Fréttablaðið - 12.06.2008, Síða 68
48 12. júní 2008 FIMMTUDAGUR
Rokksveitin Whitesnake lék á tónleikum í Laugardalshöll á þriðjudags-
kvöld. Ungir sem aldnir aðdáendur voru samankomnir og skemmtu
sér vel. Whitesnake hélt eftirminnilega tónleika á Íslandi fyrir átján
árum og því var biðin orðin löng eftir endurkomu sveitarinnar, að
minnsta kosti fyrir hörðustu aðdáendur hennar. David Coverdale
söngvari og félagar hans sviku heldur engan með frammistöðu sinni
á þriðjudagskvöldið, svitinn lak af hverjum gesti í Höllinni. Ragnar
Sólberg og félagar í Sign hituðu upp og stóðu vel fyrir sínu.
SVEITT ROKK Í HÖLLINNI
David Coverdale, söngvari Whitesnake, virtist
engu hafa gleymt þrátt fyrir að vera kominn
fast að sextugu. Whitesnake stóð vel fyrir sínu í
Höllinni á þriðjudagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tóbías Ingvarsson og Ingvar Þórð-
arson. Augljóst er að drengurinn er
upprennandi rokkari.
Ari Harðarson og Ragnar Róbertsson
voru að sjálfsögðu klæddir í leður af
þessu tilefni.
Sóldís Lilja Benjamínsdóttir og Guðbjörg
Sigurðardóttir ætluðu svo sannarlega ekki að
missa af Whitesnake.
Ég var of ungur til þess að sjá
Whitesnake í Reiðhöllinni fyrir
átján árum. Nauðaði í mömmu en
fékk ekki að fara. Það voru mér
gríðarleg vonbrigði. Ætlaði þar af
leiðandi alls ekki að missa af tón-
leikunum að þessu sinni.
Það var vel við hæfi að hin unga
glysrokksveit Sign skyldi hita upp.
Strákar sem eru augljóslega undir
miklum áhrifum sveita á borð við
Whitesnake. Þeir kunna þess utan
alla taktana. Skiptir ekki máli
hvort um sé að ræða „slummur“
upp í loftið eða flösuþeyting að
hætti Jasons Newsted. Ragnar
Zolberg er svo eins og ungur
Sebastian Bach. Þeir stóðu sig frá-
bærlega og það eina sem vantaði
var að Zolberg færi úr að ofan.
Salurinn var því vel heitur þegar
David Coverdale, eða Davíð Breið-
dal eins og hann er oft kallaður,
steig á svið. Það var magnað að sjá
Coverdale, sem er að verða 57 ára
og afi tveggja barna, í gallabuxum
og vel fleginni skyrtu. Enn með
sítt blásið hár og vel klipptan topp
sem er algjört lykilatriði í góðu
glysrokki. Þess utan vel strekktur
í framan sem hefur skilað því að
hann er farinn að líkjast Alice
Cooper ískyggilega mikið.
Þrátt fyrir þá döpru staðreynd
var ekki hægt að kvarta yfir
frammistöðu kappans. Hann lék á
als oddi og hefur engu gleymt.
Kraftur í röddinni, fór listavel
með stöngina, var duglegur að tala
við salinn og skála við hann í
íslenskum bjór. Hélt athygli áhorf-
enda allan tímann og gaf af sér.
Breiðdal og félagar blönduðu
smekklega saman nýjum og göml-
um lögum. Var vel tekið undir í
frægustu slögurum sveitarinnar.
Tónleikarnir voru alvöru gamal-
dags glysrokktónleikar því boðið
var upp á hetjugítarsólókeppni og
síðar langt trommusóló þegar afi
Breiðdal þurfti að ná andanum
baksviðs. Það kunnu áhorfendur
vel að meta.
Sveitin var þétt, aukaleikararn-
ir traustir og kunnu alla taktana
upp á tíu. Þetta var frábær
skemmtun og áhorfendur fengu
nákvæmlega það sem þeir vildu fá
og héldu glaðir heim á leið.
Henry Birgir Gunnarsson
Nostalgía með
afa Breiðdal
TÓNLEIKAR
Whitesnake
Laugardalshöll 10. júní.
★★★★★
David Coverdale sýndi að hann hefur
engu gleymt þó svo hann sé farinn að
líkjast Alice Cooper. Whitesnake bauð
upp á alvöru, gamaldagsglysrokktón-
leika og áhorfendur fengu nákvæm-
lega það sem þeir vildu fá.
Strákarnir í Sign gáfu
Whitesnake ekkert eftir
í rokklátunum.
STRANDDAGAR
Í TOPSHOP
20% AFSLÁTTUR
AF SUNDFÖTUM OG
STRANDFATNAÐI
FRÁ FIMMTUDEGI - SUNNUDAGS
SMÁRALIND OG KRINGLUNNI