Fréttablaðið - 04.07.2008, Síða 52

Fréttablaðið - 04.07.2008, Síða 52
28 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Steinþór Helgi Arnsteinsson Hreinn og klár hávaði er undarlega vanmetinn þáttur í allri tónlistar- sköpun. Hávaði er vandmeðfarinn en sé hann notaður á réttan máta er hægt að skapa einhver þau alfallegustu tilbrigði sem líffæri eyrans geta numið. Ég vil strax rökstyðja mitt mál með því að benda á að til dæmis Vorblótið eftir Stravinsky og ljúfsárt rokk Elvis Presley þótti ekkert annað en bévítans hávaði og vitleysa fyrst þegar það nam eyru hins sótsvarta almúga. Ég vil í þessum pistli samt beina sjónum mínum að hreinum og klárum hávaða, tónum sem eru ekkert annað en ískrandi bæli óhlut- bundinna hljóðbylgja. Margar af framsæknustu og bestu hljómsveitum sögunnar hafa unnið með hávaða og nýtt sér þjónustu hans. Tilrauna- starfsemi sveita á borð við Velvet Underground, Can, Suicide og Sonic Youth gaf af sér guðdómlegan hávaða sem snertir við innsta kjarna hverrar einustu frumu líkamans. Í seinni tíð hafa kumpánar tengdir við skógláp helst fullnumið mátt hávaðans. Listamenn úr öðrum stefnum en rokki hafa reyndar einnig bæst í hópinn og hafa í hartnær tvo áratugi skapað marga yndislega kokkteila með hávaða sem uppistöðu. En eins og áður segir er hávaði vandmeðfarinn og það er mjög viðkvæm og þunn lína milli fallegs hávaða og leiðinlegs hávaða. Fallegan hávaða má sem dæmi heyra á hinni stórfenglegu plötu Yo La Tengo frá árinu 1997, I Can Hear the Heart Beating as One. Í laginu We’re an American Band gnísta sem dæmi háværir gítarsurgstónar tönnum með nánast óbærilega miklum tilþrifum. Nú vil ég beina sjónum mínum að tveimur hávaðasveitum sem kunna svo sannarlega að vinna með hávaða á áhrifaríkan hátt. Sveitirnar eru Fuck Buttons og No Age. Báðar eru þær dúettar en spila þó heldur ólíka tónlist. Ég ætla mér svo sem ekkert að tíunda það hér hversu frábærar þessar tvær hljómsveitir eru. Vippið ykkur frekar á netið eða í næstu búð og kaupið ykkur nýútkomnar plötur þeirra. Aðdáendur hávaða verða ekki fyrir vonbrigðum. Fallegur er hann hávaðinn Suðurríkjarapparinn Lil Wayne seldi yfir milljón eintök í fyrstu vikunni af nýju plötunni sinni The Carter III um daginn. Það er í fyrsta sinn í þrjú ár sem plata nær að rjúfa milljón-eintaka markið á einni viku í Bandaríkjun- um. Ekki slæmt á tímum samdráttar í plötusölu. Trausti Júlíusson tékkaði á kappanum, sem hefur verið í uppáhaldi hjá gagnrýnend- um vestanhafs síðustu ár. Það hefur verið frekar dauft yfir hipphoppbransanum vestanhafs síðustu misseri. Plöturnar seljast minna, gömlu stjörnurnar þjást margar af tónlistarlegu andleysi og textalegri hugmyndaþurrð og það bólar ekkert á nýjum snill- ingum. Eða hvað? Lil Wayne er enginn nýliði. Hann er búinn að vera að rappa í yfir tíu ár. Vegur hans hefur verið að smá aukast og í dag er hann sennilega stærsta hipphoppstjarnan í Bandaríkjunum. Sjötta platan hans The Carter III fór beint á toppinn þegar hún kom út snemma í júní og seldist í yfir milljón eintökum í fyrstu vik- unni, nokkuð sem hefur ekki gerst síðan The Massacre með 50 Cent kom út. Menn eru þegar farnir að kalla Lil Wayne bjarg- vætti rappsins. Sló í gegn með mixteipum Dwayne Michael Carter Jr. fædd- ist í New Orleans 27. september 1982. Hann ólst upp í Hollygrove- hverfinu. Þegar hann var ellefu ára kynntist hann rapparanum Bryan Williams, eiganda Cash Money Records. Bryan varð eins konar lærimeistari Lil Waynes, kenndi honum á bransann og gerði samning við fyrstu hljómsveitina sem Lil Wayne var í, Hot Boys, sem gaf út þrjár plötur á árunum 1998–2003. Fyrstu þrjár sólóplöturnar hans, The Block Is Hot (1999), Lights Out (2000) og 500 Degreez (2002) seldust ekki mikið. Þegar Cash Money-fyrir- tækið neitaði að gefa fjórðu plötuna hans, Da Drought, út þá skellti hann henni út sem mixteipi. Á næstu árum gaf hann út mikið af mixteipum sem mörg þóttu frá- bær og vöktu athygli á þessum efnilega rappara. The Carter-röðin Árið 2004 kom