Fréttablaðið - 30.06.2008, Blaðsíða 51
MÁNUDAGUR 30. júní 2008 19
Myndskreytirinn Emily Gravett
vann nýverið virtustu verðlaun
sem veitt eru á Bretlandseyjum
fyrir barnabókamyndskreytingar
og kennd eru við Kate Greenaway
fyrir bók sína um litla mús sem
óttast nánast allt. Þegar Gravett
veitti verðlaununum viðtöku
upplýsti hún að til að ná fram
sérstöku útliti bókarinnar naut
hún aðstoðar tveggja rotta sem
hún hélt sem gæludýr. Hún skildi
auðar blaðsíður eftir í búri þeirra
þar sem dýrin bæði nöguðu
síðurnar og pissuðu á þær. Þegar
síðurnar voru orðnar nægilega
rottumeðfarnar fjarlægði
Gravett þær úr búrinu og
skannaði inn í tölvu og vann svo
áfram með þær þannig. Rotturnar
listrænu hafa báðar drepist
sökum aldurs, en Gravett
tileinkaði þeim þó verðlaunabók-
ina. - vþ
Rottur skapa
list
MÚSIN ÓTTASLEGNA Myndskreyting eftir
Emily Gravett.
Myndlistarsýningin 80 08 var
opnuð á laugardag í Fjárhúsinu
að Núpi 1 undir Eyjafjöllum.
Verkin á sýningunni eru sam-
vinnuverkefni Sambands
sunnlenskra kvenna og Margrét-
ar Einarsdóttur Long myndlistar-
manns. Sýningin er haldin af því
tilefni að í ár fagnar Samband
sunnlenskra kvenna 80 ára
afmæli sínu. Á sýningunni má því
sjá rúmlega 80 útsaumsmyndir
sem kvenfélagskonur hafa unnið í
vetur á svonefndum baðstofu-
kvöldum. Á þeim hafa konurnar
hist og saumað út eftir teikning-
um Margrétar, en hún sá svo um
sýningarstjórn og uppsetningu
verkanna. Myndirnar á sýning-
unni eru til sölu og mun ágóðinn
renna til nýrrar kapellu Sjúkra-
hússins á Selfossi. - vþ
Kvennalist til
góðgerða
Hákon Leifsson var nýlega ráðinn
til að gegna starfi organista og
tónlistarstjóra Grafarvogskirkju
frá og með 1. ágúst 2008. Hákon
lauk doktorsprófi í kórstjórn frá
University of Washington í
Seattle í Bandaríkjunum árið
2004. Hann hefur starfað sem
hljómsveitarstjóri með hljóm-
sveitum á borð við Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands, Caput-hópnum, Jón
Leifs Camerata og Íslensku
hljómsveitinni. Hann stjórnaði
Háskólakórnum í rúman áratug
og stofnaði upp úr honum
kammerkórinn Vox academica.
Hann hefur starfað sem organisti
í Hafnarkirkju í Hornafirði,
Þorlákskirkju, Seltjarnarnes-
kirkju og Keflavíkurkirkju. - vþ
Nýr organisti
í Grafarvogi
HÁKON LEIFSSON Nýráðinn organisti
Grafarvogskirkju.
Myndlistarkonan Sara Riel dvaldi
í vetur í fjóra mánuði í kínversku
borginni Xiamen. Ferðin út var á
vegum samtakanna Chinese Eur-
opean Art Center, CEAC, sem voru
stofnuð árið 1999 af myndlistar-
konunni Ineke Guðmundsson í
samstarfi við listaháskóla þar í
borg.
Á meðan á dvölinni stóð vann
Sara að myndlist og hélt meðal
annars eina sýningu í borginni.
Sara segist hafa farið út með
opnum huga. „Í nýju landi finnst
mér byrjunarstigið ávallt vera það
að staðsetja sig. Hvað innblástur
varðar reyndi ég eftir fremsta
megni að forðast þessi augljósu
kínversku áhrif þó að ég hafi
vissulega notast við margt sem
kalla mætti klisjukennt. Ég vann
til að mynda sýninguna mína út
frá hugmyndafræðinni á bak við
tai chi, en reyndi að leyfa spekinni
að sökkva dýpra í skilninginn
frekar en að endurspegla fyrstu
áhrifin.“
Sara segist vera mikill aðdáandi
asískrar myndlistar og teikni-
mynda á borð við manga og sótti
hún innblástur sinn gjarnan þang-
að. Sara segir mörg mál enn vera
mikil tilfinningamál hjá kínversku
þjóðinni og því verði erlendir
myndlistarmenn að fara varlega
þegar þeir velja sér umfjöllunar-
efni. „Menningarbyltingin situr
enn mjög djúpt í þjóðarsálinni og
Kínverjar eru enn að takast á við
leifar maóismans. Það hefur gerst
að heimamenn hafi brugðist illa
við sýningum sem hér hafa verið
settar upp,“ segir Sara. Á þeim
tíma sem Sara dvaldi í Kína ferð-
aðist hún mikið um landið og heim-
sótti meðal annars Hong Kong.
„Þetta er svo gríðarlega stórt land
og það er varla hægt að tala um
Suður-Kína og Norður-Kína í sömu
andrá því þetta eru svo ólík land-
svæði, í raun jafn ólík og Norður-
löndin eru löndunum í Suður-Evr-
ópu. Kína er í raun land
andstæðnanna,“ segir Sara um
landið. Það er annars nóg að gera
hjá myndlistarkonunni þessa dag-
ana og undirbýr hún nú sýningu
sem verður opnuð eftir jól. „Ég er
að bíða eftir staðfestingu á sýn-
ingarrými. Sýningin mun inni-
halda þau verk sem ég gerði í Kína
ásamt nokkrum nýjum verkum,“
segir Sara að lokum. - sm
Aðdáandi asískrar myndlistar
SARA RIEL MUN SÝNA VERK SÍN EFTIR
JÓL Verkin vann hún út frá asískri hug-
myndafræði. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA