Fréttablaðið - 17.06.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
NÁTTÚRA Reynt verður að fanga ísbjörn sem
fannst á Skagatá í gær og koma honum aftur
til síns heima með liðsinni sérfræðinga frá
Dýragarðinum í Kaupmannahöfn. Danirnir
koma til landsins í dag með búr og annan
búnað. Björninn verður vaktaður þangað til og
skotinn ef öryggi fólks er ógnað.
Heimilisfólk á Hrauni á Skagatá varð
bjarnarins vart um hádegisbil í gær og hafði
samband við lögreglu. Ekki er vitað hvernig
björninn komst til landsins eða hvenær. Þetta
er í annað sinn í mánuðinum sem bjarndýr
gengur á land á þessum slóðum. Fyrir tveimur
vikum fannst ísbjörn nokkru sunnar á Skaga.
Hann var felldur. Nú eru aðstæður aðrar;
auðveldara að vakta björninn og hindra að
hann hlaupist á brott.
„Um leið og ég frétti af því að það væri
kominn annar hvítabjörn í Skagafjörðinn voru
mín fyrstu viðbrögð að við myndum gera allt
sem við gætum til að ná dýrinu lifandi og
koma því til heimkynna sinna. Við fórum af
stað með það að leiðarljósi,“ segir Þórunn
Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra, sem
segist hafa reynt að stýra aðgerðunum frá
útlöndum.
Björninn lá lungann úr gærdeginum í
makindum í æðarvarpi steinsnar frá Hrauni,
át þar egg og svaf. Íbúum á nálægum bæjum
var gert að halda sig innandyra.
Að sögn Hjalta J. Guðmundssonar, sviðs-
stjóra hjá Umhverfisstofnun, verður þess
freistað að deyfa björninn, fanga hann í búr
Dananna og flytja hann síðan aftur til Græn-
lands, eða í versta falli í Dýragarðinn í Kaup-
mannahöfn. Þangað til verður dýrið vaktað.
„Þetta er mjög áhættusöm aðgerð að öllu
leyti. Það þarf allt að ganga upp,“ segir
Þórunn.
Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, bauðst í gær til þess að greiða allan
kostnað sem til fellur við að bjarga ísbirninum
og koma honum í öruggt umhverfi. Þórunn
segir þetta vel boðið. „Við vitum ekki hversu
mikill kostnaðurinn verður,“ segir hún. Þó sé
ljóst að hann hlaupi á milljónum króna, og
augljóslega ekki gert ráð fyrir þeim kostnaði á
fjárlögum.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir á
vef sínum ætlunina að bjarga dýrinu lifandi
með aðstoð Dana og fjárhagslegum stuðningi
Novators. - sh / - bj / sjá síðu 4
Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
17. júní 2008 — 163. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR SUMAR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Krafturi h
Lovísa hefur hestinn sinn Ás í hesthúsi hjá hestamannafélaginu Sörla í Hafnarfirði.
Hátíðarhöld verða á mörgum stöðum á þjóð-hátíðardegi okkar Íslend-inga. Þótt spáin sé góð getur veðrið alltaf tekið breytingum. Gott er því að taka með sér einhvern hlífðarfatn-að eins og regnkápu eða góða peysu ef ske kynni að veðrið breyttist.
Börnin skemmta sér allt-af vel á 17. júní. Það getur komið fyrir að þau verði viðskila og týnist. Því er gott að vera búinn að skrifa miða sem barnið geymir í vasa sínum sem á stendur nafn, heimilis-fang og sími sem barnið getur sýnt ef það týnist.
Arnarhóll er aðaltónleika-staðurinn kvöldið 17. júní. Tilvalið er fyrir fjölskylduna að fara þangað saman, njóta samveru hvers annars og hlusta á góða tónlist. Dagskrá 17. júní er hægt að finna á www.17juni.is
VEÐRIÐ Í DAG
LOVÍSA BJÖRT HENNINGSDÓTTIR
Hestarnir ætíð verið
í miklu uppáhaldi
sumar
Í MIÐJU BLAÐSINS
TÍSKA Ingibjörg Finnbogadóttir,
fatahönnuður og stílisti, hefur
fengið það verkefni að hanna útlit
á sex manns sem sækja ýmsa
menningarviðburði í New York.
