Fréttablaðið - 04.07.2008, Page 8
8 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
KÓLUMBÍA, AP Ingrid Betancourt, fyrrverandi
forsetaframbjóðandi í Kólumbíu og frægasti
gísl vinstrisinnuðu uppreisnarhreyfingarinnar
FARC, faðmaði börn sín tvö í gær í fyrsta sinn
eftir sex ára prísund í frumskóginum. Betan-
court og fjórtán öðrum gíslum var bjargað í
fyrrakvöld í þaulskipulagðri aðgerð Kólumbíu-
hers.
„Nirvana, paradís – það hlýtur að vera mjög
svipað þeirri tilfinningu sem ég finn á þessari
stundu,“ sagði Betancourt og barðist við að halda
aftur af táraflaumi er sonur hennar teygði sig til
að kyssa hana. „Það var barna minna vegna sem
mér tókst að halda í viljann til að komast út úr
þessum frumskógi.“
Börn Betancourt, 19 ára sonurinn Lorenzo og
22 ára dóttirin Melanie, hafa búið í Frakklandi
frá því að hún hvarf þegar hún var á kosninga-
ferðalagi árið 2002. Þau komu til Bogota með
þotu frönsku ríkisstjórnarinnar. Með í för voru
einnig fyrrverandi eiginmaður Betancourt, syst-
ir hennar og franski utanríkisráðherrann Bern-
ard Kouchner. Hin endursameinaða fjölskylda
verður flutt í sömu vél til Frakklands í dag.
Betancourt er bæði franskur og kólumbískur
ríkisborgari og Nicolas Sarkozy Frakklandsfor-
seti hafði lýst það forgangsmál að fá hana lausa
úr gíslingu.
Betancourt, þrír bandarískir verktakar og ell-
efu kólumbískir hermenn og lögreglumenn sem
höfðu um árabil verið gíslar FARC sluppu úr
prísundinni með ævintýralegum hætti í fyrra-
kvöld. Með hjálp njósnara innan raða stjórnenda
FARC tókst að fá verði gíslanna til að trúa því að
til stæði að flytja gíslana til fundar við æðstu
menn FARC vegna meintra samningaviðræðna
um fangaskipti. Þeir hjálpuðu því sjálfir grun-
lausir til við að koma gíslunum um borð í ómerkt-
ar þyrlur sem sendar voru eftir þeim, enda varð
ekki betur séð en að þyrlunum stjórnuðu FARC-
liðar.
Þegar í loftið var komið kom í ljós að þyrlurn-
ar og áhafnirnar tilheyrðu kólumbíska hernum;
FARC-verðir gíslanna voru afvopnaðir og fjötr-
aðir en gíslarnir losaðir úr fjötrum sínum.
„Þyrlan var nærri því að hrapa því við kunnum
okkur ekki læti, hoppuðum, öskruðum, grétum
og föðmuðum hvert annað,“ sagði Betan court er
hún lýsti flugferð gíslanna á vit frelsisins.
Með lausn gíslanna, einkum og sér í lagi útlend-
inganna fjögurra, hefur FARC verið svipt mikil-
vægustu trompunum sem hreyfingin bjó enn
yfir og gat beitt í samningaviðræðum við stjórn-
völd. audunn@frettabladid.is
ENDURFUNDIR Melanie, dóttir Ingrid Betancourt, kyssir
móður sína við endurfundi þeirra á flugvellinum í
Bogota í gær. Sonurinn Lorenzo stendur hjá.
NORDICPHOTOS/AFP
Ingrid Betancourt og fleirum bjargað úr prísund með hjálp njósnara án þess að skoti væri hleypt af:
Frelsun gísla mikið áfall fyrir FARC
1. Um hversu mörg stöðugildi
var fækkað hjá RÚV ohf. á
dögunum?
2. Hve hátt er heildaraflamark
í þorski á næsta fiskveiðiári?
