Fréttablaðið - 04.07.2008, Blaðsíða 45
FÖSTUDAGUR 4. júlí 2008 21
UMRÆÐAN
Sigurður Helgason skrifar um
umferðaröryggi
Fyrstu helgi í júlí og raunar júlí-mánuðurinn hefur haft í för
með sér mikinn fjölda alvarlegra
umferðarslysa á undanförnum
áratug. Ástæðan liggur í augum
uppi. Mjög margir leggja land
undir fót og oft ferðast fólk um
ókunnar slóðir sem krefst mikillar
athygli og einbeitingar.
Ekki er óalgengt að nýliðar í
akstri, ungt fólk með nýtt ökuskír-
teini fari út á þjóðvegina um þessa
helgi. Margir fá fyrstu sumar-
launin um mánaðamótin og hugsa
sér gott til
glóðar innar að
gera eitthvað
skemmtilegt.
Og við því er
ekkert að segja
sé varlega farið.
En sú er því
miður ekki allt-
af raunin. Tak-
mörkuð reynsla
leiðir oft til þess
að meiri áhætta
er tekin en fólk ræður við. Sú
áhætta reynist afdrifarík í allt of
mörgum tilvikum. En spurningin
sem rétt er að spyrja sig er: Hvað
geta ökumenn gert til að lágmarka
líkur á að þeir lendi í slysi? Og með
hvaða hætti er hægt að draga úr
hættu á alvarlegum áverkum?
Til að minnka líkur á að menn
lendi í slysi skiptir mestu að vera
með fulla athygli við aksturinn.
Óvarlegt er að fara af stað séu
menn þreyttir og illa upplagðir. Að
virða hámarkshraðareglur er eitt
af grundvallaratriðunum til að
auka umferðaröryggi. Ef allir virtu
hámarkshraðareglur myndi alvar-
legum slysum hér á landi fækka
umtalsvert. Og með hóflegum
hraða vinnst annað. Bíllinn eyðir
mun minna eldsneyti heldur en
ella, sem hefur í för með sér
umtalsverðan sparnað á tímum
nánast daglegra hækkana á bensíni
og olíu. Og þar að auki leiðir minni
eldsneytisnotkun til minni meng-
unar. Þannig má segja að það hafi
marga kosti.
Í skýrslu rannsóknanefndar
umferðarslysa sem birt var nýlega
kemur fram að stór hluti þeirra
ökumanna og farþega í bílum sem
látist hafa í umferðarslysum á
undanförnum árum hafi ekki haft
bílbelti spennt. Að mati nefndar-
innar eru miklar líkur á að bjarga
hefði mátt lífi 42 manna á síðasta
áratug hefðu þeir verið með bíl-
beltin spennt. Bílbeltanotkun
kemur ekki í veg fyrir að menn
lendi í slysum, en dregur stórlega
úr líkum á alvarlegum áverkum.
Akstur undir áhrifum vímuefna
er mjög algeng orsök alvarlegra
umferðarslysa. Allir sem haft geta
áhrif til að koma í veg fyrir að fólk
aki af stað eftir neyslu áfengis eða
annarra vímuefna eiga að reyna að
koma í veg fyrir það, en ella
hringja til Neyðarlínunnar. Síma-
númerið þar er 1-1-2. Starfsmenn
hennar koma síðan skilaboðum til
viðkomandi lögregluyfirvalda. Sá
sem ekur ölvaður og veldur slysi
er algjörlega réttlaus gagnvart
tryggingabótum og þannig getur
ölvunarakstur sett fjárhag hans í
uppnám til langrar framtíðar.
Júlí er sá mánuður þar sem flest
slys eiga sér stað. Það er undir
ökumönnum komið hvort þeirri
þróun verði snúið við. Og viti
menn: Það er hægt.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Nei, étt‘ann sjálfur Jón
Kaldal
Jónína Óskarsdóttir, bókavörður og
húsmóðir skrifar:
Athugasemd vegna leiðara Fréttablaðs-
ins 29. júní. Enn einu góðærinu er víst
lokið og enn ein niðursveiflan tekin við
þrátt fyrir stöðugleikaloforð stjórnvalda
og verði þeim að góðu sem finna
muninn. Ástæða þessarar greinar er
að enn einu sinni á að skella sökinni
á „mig“. Nú af ritstjóra Fréttablaðs-
ins Jóni Kaldal í leiðara á dögunum.
