Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2008, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 30.06.2008, Qupperneq 58
26 30. júní 2008 MÁNUDAGUR Valbjarnarvöllur, áhorf.: 623 Þróttur Valur TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 21–17 (8–5) Varin skot Bjarki 2 – Kjartan 8 Horn 6–6 Aukaspyrnur fengnar 25–22 Rangstöður 2–1 VALUR 4–4–2 Kjartan Sturluson 7 Birkir Már Sævarsson 5 Atli Sveinn Þórarinss. 7 Einar Marteinsson 6 Rene Carlsen 5 Rasmus Hansen 4 Pálmi Rafn Pálmason 5 (90. Baldur Þórólfss. -) Bjarni Ólafur Eiríkss. 4 (79. Albert Ingason -) Hafþór Ægir Vilhjálms. 3 *Guðmundur Ben. 7 (67. Sigurbjörn Hreið.6) Helgi Sigurðsson 5 *Maður leiksins ÞRÓTTUR 4–5–1 Bjarki Freyr Guðm. 6 Eysteinn Lárusson - (19. Jón Ragnar Jóns. 6) Þórður Hreiðarsson 5 Michael Jackson 6 Kristján Ómar Björns 4 Rafn Andri Haralds. 5 Dennis Danry 4 Jens Sævarsson 4 (70. Andrés Vilhjálmss. -) Sigmundur Kristjáns. 7 Magnús Már Lúðvíks. 3 (61. Adolf Sveinsson 3) Hjörtur Hjartarson 5 0-1 Helgi Sigurðsson (11.) 0-2 Pálmi Rafn Pálmason (19.) 0-3 Albert Brynjar Ingason (90.) 0-3 Eyjólfur M Kristinss.(5) Kaplakrikavöllur, áhorf.: 1132 FH Fram TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 12–5 (7–3) Varin skot Daði 2 – Hannes 4 Horn 3–3 Aukaspyrnur fengnar 9–15 Rangstöður 1–4 FRAM 4–5–1 Hannes Þór Halldórss. 6 Daði Guðmundsson 7 Auðun Helgason 8 Reynir Leósson 6 Samuel Lee Tillen 7 Paul McShane 6 Ingvar Þór Ólason 6 (90. Joseph Tillen -) Heiðar Geir Júlíusson 5 (63. Henrik Eggerts 4) Halldór Hermann Jóns. 5 Ívar Björnsson 5 (90. Guðm. Magn. -) Hjálmar Þórarinsson 7 *Maður leiksins FH 4–3–3 Daði Lárusson 6 Guðmundur Sævarss.5 *Tommy Nielsen 8 Freyr Bjarnason 6 Hjörtur Logi Valgarss. 6 Dennis Siim 5 Davíð Þór Viðarsson 7 Bjarki Gunnlaugsson 4 (46. Jónas Grani 5) Matthías Guðmund. 3 (67. Atli Guðnason 6) Atli Viðar Björnsson 6 Tryggvi Guðmunds. 4 (67. Arnar Gunnlaugs. 8) 1-0 Arnar Gunnlaugsson (70.) 1-1 Auðun Helgason (78.) 2-1 Atli Viðar Björnsson (85.) 2-1 Einar Örn Daníelss. (7) Grindavíkurvöllur, áhorf.: 610 Grindavík HK TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–15 (6–7) Varin skot Zankarlo 5 – Gunnleifur 4 Horn 5–8 Aukaspyrnur fengnar 11–7 Rangstöður 4–0 HK 4–5–1 Gunnleifur Gunnleifs. 6 Atli Valsson 5 Ásgrímur Albertsson 5 Finnbogi Llorens 6 Hörður Árnason 4 Finnur Ólafsson 5 Þorlákur Hilmarsson 5 (85. Almir Cosic -) Mitja Brulc 6 Stefán Eggertsson 3 (63. Hörður Már 5) Aaron Palomares 4 (72. Hermann Geir -) Iddi Alkhag 5 *Maður leiksins GRINDAV. 4–5–1 Zankarlo Simunic 6 Michael Jónsson 5 (46. Ray Anthony 5) Marinko Skaricic 6 Zoran Stamenic 6 Jósef Jósefsson 7 Eysteinn Hauksson 5 Páll Guðmundsson 4 (84. Sveinn Þór Ste. -) *Andri Steinn B. 7 Alexander Þórarinss. 3 Scott Ramsay 7 Orri Freyr Hjaltalín 4 1-0 Andri Steinn Birgisson (4.) 1-1 Mitja Brulc (11.) 2-1 Andri Steinn Birgisson (13.) 2-2 Þorlákur Helgi Hilmarsson (79.) 2-2 Jóhannes Valgeirss. (7) FÓTBOLTI Íslandsmeistarar Vals unnu fyrsta útisigur sinn í Lands- bankadeild karla þegar þeir sóttu þrjú stig til Þróttara á Valbjarnar- völl. Guðmundur Benediktsson var kominn aftur inn í liðið og sóknarleikur liðsins lifnaði við á nýjan leik. Leikurinn var kaflaskiptur, Vals- menn höfðu algjöra yfirburði fyrsta hálftímann og komust í 2-0 eftir 19 mínútur með mörkum Helga Sigurðssonar og Pálma Rafns Pálmasonar. Meistararnir vörðust síðan vel á móti vindinum í seinni hálfleik og Valsmenn eiga því enn eftir að fá á sig mark í sumar með hinn unga miðvörð Einar Marteinsson í liðinu. Albert Ingason innsiglaði síðan 3-0 sigur- inn í lokin eftir hornspyrnu. Guðmundur Benediktsson var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu síðan í 2. umferð og það var allt annað að sjá sóknarleik Valsliðsins. „Ég er sérstaklega ánægður með fyrri hálfleikinn þar sem mér fannst við vera að spila vel á köfl- um. Það mátti búast við því að þeir kæmu brjálaðir inn í seinni hálf- leikinn með vindinn í bakið en þeir fengu ekki mörg færi þótt að það hafi legið mikið á okkur,”segir Guðmundur sem fékk spark skömmu áður en honum var skipt útaf. „Þetta er ekkert alvarlegt,” sagði Guðmundur sem var ánægð- ur með að vera kominn aftur af stað. „Það er hundleiðinlegt að horfa á fótbolta ef maður getur ekki spilað sjálfur,” segir Guðmundur og bætti við: „Nú þurfum við að byggja ofan á þetta.” Sigmundur Kristjánsson kom inn í byrjunar- liðið hjá Þrótti og tók við fyrirliða- bandinu. Hann átti fínan leik og var sískapandi. „Þetta skiptist eftir vindinum. Við vorum ekki með í fyrri hálf- leik þegar við vorum með vindinn á móti okkur en við náðum ekki að nýta það nægilega vel þegar við vorum með vindinn í bakið í seinni hálfleik. Við vorum aðeins skárri í seinni hálfleik. Við gáfum Val bara forskot í fyrri hálfleik og vorum bara að gefa þeim of mikið, af því að við vorum ekki á tánum,“ sagði Sigmundur sem byrjaði inn á í fyrsta sinn í sumar. „Það er fínt að vera kominn af stað en það er ekki gaman að byrja á 3-0 tapleik. Það er bara að vona að næsti leikur verði betri,” sagði Sigmundur. - óój Þróttarar töpuðu í 6. sinn í röð fyrir Valsmönnum á heimavelli og hafa skorað á Val í 484 mínútur í Dalnum: Innkoma Gumma Ben kveikti í Valsliðinu 2-0 Pálmi Rafn Pálmason kemur Val í 2-0 í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON STAÐAN Í DEILDINNI FH 9 7 1 1 21-9 22 Keflavík 8 6 0 2 20-13 18 Fram 9 5 0 4 10-7 15 Fjölnir 9 5 0 4 11-9 15 Valur 9 4 1 4 14-13 13 KR 8 4 0 4 15-11 12 Þróttur 9 3 3 3 13-17 12 Breiðablik 8 3 2 3 13-13 11 Grindavík 9 3 1 5 11-16 10 Fylkir 9 3 0 6 10-16 9 ÍA 8 1 4 3 7-11 7 HK 9 1 2 6 10-20 5 FÓTBOLTI Það var sannkallaður botnslagur í Grindavík í gær þegar heimamenn tóku á móti botnliði HK. Aðstæður til knatt- spyrnuiðkunar voru ekkert sér- stakar, hávaðarok og nokkuð kalt. Leikurinn var þrátt fyrir það nokkuð fjörugur en endaði með sanngjörnu jafntefli, 2-2. Grinda- vík þarf því enn að bíða eftir fyrsta heimasigrinum. Byrjun leiksins var lyginni lík- ust. Andri Steinn skoraði fyrsta markið með þrumufleyg utan teigs en það var jafnframt fyrsta mark Grindavíkur á heimavelli í sumar. Mitja Brulc jafnaði með marki beint úr aukaspyrnu sjö mínútum síðar. Grindavík lét markið ekki slá sig út af laginu og Andri Steinn skoraði aftur tveim mínútum síðar með skalla eftir hornspyrnu Ramsay. Fjögur skot komin í leiknum og þrjú þeirra í netinu. Iddi Alkhag klúðraði eina skotinu fyrir opnu marki. Hann fékk annað dauðafæri eftir 20 mín- útna leik en var aftur klaufi. Síðari hálfleikur var kafla- skiptur og liðin skiptust á að hafa yfirhöndina. Það var svo nánast allur vindur úr HK þegar Þorlák- ur Helgi jafnaði ellefu mínútum fyrir hlé með skalla af stuttu færi. HK átti síðustu mínútur leiksins en tókst ekki að skora. Bæði lið sáu því á bak tveimur stigum sem þau þurftu klárlega á að halda. „Maður er auðvitað hund - svekktur enda hefðum við átt að klára þennan leik en fáum á okkur ódýrt mark. Það er ótrú- lega dapurt hvað okkur gengur illa hérna heima og ég veit ekk- ert af hverju við erum svona slakir heima. Þetta átti að vera vopnið okkar en er ekki að virka,“ sagði markaskorarinn Andri Steinn Birgisson hundfúll. Gunnar Guðmundsson, þjálf- ari HK, var heldur ekkert sér- staklega sáttur. „Ég verð að viðurkenna að við komum hingað til þess að sækja þrjú stig og vorum ansi nálægt því. Ég get því ekki sagt að ég sé fullkomlega sáttur en ég er samt ánægður með strákana sem risu svolítið upp í dag og sýndu fram- för frá síðasta leik,“ sagði Gunn- ar sem þurfti sárlega á öllum stigunum að halda. „Ég veit að við þurfum fleiri stig en við verðum að vinna okkur út úr okkar erfiðleikum og stig hér í dag hjálpar.