3. Hvaða hljómsveit mun frum-
flytja nýtt tónverk eftir Benna
Hemm Hemm í Háskólabíói á
mánudag?
SJÁ SÍÐU 38
SAMGÖNGUR Frítt verður í strætó
fyrir námsmenn í Reykjavík
skólaárið 2008 til 2009. Þetta
samþykkti borgarráð á fundi
sínum í gærmorgun. Viðbótar-
kostnaður vegna verkefnisins er
samtals 270 milljónir króna.
Á skólaárinu 2007-2008 var frítt
fyrir framhalds- og háskólanema
en sá samningur gilti einungis til
1. júní. Með þessari nýju sam-
þykkt borgarráðs verður fram-
lenging á verkefninu.
Verkefnið er kallað Frítt í
strætó en markmið þess er að efla
ímynd almenningssamgangna á
höfuðborgarsvæðinu. - vsp
Strætisvagnar í Reykjavík:
Nemendur fá
áfram ókeypis
STRÆTÓ Frítt verður í strætó fyrir náms-
menn í Reykjavík á næsta skólaári.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
PÓLLAND, AP Forsætisráðherra
Póllands átti í gær fund með
sendiherra Bandaríkjanna í
Varsjá, daginn
eftir að
erindrekar
beggja ríkja
greindu frá því
í Washington að
grundvallar-
samkomulag
hefði náðst um
að koma fyrir
bandarískum
eldflaugavörnum í Póllandi.
Donald Tusk forsætisráðherra
hefur sagt að samkomulag um að
koma upp gagneldflaugaskotstöð
fyrir hið hnattræna eldflauga-
varnakerfi Bandaríkjamanna
myndi gagnast öryggi Póllands.
Pólverjar hafa farið fram á aukna
hernaðaraðstoð frá Bandaríkja-
mönnum í tengslum við hýsingu
eldflaugavarnastöðvarinnar. - aa
Eldflaugavarnir í Póllandi:
Grunnsam-
komulag í höfn
DONALD TUSK
VIÐSKIPTI Verslunin 66°Norður
opnar tvær nýjar búðir í Dan-
mörku í haust.
Önnur þeirra verður í Nörre-
port í Kaupmannahöfn en hin í
Magasin du Nord í Árósum.
Fyrirtækið hóf nýverið
samstarf við danska herinn.
Gerður var samningur á milli
66°Norður og hersins varðandi
kaup á fatnaði fyrir eina af
herdeildum hans.
Um er að ræða Sirius-herdeild-
ina en hún starfar að vörnum í
óbyggðum nyrsta hluta Græn-
lands. - hþj
Útrás 66°Norður í Danmörku
Tvær verslanir
opnaðar í haust
Lét bróðurinn flytja e-töflur
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið
ákærður fyrir fíkniefnalagabrot, en
hann keypti 47 e-töflur í Reykjavík
í nóvember síðastliðnum og fékk
bróður sinn til að flytja töflurnar til
Akureyrar undir því yfirskini að um
stera væri að ræða.
DÓMSMÁL
VEÐUR Júnímánuður var óvenju
sólríkur og þurr í Reykjavík. Hiti
var einnig vel yfir meðallagi,
meðalhiti mældist 10,6 stig sem
er svipað og undanfarin þrjú ár
eftir upplýsingum frá Veðurstofu
Íslands.
Júní var hins vegar sá kaldasti
á Akureyri frá 2001, meðalhiti
var 9,1 stig sem þó er í meðallagi.
Norðaustlæg átt var ríkjandi í
mánuðinum með hlýindum um
sunnan- og vestanvert landið og
hita lítillega yfir meðallagi við
sjóinn norðan- og austantil á
landinu en kaldara var þar inn til
landsins. - ht
Gott veður í höfuðborginni:
Óvenju sólríkt
og þurrt í júní
AUSTURVÖLLUR Veðrið lék við borgar-
búa mestallan júní.