Verkefnið er á vegum fyrirtækis
sem kallast Fauxcialite og geta
fyrirtæki keypt sér útlimi til að
auglýsa á. Ingibjörg hefur verið
búsett í New York í tvö ár og hefur
komið ár sinni vel fyrir borð þar.
„Ég fékk atvinnuleyfi í fyrrahaust
og hef haft nóg fyrir stafni síðan
þá,“ útskýrir Imba.
- sa / sjá síðu 30
Ingibjörg Finnbogadóttir:
Hannar nýtt útlit
á sex manneskjur
VIÐSKIPTI „Miðað við þær upplýs-
ingar sem birst hafa í fjölmiðlum
sýnist mér hæpið að heimfæra
frestun á birtingu upplýsinga
undir þessa þröngu undanþágu-
heimild,“ segir Hlynur Jónsson,
lögmaður og fyrrverandi sviðs-
stjóri hjá Fjármálaeftirlitinu.
Stjórn Eimskipafélagsins vissi
í febrúar að dótturfélagið
Innovate ætti í vandræðum. Ekki
var greint frá því fyrr en í síð-
ustu viku en þá var greint frá því
að félagið yrði afskrifað í heild
sinni. Eimskipafélagið hefur
vísað til lagaheimildar um að
þegja yfir upplýsingum.
Halldór Kristmannsson, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs
Eimskips, segir félagið eiga í
góðum samskiptum við eftirlits-
aðila og spurningum þeirra verði
svarað. Frestunin hafi gefið svig-
rúm til að undirbúa sölumeðferð
á Innovate og tekist hafi að
bjarga verðmætum. Viðræður
við væntanlega kaupendur eru á
lokastigi. Komist FME að þeirri
niðurstöðu að Eimskip hafi brotið
lög um verðbréfaviðskipti á það
yfir höfði sér stjórnvaldssekt
upp á allt að fimmtíu milljónir
króna. - ikh / sjá síðu 12
Milljarða afskriftir Eimskips vegna kaupa á dótturfélaginu Innovate:
Efast um lögmæti þagnarinnar
FYRRVERANDI STJÓRNENDUR Baldur
Guðnason og Magnús Þorsteinsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
VEIÐIFRÉTTIR
Félag sem nýtur
vaxandi vinsælda
Veiðifréttir • sérblað frá SVFR
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Stangaveiðifélag Reykjavíkur er stærsta og öflugasta stangaveiðifélag landsins með yfir 3.500 félagsmenn. Félagið hefur notið sívaxandi vinsælda á meðal veiðimanna.
Á síðustu þremur árum hefur félagsmönnum Stangaveiðifélags Reykjavíkur fjölgað um 1.500. Þetta er auðvitað mikið gleðiefni og segir okkur vonandi að félagið sé á réttri braut þegar veiðimenn sjá hag sínum best borgið með því að vera félagsmenn í SVFR. Fjölgun félagsmanna í SVFR setur aukinn þrýsting á stjórn og starfsmenn félagsins. Til að mæta aukinni eftirspurn félags-manna eftir veiðileyfum þarf sí-fellt að bæta við fleiri ársvæðum til að halda uppi nægjanlegu fram-boði veiðileyfa. Það hefur gengið eftir eins og sjá má í meðfylgjandi súluriti sem sýnir þróun í heildar-framboði stangardaga hjá SVFR.SVFR hefur í dag um sextíu veiðisvæði á sínum snærum víða um landið. Fjölbreytt framboð er í lax- og silungsveiði. SVFR hefur stöðugt verið að bæta við sig veiði-svæðum með laxi og silungi. Þá hefur verið lögð áhersla á að auka framboð fjölskylduvænna svæða þar sem æ algengara verður að fjölskyldur fari saman til veiða.
Í lögum félagsins segir um hlut-verk félagsins:
● Að útvega félagsmönnum veiði-leyfi og taka í því skyni veiði-vötn á leigu eða kaupa veiði-svæði og annast umboðssölu á veiðileyfum.
● Að efla hróður stangaveiði með almennri fræðslu um íþróttina, með því að hvetja til hófsemi í veiði og stuðla að því að veiði-menn virði settar veiðireglur og umgangist náttúruna af virðingu og tillitsemi.
● Að styrkja stöðu stangaveiði sem almennings- og fjölskyldu-íþróttar.
