Fréttablaðið - 04.07.2008, Side 46

Fréttablaðið - 04.07.2008, Side 46
22 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR timamot@frettabladid.is SPÆNSKA LEIKKONAN VICTORIA ABRIL ER 49 ÁRA Í DAG „Ég er lítil og venjuleg stelpa og mína sögu hefur enginn áhuga á að segja, sem er ágætt því ég myndi ekki nenna að leika sjálfa mig.“ Victoria er fræg fyrir leik sinn í myndinni ¡Átame! eftir Pedro Almodóvar en Íslendingar þekkja hana eflaust betur fyrir hlutverk sitt í 101 Reykjavík. Hún hefur verið tilnefnd átta sinnum til Goya-verðlaunanna og hlotið þau einu sinni. Þennan dag árið 1865 kom fyrsta bókin um Lísu í Undralandi út í Englandi. Höfundur bókarinnar, Charles Lutwidge Dodgson, skrifaði bækurnar undir dulnefninu Lewis Carroll. Bókin er sú fyrsta í bókaröð sem segir frá Lísu, sem hefur frjórra ímyndunarafl en flestir. Sagan um Lísu er uppfull af þrautum, rökvill- um, mótsögnum og öðrum heim- spekilegum vangaveltum höfund- arins. Frásagnarformið var bylting- arkennt á sínum tíma og hefur haft mikil áhrif á bókmenntasöguna. Dodgson fékk hugmyndina að Lísu þegar hann var í bátsferð ásamt vini og þremur ungum frænkum sínum, Lorinu, Alice og Edith. Til að skemmta stúlkunum sagði hann þeim sögu um unga stúlku að nafni Alice sem leiddist ógurlega og hélt af stað í leit að ævintýrum. Stúlkurnar voru yfir sig hrifnar og Alice bað frænda sinn um að skrifa söguna niður. Tveimur árum síðar gaf hann frænku sinni handritið að Alice´s Adventures Under Ground. Dodg- son skrifaði annað og ýtarlegra eintak af sögunni sem hann sendi til útgefanda. John Tenniel sem myndskreytti bókina var ósáttur við gæði útgáfunnar. Upplagið var því eyðilagt og nýtt og betrumbætt gefið út ári síðar. Bókin seldist upp á skömmum tíma. Meðal þeirra fyrstu sem keyptu bókina voru Oscar Wilde og Viktoría drottning. Bókin hefur verið þýdd yfir á 125 tungumál en aðeins 23 eintök eru til í dag af upprunalegu útgáfunni. ÞETTA GERÐIST: 4. JÚLÍ 1865 Lísa í Undralandi kemur út MERKISATBURÐIR 1685 Halldór Finnbogason er brenndur á báli á Þing- völlum fyrir að snúa Faðir- vorinu upp á andskotann. Þetta er síðasta galdra- brennan hér á landi. 1810 Frakkar hernema Amster- dam. 1827 Þrælahald er afnumið í New York-ríki. 1971 Safnahúsið í Borgarnesi er formlega tekið í notkun. 1973 Margrét Danadrottning og Hinrik prins koma í opin- bera heimsókn til Íslands og dvelja hér í fjóra daga. 1977 Hreinn Halldórsson setur Íslandsmet í kúluvarpi þegar hann kastar 21,9 metra. Hann er þar með einn þriggja manna sem kasta yfir 21 metra þetta árið. Núna um helgina verður Ólafsvíkur- vaka endurvakin eftir fjórtán ára hlé. Áherslan á nýrri Ólafsvíkurvöku er fjölskyldan, en að sögn Guðmundu Wium, skipuleggjanda vökunnar, munu hátíðarhöldin vera fyrir börn, brottflutta Ólafsvíkinga og aðra vel- unnara. Árin 1993 og 1994 var haldin Ólafs- víkurvaka en síðara árið varð sam- eining á sveitarfélögunum og úr varð Snæfellsbær. „Við vildum þá breyta hátíðarhöldunum þannig að þau næðu yfir okkur öll frekar en einn stað innan sveitarfélagsins,“ segir Guð- munda. Færeyskir dagar tóku við af Ólafsvíkur vöku og voru haldnir við miklar vinsældir í níu ár, en lögðust af í fyrra. Í framhaldi af því var haldinn fundur í bænum þar sem áhugamenn um áframhaldandi hátíðarhöld ræddu saman um framhaldið. „Við vorum sammála um að halda gleðihöldun- um áfram en að búa til hátíð eingöngu fyrir fjölskyldufólk,“ segir Guðmunda. „Við gerðum könnun á Snæfellsbæjar- vefnum um hvað hátíðin ætti að heita og gamla nafnið varð fyrir valinu.