Fréttablaðið - 04.07.2008, Síða 38
díana mist
bland
í gær og á morgun ...
FÖSTUDAGUR
Þeir sem langar að prófa eitthvað öðruvísi ættu
að skella sér til Vestmannaeyja þar sem Gos-
lokahátíðin fer fram. Margir segja að þetta sé
mun betri skemmtun en að fara á þjóðhátíð.
MÁNUDAGUR
Uppistandarinn Snorri Hergill treður upp á Organ. Þar
ræðir hann uppvöxt sinn í Noregi, lífið í London, það
að rekast á Jude Law, Jörund hundadagakonung og
heimsyfirráð lundans. Sýningin hefst kl. 20.30.
H
E
L
G
IN
Gítarnögl. Þetta
er mikilvægt tól
til þess að spila
á gítarinn.
Míkrófónn. Þó svo að þetta sé ekki
nauðsynlegur hlutur með gítarnum
er þetta mikilvægt til þess að hljóð-
rita.
Míkró-
fón-
statíf.
Það er
svo erf-
itt að halda á
mæknum meðan
að maður er að
spila á gítarinn,
því fylgir þetta
fast á eftir
mæknum.
Mac-tölva. Tölvu-
væðing nútímans
er með ólíkindum
og Mac-tölvur eru
alveg ómissandi hluti lífsins.
Pro Tools er ein skemmtilegasta
uppfinningin að mínu mati, því
það er hægt að taka upp demó
og jafnvel fullkláruð lög á
þessa græju hvar og hve-
nær sem er í heiminum.
Mixer er auðvitað alltaf í miklu uppáhaldi hjá tónlistarfólki, því þetta
gerir manni kleift að stilla allt saman af þegar maður er að spila eða
taka upp.
Barstóll. Ég er auðvit-
að með barstóla í eld-
húsinu hjá mér, en þar
tek ég upp demóin
mín, síðan er bara svo
gott að spila á gítar á
barstól.
Kaffibolli. Að hafa kaffibolla er eitt
af lykilatriðunum þegar maður er að
skapa eitthvað.
TOPP
10
Brynjar Már
Valdimarsson,
tónlistarmaður
og tónlistar-
stjóri á FM957
Gítar er mitt uppáhaldstæki.
Ég gæti verið rólegur á
eyðieyju með einn slíkan og
skemmt mér konunglega.
Hátalarar, þeir eru mikilvægir við allar
aðstæður.
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008
Ég trúði varla mínum eigin augum
þegar ég uppgötvaði að það væri sól
tuttugasta daginn í röð og áður en
ég vissi af var ég komin í bikiníbux-
ur einar fata og lögst á svalagólfið til
að ná smá „tani“ áður en ég færi að
undirbúa partí til heiðurs sjálfri mér.
Meðan ég lá þarna á svalagólfinu fór
ég yfir allt áfengið sem ég ætti eftir
að kaupa fyrir kvöldið því það er fátt
ömurlegra en partí með of litlu áfengi.
Þegar ég var búin að liggja á svölun-
um heyrði ég að nágranni minn, eldri
týpan, var kominn út og með tilheyr-
andi Spánartónlist sem glumdi um
allt hverfið. Ég var þó viss um að mitt
partí myndi yfirgnæfa hans og prófaði
að hækka vel í nýju hátölurunum, sem
svínvirkuðu!
Klukkan sex voru vinkonur mínar
mættar og farnar að sturta í sig heima-
tilbúnum margarítum. Seinna um
kvöldið, þegar Páll Óskar var kominn
á hæsta styrk, ein komin úr kjólnum
til að ná betri stöðu í handahlaupi og
önnur búin að læsa sig inni á klósetti,
bankaði löggan upp á og bað um að
íbúðin yrði rýmd nú þegar. Eftir ítrekað
blikk og vingjarnlegheit sáum við að
þetta var algerlega töpuð barátta og
því héldum við á B5. Þar voru Beggi
og Pacas í geðveiku stuði ásamt Inga
í Lúmex, Munda verkfræðingi í Glitni,
Lilju hjá Remax og Hönnu Stínu. Eftir
að hafa haldið áfram í fimleikakeppn-
inni á gólfinu á skemmtistaðnum var
stefnan tekin á Tunglið þar sem við
dönsuðum frá okkur allt vit.