fjórða sóló- plata Waynes og fyrsta plat- an í The Carter-röðinni og þá varð ljóst að Lil Wayne hafði hitt á eitthvað sem virkaði. Næsta plata, The Carter II, kom 2005 og fór beint í annað sæti Billboard-listans. Lil Wayne hefur samhliða þess- um opinberu plötum gefið út helling af mixteipum sem mörg hafa fengið frábæra dóma. Í fyrra rataði Da Drought 3 t.d. í sextánda sætið á árslista Pitchforkmedia og var líka á meðal bestu platna ársins hjá Rolling Stone. Það sem bæði leikir og lærðir eru sammála um er að Lil Wayne er frábær rappari. Hann hefur hugmyndirnar, ímyndunaraflið og flæðið. Auk þess er The Carter III full af frábærum töktum. Á meðal gesta á henni eru Jay-Z, Betty Wright, Fabolous og Busta Rhymes, en upptökum stjórna menn eins og Kanye West, Drew Carrera, Jim Jonsin og Swizz Beatz. The Carter III er ein af skemmtilegri rappplötum sem maður hefur heyrt lengi. Hún er fersk og á köfl- um poppuð og húmorinn svífur yfir öllu. Lagið Dr. Carter er gott dæmi, en þar er Wayne í hlutverki læknis sem reynir að bjarga hipphoppinu. Eitt af mörgum snilldarlögum á plötunni. Bjargvættur rappsins LIL WAYNE Hefur verið kallaður „heitasti rapparinn 2008“ og „besti rappari sinnar kynslóðar“. NO AGE > Í SPILARANUM Atómstöðin - Exile Republic Beck - Modern Guilt Helgi Björns og reiðmenn vindanna - Ríðum sem fjandinn Black Kids - Partie Traumatic Merzedes Club - I Wanna Touch You MERZEDES CLUBATÓMSTÖÐIN > Plata vikunnar Elvis Costello and the Imposters - Momofuku ★★★★ „Momofuku var unnin í skyndi og minnir um margt á gömlu Costello- plöturnar, sérstaklega This Year’s Model. Hrá og ósvikin rokkplata.“ -TJ Hljómsveitin MGMT hefur þótt með þeim ferskari í poppbrans- anum síðustu mánuði. Fyrsta plata sveitar- innar, Oracular Spect- acular, kom út í mars en það var ekki fyrr en nýlega að lög henn- ar náðu almennri hylli. Liðsmenn MGMT hafa nú upp- lýst að þeir vilji ólmir fara að taka upp aðra plötu. Lítill tími gefist þó til að semja nýtt efni. Planið er að hefja upptökur í janúar og gefa hana út sumarið 2009. „Okkur hefur langað til að komast aftur inn í stúdíó í þónokk- urn tíma. Það er komið ár síðan við kláruðum að taka upp fyrri plötuna,“ segir Andrew Van Wyngar- den í MGMT. „Það er engin spurning að við viljum fara að vinna að nýju efni. Ég býst við að við hefjum upp- tökur í janúar og von- andi komum við plötu út næsta sumar. Félagi hans í MGMT, Ben Gold- wasser, tekur undir þetta. „Við vinnum betur þegar við setj- umst niður og kýlum á þetta. Núna höfum við bara ekki mikinn tíma til að gera það.“ MGMT hugar að næstu plötu HRESSIR POPPARAR Hljómsveitin MGMT hefur vakið mikla athygli fyrir fyrstu plötu sína. Meðlimi hennar kitlar nú að taka upp nýtt efni. NORDICPHOTOS/GETTY Seeing Sounds er þriðja plata N*E*R*D, en þegar fyrsta platan In Searh of... kom út fyrir sjö árum var sveit- inni hampað sem fram- tíð poppsins. N*E*R*D er skipuð Neptunes ofur-pródúsent- unum Pharrell Williams og Chad Hugo og æskuvini þeirra frá Virginíu, söngvaranum Shae. Tónlistin er blanda af rokki, fönki og ferskum hip- hop-hljómi í anda Neptunes. Önnur platan, Fly or Die, var framhald af þeirri fyrstu og nú er þriðja platan komin. Seeing Sounds er skemmti- lega fjölbreytt. Lög eins og Every- one Nose og Anti Matter minna helst á gamla Fatboy Slim-slagara, You Know What er poppfönk í anda Jamir- oquai, Happy er softrokk og Kill Joy minnir á Red Hot Chili Peppers svo dæmi séu tekin. Hljóm- urinn er oft mjög ferskur eins og við er að búast frá Neptunes. Takturinn í smáskífulaginu Spaz er til dæmis mjög flottur og í fleiri lögum fær snilld þeirra Pharrell og Hugo að njóta sín. Á heildina litið er þetta skemmtileg plata sem skilur samt frekar lítið eftir sig. Trausti Júlíusson Fínasta fönk-rokk súpa TÓNLIST Seeing Sounds N*E*R*D ★★★ Þó að fáum detti kannski í hug í dag að fönk-rokk súpa N*E*R*D sé framtíð rokksins stendur Seeing Sounds alveg fyrir sínu. Fjöl- breytt og skemmtileg. Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.