“ Skemmtidagskrá helgarinnar er fjölbreytt. „Lína Langsokkur verður kynnir á hátíðinni, nokkrir unglingar munu sýna trommudans, sýnt verður brot úr leikritinu Allt í plati sem sett var upp hér í vetur og einnig úr leik- ritinu Þengill lærir á lífið sem grunn- skólinn setti upp. Eldri borgarar verða með línudans, Huldubörn munu syngja nokkur lög og nýtilnefndur bæjarlist- armaður, Sigurður Höskuldsson, mun sýna verk sín, svo eitthvað sé nefnt.“ Hoppukastalar verða fyrir börnin en að sögn Guðmundu er lögð áhersla á hafa skemmtunina ekki aðkeypta. „Það verður ekkert peningaplokk á há- tíðinni hjá okkur.“ Á vökunni verður einnig markað- ur og sýning á munum eftir listamenn bæjarfélagsins. „Bæði í kvöld og annað kvöld verður bryggjuball, svo verður brekkusöngur og við endum svo vök- una á messu á sunnudaginn þar sem Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór munu spila, en það er eina aðkeypta skemmt- unin sem við verðum með,“ útskýrir Guðmunda. Að sögn hennar er stemningin fyrir helginni mjög góð og samvinna að und- irbúningnum hefur gengið vel. „Það er ekki bara Ólafsvík sem kemur að há- tíðinni, Sandarar og þeir frá Rifi vinna að þessu með okkur, enda eru þetta há- tíðarhöld Snæfellsbæjar,“ segir Guð- munda. klara@frettabladid.is ÓLAFSVÍKURVAKA ENDURVAKIN: FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ Í ÓLAFSVÍK Brottfluttir og börn í fyrirrúmi SPENNT FYRIR HELGINNI Guðmunda Wium, skipuleggjandi Ólafsvíkurvökunnar, með eiginmanni sínum, listamanninum Sigurði Höskuldssyni, sem er tilnefndur bæjarlistarmaður í ár, en hann sér einnig um öll tónlistaratriði hátíðarinnar. MYND/HARALDUR, SKESSUHORN AFMÆLI Geraldo Rivera frétta maður er 65 ára í dag. Neil Simon leikskáld er 81 árs í dag. Gina Loll- obrigida leikkona er 81 árs í dag. Hulda Hákon myndlistar- kona er 52 ára í dag. Nafn: Sindri Freyr Pálsson. Aldur: 16 ára. Hver er maðurinn? Ég er að klára grunnskóla. Áhugamál: Bílar og skelli- nöðrur. Hvað hefur þú starfað lengi sem blaðberi? Í þrjú til fjögur ár. Ertu í þessu fyrir hreyfinguna eða launin? Fyrir hreyfinguna. Ertu einn að bera út eða ertu með aðstoðarmann? Ég geri þetta mest einn. Hver voru þín viðbrögð þegar þér var tilkynnt að þú hefðir hlotið nafnbótina Blaðberi mánaðarins? Ég var bara ánægður og þakk- látur. Hefur þú áður hlotið verð- laun fyrir að bera út Frétta- blaðið? Nei. Pósthúsið óskar Sindra Frey til hamingju með titilinn Blaðberi mánaðarins og þakkar fyrir ánægjulegt samstarf. BLAÐBERI MÁNAÐARINS: SINDRI FREYR PÁLSSON Ánægður og þakkklátur SONJA Noregs- drottning er 71 árs. EIRÍKUR HAUKS- SON er 49 ára. Steinsmiðja • Viðarhöfða 1 • 110 Reykjavík • 566 7878 • Netfang: rein@rein.is • Vönduð vinna REIN Legsteinar í miklu úrvali Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Jónínu Símonardóttur áður til heimilis að Eyrarvegi 7a, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Dvalarheimilinu Hlíð. Guð blessi ykkur öll. Jónas Þór Ellertsson Margrét Jónsdóttir Símon Ellertsson María Snorradóttir Hulda Ellertsdóttir Jóhannes Baldvinsson Inga Ellertsdóttir Gunnsteinn Sigurðsson Ágúst Ellertsson Sigríður Ásdís Sigurðardóttir Þóra Ellertsdóttir Sæmundur Pálsson 60 ára afmæli Kristín Kjartansdóttir frá Ólafsvík, verður 60 ára sunnudaginn 6. júlí. Af því tilefni verða þau hjónin Stína og Grímur með opið hús laugardaginn 5. júlí næstkomandi frá kl. 16-20 á heimili sínu 17. júní torgi nr. 7 4. hæð/414 í Sjálandshverfi nu í Garðabæ. Þau hlakka til að sjá ætting ja og vini sem eru hjartanlega velkomnir.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.