● Að efla áhuga barna og unglinga á stangaveiði, m.a. með kennslu í veiðileikni í ám og vötnum og hvers konar fræðslustarfi.● Að vinna að samstöðu meðal stangaveiðimanna og standa vörð um rétt þeirra og hagsmuni.● Að stuðla að góðri samvinnu við veiðiréttareigendur og standa fyrir, ásamt þeim, umbótum á veiðisvæðum sem félagið hefur til umráða.
Laxar að stökkva í Glanna í Norðurá.
MYND/KLAUS FRIMOR
Stangaveiðifélagið er stækkandi félag
Veiðifréttir STANGAVEIÐIFÉLAG REYKJAVÍKURÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2008
18.000
16.000
14.000
12.000
10.000
8 00
Þróun í heildarframboði stangardaga hjá SVFR
Á mála hjá Chanel
Harry Potter-stjarnan
Emma Watson
tekur við af Keiru
Knightley sem andlit
ilmvatnsins Coco
Mademoiselle.
FÓLK 24
Tökur hafnar á
Run for Her Life
Baltasar Kormákur er
með um fjögur hundruð
manns í vinnu við
tökur á mynd
sinni í Nýju
Mexíkó.
FÓLK 30
Til hamingju, borgarbúar
Eftir liðlega þriggja mánaða
hreinsunarátak skartar miðborgin
sínu fegursta og iðar af blómlegu
mannlífi, skrifar Ólafur F. Magnús-
son borgarstjóri.
UMRÆÐAN 16
ÁGÆTT VEÐUR Í dag verður víða
norðaustan 3-10 m/s en 10-13 m/s
suðaustan til. Þurrt að mestu en
hætta á dálítilli rigningu norðaustan
og austan til. Hiti 5-15 stig, hlýjast
suðvestan til.
VEÐUR 4
14
10
7
7
12
STYRKTU ÁTAKIÐ!
Við höfum
opnað fyrir
söfnunar-
númerin
Bein útsending á föstu-
daginn á SkjáEinum
903 1000
903 3000
903 5000
Allt kapp verður lagt á að
fanga ísbjörninn lifandi
Annar ísbjörninn á tveimur vikum hefur gengið á land á Skaga. Danskir dýragarðsstarfsmenn munu
freista þess að fanga björninn í búr. Þangað til er hann undir stífu eftirliti. Í gær át hann æðaregg og svaf.
Carsten Gröndahl, yfirdýralæknir í Dýragarðinum
í Kaupmannahöfn, var á kafi í skipulagsvinnu
vegna ísbjarnarins á Skaga þegar Fréttablaðið
hafði samband við hann í gærkvöld. Hann sagð-
ist ekki mundu vita fyrr en í dag hvernig yrði
staðið að flutningunum enda hefði skipulagn-
ingin þá væntanlega skýrst.
Yfirdýralæknirinn segir að samband hafi verið
haft við sig síðdegis í gær og hann hafi strax
farið í að kanna alla möguleika, til dæmis hvort
hægt væri að fá skipafélag til að flytja búrið.
Gröndahl veit ekki hvernig stjórnun aðgerða
verður háttað eða hvort hann kemur sjálfur til
Íslands en telur það vel hugsanlegt. Hann segir
að starfsmenn dýragarðsins hafi áður staðið að
svipuðum aðgerðum erlendis þó að ekki hafi
verið um ísbjörn að ræða í
þeim tilvikum.
Vel sé hægt að ná ísbirn-
inum og bjarga honum á
nokkrum dögum. - ghs
HAFA ALDREI
FANGAÐ ÍSBJÖRN
Á MELTUNNI Ísbjörninn var rólegur í gær, svaf í æðarvarpi og gæddi sér á eggjum. Íbúum á Hrauni í næsta nágrenni var gert að halda sig innandyra, en að sögn húsfreyju
óttaðist heimilisfólkið þó ekki björninn. Reynt verður að koma böndum yfir björninn í kvöld eða í síðasta lagi á miðvikudag. MYND/FEYKIR/DAVÍÐ ORRI ÁGÚSTSSON
Fyrstir til að
vinna FH
Blikar unnu 4-1
stórsigur á FH í
Landsbankadeild
karla í gær.
ÍÞRÓTTIR 26