FÆREYJAR Alþjóðahafrannsókna-
ráðið, ICES, hefur annað árið í
röð lagt til að engar þorskveiðar
verði í lögsögu Færeyja á næsta
fiskveiðiári. Hrygningarstofninn
sé nú orðinn minni en nokkru
sinni frá því mælingar hófust árið
1961. Tórbjörn Jakobsen, sem fer
með sjávarútvegsmál í færeysku
landstjórninni, hefur boðað til-
lögu um fimmtíu prósentum
minni þorskveiði.
Útlitið er reyndar einnig mjög
alvarlegt fyrir aðrar botnfisk-
stegundir við Færeyjar. ICES
leggur til að engin ýsa verði veidd
á næstu vertíð og að sóknin í ufsa
verði minnkuð um fimmtung.
Unnið er að tillögum að sóknar-
marki næsta fiskveiðiárs í fær-
eyska sjávarútvegsráðuneytinu.
Að því er Andreas Kristiansen,
deildarstjóri í ráðuneytinu, upp-
lýsir í samtali við Fréttablaðið
verður tillagan lögð fram í Lög-
þinginu 29. júlí, en í Færeyjum er
lokaákvörðunin um sóknar- og
aflamark í höndum þingsins, á
grundvelli tillögu sjávarútvegs-
ráðherrans.
„Þetta eru erfiðir tímar og enn
erfiðari framundan. Það er hrein
nauðsyn að minnka sóknina til að
stofnarnir geti endurnýjað sig,“
segir Kristiansen.
- aa
Botnfisksstofnar í lögsögu Færeyja mælast í sögulegri lægð:
Boða mikinn niðurskurð veiða
FÆREYJAR Deildarstjóri í sjávarútvegs-
ráðuneyti Færeyja segir erfiða tíma fram
undan.
BERLÍN, AP Bandaríkjamenn hafa
langminnst aðhafst til að stemma
stigu við hlýnun loftslags, í
samanburði við hin sjö mestu
iðnveldi heims í G8-hópnum
svonefnda. Þetta kemur fram í
skýrslu sem birt var í gær í
tilefni af leiðtogafundi G8, sem
fer fram í Japan eftir helgi.
Framkvæmdastjóri loftslags-
áætlunar alþjóðlegu náttúruvernd-
arsamtakanna WWF í Þýskalandi
sagði að ef leiðtogarnir vildu sýna
af sér ábyrgð yrðu þeir að
skuldbinda lönd sín til að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda um
40 prósent fyrir árið 2020 og 80
prósent fyrir árið 2050. - aa
G8-iðnveldahópurinn:
Bandaríkja-
menn skussar
Skemmdir unnar á flugskýli
Brotist var inn í flugskýli á flugvell-
inum á Kópaskeri í fyrrakvöld og
skemmdir unnar þar innandyra.
Flugskýlið er notað sem geymsla en
lögregla taldi ekki verðmætum stolið,
aðallega hafi verið um skemmdarverk
að ræða. Málið er í rannsókn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
EFNAHAGSMÁL „Þessi ákvörðun sendir þau skilaboð að
róðurinn verði áfram þungur,“ segir Bjarni Bene-
diktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um
óbreytta stýrivexti Seðlabankans.
Bankastjórn Seðlabankans tilkynnti í gær að vextir
yrðu áfram 15,5 prósent. „Brýnasta viðfangsefnið er
enn sem fyrr að ná tökum á verðbólgunni,“ sagði
Davíð Oddsson seðlabankastjóri.
Ákvörðun bankans kom engum viðmælanda
Fréttablaðsins á óvart.
„Ég harma að stýrivaxtalækkun fari ekki að líta
dagsins ljós,“ segir Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins. „Það hefði kallað á bjartsýni og
nýja von.“
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna,
segist óttast vont haust og verri vetur. Ríkisstjórnin
ætti að gá að sér. „Það er ekki víst að hún kembi
hærurnar í haust ef menn hafa ekki fengið það á
tilfinninguna að hún nái tökum á ástandinu.“
Gunnar Svavarsson, þingmaður Samfylkingarinnar,
segir það alltaf slæmt þegar vextirnir séu háir,
krónan gefi eftir og verðbólgan sé mikil.