“ - hbg Grindavík og HK skildu jöfn í rokleik suður með sjó og HK endaði ellefu leikja taphrinu á útivelli: Bæði lið sáu á bak tveimur stigum í gær TAPHRINAN Á ENDA Þorlákur Hilmarsson jafnar fyrir HK og HK fær langþráð stig á útivelli eftir ellefu tapleiki í röð. VÍKURFRÉTTIR/ÞORGILS FÓTBOLTI FH náði fjögurra stiga forystu á Keflavík á toppi Lands- bankadeildar karla í fótbolta þegar liðið lagði Fram, 2-1, í bar- áttuleik. Fram er sem fyrr í þriðja sæti með 15 stig. Keflavík fær síðan tækifæri til þess að minnka forskotið aftur í eitt stig þegar þeir sækja Blika heim í kvöld. Fyrri hálfleikur var fremur tíð- indalítill og fátt um opin mark- tækifæri. Liðin áttu fína leikkafla til skiptis en hvorugur markvörð- urinn þurfti að taka á honum stóra sínum. Tommy Nielsen átti besta færi hálfleiksins á 41. mínútu þegar hann skallaði í slána á marki Fram. Seinni hálfleikur var mun fjör- ugri en sá fyrri en veislan byrjaði ekki fyrr en Arnar Gunnlaugsson kom inn á sem varamaður á 67. mínútu. Arnar skoraði fyrsta mark leiksins þrem mínútum síðar með góðu skoti beint úr aukaspyrnu. Framarar voru vel skipulagðir en sóttu á fáum mönnum og fengu fá marktækifæri í leiknum. Engu að síður tókst þeim að jafna þegar Auðun Helgason fyrrum leikmað- ur FH skallaði fyrirgjöf Samuels Tillen í netið, 1-1, „Við mætum ekki hingað og sækjum eins og brjálæðingar á útivelli,“ sagði Auðun Helgason um sóknarleik Fram. „Þeir spiluðu mjög vel og við spiluðum að sama skapi ekkert sérstaklega vel á köflum. Þetta var of hægt hjá okkur. Sérstaklega til að byrja með en við lönduðum þessu. Við leyfðum þeim að svæfa okkur. Þeir vilja helst að spilaður sé hægur bolti og það gerði það að verkum að það var lítill hraði í leiknum,“ sagði Davíð Þór Viðars- son að leik loknum. Atli Viðar Björnsson tryggði FH sanngjarnan, 2-1, sigur á 85. mín- útu en toppliðið þurfti virkilega að hafa fyrir sigrinum. Það voru skiptingar Heimis Guðjónssonar sem gerðu gæfumuninn fyrir FH. Tekur mark Fram alveg á sig „Skiptingarnar hjálpuðu til, þeir sem fóru út af eru klassaleikmenn líka en það virkaði ágætlega að fá hressaa fætur inn. Það kom meiri hraði í leikinn,“ sagði Davíð Þór sem tók mark Fram algjörlega á sig. „Þeir fengu eiginlega engin færi og það getum við verið ánægðir með. Þeir skoruðu samt mark sem var mér að kenna þar sem ég átti að dekka Auðun. Það er eins og það er. Maður klikkar stundum.“ Auðun Helgason mætti fyrrum félögum sínum í FH en hann sagði það ekki hafa haft nein áhrif á sig að mæta uppeldisfélagi sínu. „Það er erfitt að spila á móti FH en ég fer í alla leiki eins. Ég er mjög ein- beittur hvort sem það er á móti FH eða einhverjum öðrum. Það er alltaf gaman að spila hérna en ég er svekktur yfir að tapa. Ég hefði viljað eitt stig. Eins og á móti Val voru þeir ekki að spila neitt sér- staklega en þetta fellur þeirra megin,“ sagði Auðun Helgason ósáttur við að yfirgefa Kaplakrika stigalaus. -gmi FH með fjögurra stiga forskot Topplið FH marði baráttuglaða Framara í toppslagnum í Kaplakrika þar sem öll þrjú mörkin komu á síð- ustu tuttugu mínútunum. Atli Viðar Björnsson tryggði FH-ingum sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok. MARKASKORARAR FH Alti Viðar Björnsson og Arnar Gunnlaugsson fagna mörkum sínum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SIGURMARKIÐ Atli Viðar Björnsson tryggir FH sigur á Fram í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.