LAUGARDAGUR 28.JÚNÍ
Fokk, hvar er ég? Þegar ég opnaði
augun var mér litið upp í loftið sem
var veggfóðursklætt, síðan renndi
ég augun yfir herbergið. Eftir ígrund-
aða yfirferð komst ég að því að ég var
stödd í hjólhýsi. Rétt í þessu heyrði
ég að einhver var að prófa hátalara-
kerfi fyrir utan og röddin endurtók,
einn tveir, einn tveir, endalaust. Ef það
hefði verið fyrsta helgin í júlí eða versl-
unarmannahelgin hefði mér kannski
ekki brugðið en í allri þynkunni fór ég
að velta því fyrir mér á hvaða krumma-
skuði væri útihátíð. Þegar ég kom til
sjálfrar mín létti mér þegar ég fattaði
að ég var enn þá í öllum fötunum. Rétt
í þessu var hurð hjólhýssins lokið upp
og inn kom svo sólbrúnn
gæi að hann glans-
aði næstum því eins
og leður-
sófi og bauð mér góðan daginn. Af
fatnaðnum og strípunum að dæma
kom ekkert annað til greina en að ég
hefði hnotið um hann á Tunglinu en
einhvern veginn gat ég ekki fengið
mig til að viðurkenna það og það eina
sem hrökk upp úr mér hvort maður-
inn ætti nokkuð kók. Hann játti því
og kom með tveggja lítra flösku sem
var hálfnuð. Þegar ég dró appelsínu-
gulu gardínurnar frá glugganum kross-
brá mér. Ég var stödd í Laugardaln-
um. Ég reyndi að eiga sem fæst orð
við sólbrúna gæjann en komst ekki
hjá því þegar ég fattaði ég var tösku-
laus og allslaus, enginn sími og ekki
neitt. Ég spurði hann hvað klukk-
an væri og þá kom í ljós að hún var
hálfsjö um kvöldið og útitónleikar
Bjarkar og Sigur Rósar í þann mund
að hefjast. Ég ákvað að láta þetta
ekki stoppa mig, þurrkaði framan úr
mér og kvaddi. Þegar ég labbaði í
gegnum tónleikasvæðið sá ég nokkur
andlit sem ég kannaðist við. Þar var
Orri Hauksson ex Síminn að drekka
kampavín úr Bangsímonglösum ásamt
félögum sínum. Þar var líka Kristín Eva
Ólafsdóttir grafískur hönnuður, Henný
Sif Bjarnadóttir í 17 ásamt fleirum. Ég
var svo fegin þegar ég labbaði óvart í
fangið á vinkonu minni að ég heimtaði
að hún keyrði mig heim. Hún var ekk-
ert smá hissa að sjá mig og sem betur
fer hitti ég engan sem vinnur með mér
í bankanum, það hefði verið mega-
bömmer. Þegar ég náði að komast inn
í blokkina tók ég eftir því að taskan
mín var á hurðarhúninum.
Vinkona mín skipaði mér að fara
í sturtu og halda áfram stuðinu, ég
mætti ekki láta hjólhýsagistingu
skyggja á gleðina. Á Ölstofunni þetta
kvöld voru Lára Ómarsdóttir og Hrönn
Kristinsdóttir. Næsta stopp var Boston
sem var þéttsetinn af öllu náttúrulega
fólkinu. Þar var Björk, Jónsi í Sigur
Rós og allt það gengi, Aftur systir,
Sammi í Jagúar, Krummi í Mínus og
Ásgerður Júníusdóttir. Ég var þó ekki
í neinu sérstöku stuði og fór snemma
heim.
14 • FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008