MAGNÚSDÓTTIRGLAÐST YFIR HEIMSMETI Japanski
sjónvarpsmaðurinn Monta Mino heldur
stoltur á skjali sem staðfestir heimsmet
hans í lengstum tíma í beinni útsend-
ingu á einni viku.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP/KYODO