Fréttablaðið - 12.06.2008, Qupperneq 36
[ ]Líkamsburstun örvar blóðrásina og hreinsar dauðar húðfrumur. Gott er að nota burstann á líkamann þurran, byrja á fótleggjunum og færa sig svo upp.
Þrjár ungar konur vinna nú að
því að gefa út bók með reynslu-
sögum um brjóstagjöf íslenskra
kvenna.
Þær Aðalheiður Atladóttir, Dagný
Ósk Ásgeirsdóttir og Soffía Bær-
ingsdóttir eiga það sameiginlegt
að eiga börn en hafa misjafna
reynslu af brjóstagjöf. „Okkur
fannst vanta aðgengilegar upp-
lýsingar um þessi mál,“ segir
Aðalheiður. „Hugmyndin með
bókinni er að blanda saman hag-
nýtum upplýsingum ásamt
reynslusögum kvenna um brjósta-
gjöf en þannig sögur hafa mikið
fróðleiksgildi. Margar konur eru
í felum með brjóstagjöfina, þá
sérstaklega konur með börn á
brjósti eldri en eins árs. Við vilj-
um opna umræðuna og auka
almenna vitund fólks um brjósta-
gjöf og kosti hennar,“ útskýrir
Aðalheiður og bætir við: „Fyrir
mér er brjóstagjöf eðlilegasti
hlutur í heimi. Móðurmjólkin er
besta næring fyrir ungbörn fyrstu
árin og ef brjóstagjöfin gengur
vel er þetta yndisleg tenging fyrir
móðir og barn.“
Fyrirmynd bókarinnar er Konur
með einn í útvíkkun fá enga samúð
en sú bók er samansafn af reynslu-
sögum kvenna um fæðingar og
naut mikilla vinsælda fyrir nokkr-
um árum. „Bókin okkar verður
ekki alveg eins, en við vorum
hrifnar af frásagnarforminu,“
útskýrir Aðalheiður.
Stöllurnar þrjár hafa misgóða
reynslu af brjóstagjöf. Aðalheiður
segist sjálf hafa lent í mjög mikl-
um vandræðum. „Ég lenti í öllu
sem hægt var að lenda í. Með fyrra
barnið mitt fannst mér skorta
samfellda þjónustu og ég vissi oft
ekkert hvert ég átti að leita til að
fá aðstoð. Með seinna barnið mitt
fékk ég samfellda þjónustu og þá
gekk brjóstagjöfin betur.“ Aðal-
heiði finnst vanta tengslanet fyrir
nýbakaðar mæður og bendir á að
þó að margir góðir brjóstagjafa-
ráðgjafar starfi hér á landi þurfi
meðgöngu-, fæðingar- og sængur-
leguþjónustan að vera samfelldari
því þetta tengist allt.
Aðalheiður segist hafa fundið
fyrir fordómum í tengslum við
brjóstagjöf þegar hún var með sitt
fyrsta barn á brjósti. Hún fann
fyrir þrýstingi að hætta með
barnið á brjósti þegar það var
orðið eins árs, þó að hún vildi sjálf
halda brjóstagjöfinni áfram. Þegar
hún átti seinna barnið sitt komst
hún að því að Alþjóða heilbrigði-
stofnunin mælir með brjóstagjöf í
tvö ár. Fordómar gagnvart langri
brjóstagjöf komu henni á óvart og
fannst henni benda til að fólk væri
ekki nægilega upplýst um þessi
málefni.
Konurnar þrjár, sem þekkjast í
gegnum börnin sín, eru allar mikl-
ar áhugakonur um brjóstagjöf og
voru sammála um að bæta mætti
aðgengi upplýsinga um málið
þegar hugmyndin að bókinni kom
fyrst upp.
Fyrirhugað er að gefa bókina út
í haust en dagsetning er enn óráð-
in. „Undirtektirnar hafa verið
mjög góðar, en við erum enn að
safna reynslusögum. Við finnum
fyrir því að sumar konur eru
feimnar við að deila sögum sínum
með okkur, en engin kemur fram
undir nafni,“ segir Aðalheiður.
Þær konur sem hafa áhuga á að
deila sinni reynslu geta sent inn
sögur fram til 1. júlí næstkomandi
á netfangið gjafabok@gmail.com.
klara@frettabladid.is
Móðurmjólkin langbest
Aðalheiður Atladóttir (vinstra megin) og Dagný Ósk Ásgeirsdóttir eru á fullu að safna saman reynslusögum kvenna um brjósta-
gjöf. FRETTABLAÐIÐ/STEFÁN
Víðtæk rannsókn bendir til
þess að álag og streita í starfi
hafi mjög skaðleg áhrif á
heilsu fólks.
Álag og streita í starfi eykur
líkur á hjarta- og æðasjúkdómum
um 68 prósent samkvæmt rann-
sókn á vegum Lundúnaháskóla
sem hefur staðið yfir frá árinu
1985. Fólk í aldurshópnum fimm-
tíu ára og yngra er í sérstakri
hættu.
Rannsóknin náði til yfir 10.000
Breta en hjarta- og æðasjúkdóm-
ar draga um 100.000 þeirra til
dauða á ári og eru helsta dánar-
orsökin þar í landi. Samkvæmt
rannsókninni virðist streita
einnig auka magn streituhorm-
ónsins cortisols í blóði auk þess
sem hún leiðir af sér slæmar
matar venjur og reykingar. Slíkar
venjur leiða svo aftur til enn
meiri hættu á hjartasjúkdómum.
Dr. Tarani Chandola, sem stýrði
rannsókninni, segir ljóst að steita
auki líkur á hjartasjúkdómum en
að enn eigi eftir að leita betri
svara við því með hvaða hætti
hún vinni hjarta- og æðakerfinu
mein. - ve
Streita er varasöm
Mikil streita í vinnunni getur verið
hættuleg.
Hættulegur reykur
AÐ BRENNA REYKELSI GETUR VERIÐ
GOTT FYRIR ANDLEGA LÍÐAN EN
GETUR SKEMMT HEILSUNA.
Reykelsi sem notað er á trúar-
legum samkomum og til að lífga
upp á lykt í herbergjum inniheldur
blöndu af skaðlegum efnum sam-
kvæmt vísindamönnum. Rann-
sókn bendir til að innöndun eitur-
efna reykelsis sé jafn slæmt fyrir
heilsuna og tóbaksreykur. Sér-
fræðingar fundu út að reykelsið
gæti leitt til höfuðverkja, lungna-
meina og taugavandamála.
Rannsakendurnir, sem eru frá
Taívan og Bandaríkjunum, leggja
til að þegar verið sé að brenna
reykelsi sé herbergið vel loftræst
á meðan. Þeir segja að reykur frá
reykelsi innihaldi efni sem valdi
loftmengun, öndunarerfiðleikum
og heilsuvandamálum.
- mmf
Frískandi og mildir hreinsiklútar
fyrir augn- og andlitsfarða.
Fást í verslunum um land allt.
Höf›abakka 9 (sama hús og Hreyfigreining)
• Brasilískt súkkula›ivax
• Frábærar líkamsme›fer›ir sem losa flig
vi› appelsínuhú›, slit og slappa hú›!
• Leirvafningar, andlitsme›fer›ir,
för›un og fleira
• FRÁBÆR TILBO‹
Panta›u tíma í síma 557 3939