Fréttablaðið - 30.06.2008, Side 4

Fréttablaðið - 30.06.2008, Side 4
4 30. júní 2008 MÁNUDAGUR Kringlunni • sími 568 1822 www.polarnopyret.is KJARAMÁL „Þetta eru fyrst og fremst gífurleg vonbrigði,“ segir Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélagsins, um niður- stöðu laugardagsfundar félagsins með samninganefnd ríkisins. Félag- ið sagði sig úr BHM-samstarfinu, áður en BHM samdi við ríkið. Stjórn, kjaranefnd og trúnaðar- menn ljósmæðra funduðu í gær og fóru yfir stöðu mála. „Engan skiln- ing og engan vilja“ er að finna hjá ríkinu, en ljósmæður voru vongóð- ar um að menntun þeirra yrði metin að nýju og laun tækju mið af henni. Loforð um að endurmeta sérstak- lega kjör stétta þar sem konur eru í meirihluta er að finna í sáttmála Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. „Þetta er því pólitísk ákvörð- un,“ segir Guðlaug og reifar að ljósmæður séu háskólamenntaðar og með meistara- gráðu. Meðal- grunnlaun séu 306.000 krónur, svipuð og hjá hjúkrunarfræðingum, sem hafi yfirleitt talsvert minni menntun. Þessi laun séu þó langt undir laun- um í karlastörfum eftir álíka langt nám. „Og við viljum bara fá það sama og aðrar stéttir í þjónustu rík- isins,“ segir hún. Ljósmæður hafi fundað með for- sætis-, utanríkis-, og heilbrigðis- ráðherra. Á þeim fundum mættu þær góðvilja í anda stjórnarsátt- málans. „En þessi vilji hefur ekki skilað sér til undirmanna ráðherr- anna í samninganefndinni,“ segir hún. Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, stað- festir að hann hafi ekki heyrt frá ráðherrum um að koma sérstak- lega til móts við ljósmæður. „Nei, alls ekki. Það kom til umræðu [að hækka laun sérstaklega í hefð- bundnum kvennastéttum] í tengsl- um við kjarasamninga BSRB. Þá voru menn að tala um lengri samn- ing. Þegar stéttarfélögin voru ekki tilbúin til að fallast á það, taldi rík- isstjórnin ekki ástæðu til að fara út í sérstakar aðgerðir fyrir svona stuttan tíma. Það voru mjög skýr svör,“ segir hann. Ríkisstjórnin ætli hins vegar að kynna tillögur að leiðréttingu kyn- bundins launamunar á Jafnréttis- þingi í haust. Ljósmæður funda hjá ríkissátta- semjara á föstudaginn. Þær hittast hins vegar í dag til að ráða ráðum sínum. klemens@frettabladid.is Ljósmæður minna á loforð ríkisstjórnar Formaður Ljósmæðrafélagsins segir hvorki skilning né vilja að finna hjá ríkinu til að leiðrétta laun ljósmæðra. Stjórnarsáttmálinn kvað sérstaklega á um að hækka laun kvenna hjá ríkinu. Ríkisstjórn kynnir jafnréttistillögur í haust. GUÐLAUG EINARSDÓTTIR NÝR ÍSLENDINGUR Fyrsta manneskjan sem við sjáum í lífinu er með meistaragráðu frá háskóla. Innan tíu ára munu um 44 prósent ljósmæðra fara á eftirlaun. Nýliðun í greininni er hins vegar lítil sem engin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg Helsinki Eindhofen Amsterdam London Berlín Frankfurt Friedrichshafen París Basel Barcelona Alicante Algarve Tenerife HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 7 21° 20° 21° 17° 17° 21° 23° 21° 22° 23° 26° 24° 25° 26° 29° 30° 29° 24° 8 12 14 Á MORGUN 10-18 m/s, hvassast við SA-ströndina. MIÐVIKUDAGUR 10-18 m/s S-til og vestan, annars hægari 9 9 11 14 11 7 7 6 5 6 8 5 5 6 9 8 13 9 10 8 8 1413 7 10 14 1512 SNARPAR VINDHVIÐUR Það er rétt að minna á að í Öræfasveitinni sunnan Vatnajökuls getur gert snarpar vindhviður, bæði í dag og ekki síður á morgun. Það er almennt nokkuð vindasamt og má búast við að vind- urinn verði einna mestur suður og austur af Vatnajökli. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur „JAFNRÉTTI Í REYND“ „Gerð verði áætlun um að minnka óútskýrðan kynbundinn launamun hjá ríkinu og stefnt að því að hann minnki um helming fyrir lok kjör- tímabilsins. Ríkisstjórnin vill koma á samvinnu aðila vinnumarkaðar- ins og hins opinbera um að leita leiða til að eyða þessum launa- mun á almennum vinnumarkaði. Endurmeta ber sérstaklega kjör kvenna hjá hinu opinbera, eink- um þeirra stétta þar sem konur eru í miklum meirihluta.“ - Úr stjórnarsáttmála Sjálfstæð- isflokks og Samfylkingar maí 2007. REYKJAVÍK „Við vorum ekki sam- mála um áherslur á viðfangsefni,“ segir Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, fráfarandi aðstoðarmaður Ólafs F. Magnússonar, aðspurð um hvort trúnaðarbrestur hafi orðið milli þeirra borgarstjóra. Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig um orsakir starfslokanna. Líkt og Fréttablaðið greindi frá fyrir helgi mun Ólöf Guðný láta af störfum sem aðstoðarmaður borg- arstjóra nú um mánaðarmótin. Ólöf Guðný verður áfram í skipu- lagsráði borgarinnar fyrir hönd F- lista. „Ólafur fór þess á leit við mig að ég sæti áfram í skipulagsráði. Vegna mikils stuðnings sem ég hef fundið frá meirihluta og minnihluta og ekki síst eindreginna óska for- manns ráðsins hef ég fallist á að sitja þar áfram um óákveðinn tíma,“ segir Ólöf. Ólöf Guðný, sem er arkítekt að mennt, gerir ráð fyrir að hverfa aftur til fyrri starfa á teiknistofu sem hún hefur rekið um árabil. Borgarstjóri neitar ágreiningi við fráfarandi aðstoðarmann sinn. „Ólöf Guðný mun starfa áfram með meirihlutanum að skipulagsmálum eins og hún hefur gert frá upphafi,“ segir Ólafur. „Hún nýtur fulls trausts og virðingar.“ Ólafur F. segir ekkert liggja fyrir um hver verði næsti aðstoðarmaður hans en það komi í ljós á næstunni. „Stærsta verkefnið er að gera borgarbúum grein fyrir öllu því sem við höfum gert,“ segir Ólafur - ht Borgarstjóri og fráfarandi aðstoðarmaður hans ósammála um áherslur: Ólöf hættir um mánaðamót ÓLÖF GUÐNÝ VALDIMARSDÓTTIR Fráfarandi aðstoðarmaður borgarstjóra segir að þau borgarstjóri hafi ekki verið sammála um áherslur á viðfangsefni. ÁSTRALÍA Bretinn Ian Usher hefur selt líf sitt á uppboðssíðunni eBay.com fyrir tæpa fjögur hundruð þúsund ástralska dollara, jafnvirði rúmlega þrjátíu milljóna króna. Fréttavefur BBC greinir frá þessu. Usher hefur búið í borginni Perth á Ástralíu síðastliðin sex ár. Í sölupakkanum var húsið hans, bíll, mótorhjól, starf og vinir. Usher ákvað að segja skilið við sitt fyrra líf eftir skilnað við eiginkonu sína, en hann sagði flest minna sig á samband þeirra. Hann hyggst nú ferðast um heiminn. - gh Bretinn Ian Usher: Seldi lífið fyrir 30 milljónir IAN USHER Tilboð í líf Ushers upp á allt að 160 milljón krónur reyndist vera hrekkur. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP LÖGREGLUMÁL Ungur maður var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir alvarlegt umferðarslys á móts við bæinn Heiði í Skagafirði seint í fyrra- kvöld. Maðurinn fannst rænulítill í vegkanti eftir að bifreið sem hann ók valt á veginum rétt um klukkan tíu um kvöldið að því er lögregla greinir frá. Maðurinn var fyrst fluttur á sjúkrahús á Akureyri og talinn höfuðkúpubrotinn. Hann var í kjölfarið fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús og lá mikið slasaður á gjörgæslu í gærkvöldi að sögn vakthafandi læknis. - ht Velti bíl við Heiði í Skagafirði: Fannst rænu- lítill í vegkanti VIÐSKIPTI Opinbert hlutafélag mun taka við rekstri Keflavíkurflug- vallar fyrsta janúar á næsta ári. Félaginu verður heimilt að standa að stofnun annara félaga og fyrirtækja og gerast eignarað- ili í þeim. Kristján Möller, samgönguráð- herra sagði stofnun félagsins leggja grunn að sókn í „hinni sífelldu úrslitakeppni um markað- inn.“ Hann telur breytingarnar bjóða upp á tækifæri til nýsköpun- ar og að brýnt sé að nýta hið stóra landsvæði í kringum flugvöllinn til atvinnuuppbyggingar. - ges Grunnur að markaðssókn: Nýtt hlutafélag rekur flugvöll PAKISTAN, AP Pakistanski herinn hóf í gær sókn gegn skæruliðum talibana á landamærum Pakistans og Afganistans. Voru lagðar í rúst nokkrar skæruliðabækistöðvar og útvarpssendir. Yfirmenn herafla Vesturlanda í Afganistan fagna aðgerðunum. Telja þeir að friðarviðræður sem pakistönsk yfirvöld hafa staðið í við talibana hafi gert talibönum kleift að byggja upp herafla sinn og ráðast gegn hermönnum í Afganistan. Talsmenn talibana segja að árásanna verði hefnt. - gh Pakistönsk yfirvöld: Ráðast gegn talibönum PAKISTANSKUR HERMAÐUR Skæruliðar talibana voru orðnir ógn við borgina Pesjavar í norðvestur Pakistan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Ökumaður var fluttur mikið slasaður með þyrlu til Reykjavíkur eftir bílveltu á Þingvallavegi seint í fyrrinótt. Ökumaðurinn ók út af veginum við Ljósafossvirkjun með þeim afleiðingum að bifreiðin valt. Tilkynnt var um slysið klukkan rúmlega fjögur og þyrla Land- helgisgæslunnar fljótlega kölluð á staðinn. Hún lenti með hinn slasaða í Reykjavík undir morgun. Ökumaðurinn var einn á ferð og er grunaður um ölvun við akstur. - ht Velti bíl við Ljósafossvirkjun: Þyrla sótti slas- aðan ökumann GENGIÐ 27.06.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 164,5723 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 81,33 81,71 161,64 162,42 128,07 128,79 17,172 17,272 16,042 16,136 13,611 13,691 0,764 0,7684 132,52 133,3 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.