„Atvinnulíf fær ekki fé frá fjármálastofnunum og
róðurinn er að þyngjast,“ segir Vilhjálmur Egilsson
hjá Samtökum atvinnulífsins. „Ég tel að bankinn hafi
haft ærið tilefni til að lækka vexti núna segir
Vilhjálmur.“
Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka
iðnaðarins, telur hugsanlegt að Seðlabankinn hafi
áhyggjur af vinnumarkaðnum og haldi vöxtum háum
til að draga úr væntingum um launahækkanir. Hann
telur að mikill verðbólguþrýstingur geti komið frá
vinnumarkaðnum á komandi mánuðum vegna
kaupmáttarskerðingar að undanförnu og launakröfur
geti farið úr böndunum.
Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur Alþýðusam-
bandsins, segir að forsendur kjarasamninga bresti.
„Það er forgangsmál að skapa aðstæður svo hægt sé
lækka stýrivexti því fyrirtæki og heimili geta ekki
búið við þessar aðstæður til lengri tíma.“
bjornthor@markadurinn.is
Áfram þungur róður
Stýrivaxtalækkun hefði vakið nýja von, segir formaður Framsóknarflokksins.
Ríkisstjórnin þarf að vara sig í haust, segir formaður Vinstri grænna. Vonbrigði
að ekki hafi tekist að slá á verðbólguna, segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
BANKASTJÓRN SEÐLABANKANS Óbreyttir stýrivextir komu
engum viðmælenda Fréttablaðsins á óvart. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Við hefðum kosið að sjá lækkun. Hagkerfið kólnar nú
hratt meðal annars vegna alþjóðlegu lánsfjárkrísunnar,
minni hagvaxtar á heimsvísu, loka stóriðjuframkvæmda
fyrir austan, minni aflaheimilda og hækkunar á verði hrá-
vöru,“ segir Lárus Welding, forstjóri Glitnis.
Hann segir að svo virðist sem Seðlabankinn sé með
ákvörðun sinni að reyna að bregðast við aðstæðum í ytra
umhverfi sem séu ekki á hans valdi. ,,Með því að halda
vaxtastigi svo háu tekur hann vissa áhættu með að keyra
hagkerfið niður í meiri lægð en þörf er fyrir til að tryggja
að verðbólgumarkmiðið náist,“ segir Lárus.
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, segir
það vonbrigði að Seðlabankinn ætli að halda vöxtunum
háum nokkuð lengi. ,,Það er að hægja það hratt á efna-
hagslífinu að það er ekki skynsamlegt að vera með þetta
háa vexti,“ segir Sigurjón. Hann segir að svo virðist sem
Seðlabankinn sé tregur við að hefja vaxtalækkunarferli af
ótta við stöðu krónunnar. ,,Þegar vegin er saman hættan á
því að króna lækki og síðan að halda stýrivöxtum háum og
það lengi þá hallast ég að því að það sé meiri áhætta að
halda vöxtunum háum heldur en að hefja vaxtalækkunar-
ferlið,“ segir Sigurjón.
,,Það er jákvætt að þeir hækkuðu ekki vexti. Við teljum
það hins vegar nauðsynlegt að fara að hefja fyrstu skrefin
í vaxtalækkunarferli. Þegar það hefst er mikilvægt að það
gerist í myndarlegum skrefum,“ segir Ingólfur Helgason.
forstjóri Kaupþings. Þrátt fyrir að boðað hafi verið að
vaxtalækkunarferlið myndi ekki hefjast fyrr en í byrjun árs
2009 hafi Seðlabankinn ekki útilokað að það hæfist fyrr.
- as
EKKI Á VALDI SEÐLABANKANS
VEISTU SVARIÐ?