Þar vildi hann finna sökudólg vegna
efnahagsástandsins og fann hann í
speglinum sínum og sagði að ég gæti
gert það líka. Ekki það að þetta sé
nokkuð frumlegt eða óvenjulegt að
heyra. Þetta er gömul og ný lumma
sem slummað hefur verið framan í
almenning og þar með er skýringin
fundin á óstjórn og hruni þjóðarbúsins
og ... allir sáttir? Nei takk!
Ég og annað láglaunafólk, með
150.000 á mánuði og margir með
minna, frábiðjum okkur meinta setu
við veisluborð Jóns Kaldal og hans
sessunauta. Hann er aftur á móti
velkominn að okkar borði þar sem
málið snýst alltaf um að ná og ná
ekki endum saman jafnt í meintu
góðæri sem hallæri. Við mitt borð
situr fólk í ýmsum störfum þjóðfélags-
ins, ungir og gamlir. Meint góðæri
birtist okkur láglaunafólki sem erum
húseigendur aðallega í því að eignirnar
okkar hækkuðu í verði þannig að við
gátum étið/veðsett þær meira til að
ná endum saman í heimilishaldinu.
Sú staðreynd sem stór hópur þessa
samfélags býr við er að við höfum og
höfðum ekki ráð á neinum munaði.
Utanlandsferðum fjölgaði reyndar með
lággjaldaflugi. Voru áður jafnvel aðeins
tvær á 22 árum, varalitur er munaðar-
vara, nýir skór setja fjármálin í uppnám
og tannlæknakostnaður kollvarpar
heimilisbókhaldinu. Listahátíð, hvað
er nú það? Leikhúsin? Jú, gaman að
lesa gagnrýnina í blöðunum. Fínt að fá
ókeypis Fréttablað. Bílastæðavandinn
löngu úr sögunni.
Ekki má samt gleyma ágústmánuði
því þá er vonarveisla. Hvað verða
vaxtabæturnar í ár? Þær eru afréttari
fjölskyldunnar og barnabætur hjá þeim
sem þær fá. Hvar getum við láglauna-
fólk sparað? Svarið er alltaf í okkar eina
og mikla lúxus sem er MATUR. Og,
hvað á að spara þar? Kannski bakarís-
brauðið og nammi og gos á kvöldin?
Fleira er oft ekki í stöðunni. Jú, minnka
eða hætta að gefa jólagjafir. Ekki er
hægt að minnka við sig húsnæði og
fara í ódýrara því íbúðir seljast ekki.
Verðtryggðu lánin hækka nú ört og
það gengur ekki til baka ef að líkum
lætur. Við munum borga brúsann um
ókomin ár.
Verðtrygging launa hlýtur að vera
krafa okkar nú til að ráða við þær
hækkanir? Við verðum líka að fara að
nýta hæft og til þess menntað fólk í
fjármálastjórn landsins. Ástand sem
þetta er þó verulega kunnuglegt okkur
sem komin erum um og yfir miðjan
aldur. En, Jón Kaldal! Nú segi ég ekki
„sama og þegið“. „Ég“ sat ekki við
veisluborðið og finnst því ósanngjarnt
að eigna mér timburmennina ykkar.
SIGURÐUR
HELGASON
Það er hægt að koma í veg fyrir flest slys
Como 4 manna
Fjölskyldutjald með tveimur svefntjöldum.
Fortjald er á milli svefntjaldanna.
Tveir inngangar.
Verð 17.990 kr.
Tilboð: 14.990 kr.
Einnig til 6 manna.
Verð: 19.990 kr.
Jasper 5 manna
Opnast á tvo vegu. Stórt fortjald með dúk.
Verð 39.990 kr.
Tilboð: 34.990 kr.
Galaxy 6 manna
Braggatjald með tveimur svefntjöldum.
Stórt fortjald með dúk á milli svefntjaldanna.
Verð 44.990 kr.
Tilboð: 38.990 kr.
Tjaldaland
Útilífs
er við
hliðina á
TBR-höllinni
Troðfull flöt af
uppsettum
tjöldum!
SUÐURLAN
DSBRAUT
SUÐURLAN
DSBRAUT
GNOÐAR
VOGUR
GLÆSIBÆ
R
T
B
R
1
T
B
R
2
Á
L
F
H
E
IM
A
R
G
R
E
N
S
Á
R
S
V
E
G
U
R
Tjaldaland
í góðu tjaldi
Njóttu sumarsins
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
42
93
1
07
/0
8
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Malaga 6 manna
Fjölskyldutjald með
tveimur svefntjöldum.
Verð 34.990 kr.
Andros 6 manna
Fjölskyldu-braggatjald með tveimur
svefntjöldum. Stórt fortjald með dúk.
Öflugar álsúlur.
Verð 42.990 kr.