Fréttablaðið - 04.07.2008, Síða 55

Fréttablaðið - 04.07.2008, Síða 55
FÖSTUDAGUR 4. júlí 2008 31 Angelina Jolie hefur nú verið lögð inn á spítala, læknir leikkonunnar segir að ekkert ami að henni heldur sé aðeins verið að gæta fyllsta öryggis því nú styttist í fæðingu tvíburanna sem Angelina ber undir belti. Angelina og Brad keyptu nýverið villu í Frakklandi þangað sem þau fluttu með barnaskarann sinn til þess að losna undan ljósmyndurum sem elta fjölskylduna hvert fótmál. Angelina og Brad eiga saman eitt barn og hafa ættleitt þrjú; eftir fæðingu tvíburanna, sem von er á hvað á hverju, verða börnin því orðin sex að tölu. Geri aðrir betur. Styttist í fæðinguna STYTTIST Í FÆÐINGU Angelina með elsta son sinn, Maddox. Hótelerfinginn Paris Hilton segir að uppáhaldsíþrótt hennar sé íshokkí. „Ég hef spilað íshokkí frá því ég var sextán ára og ég er mjög góð í því,“ var haft eftir henni. París segir að þegar hún gekk í menntaskóla hafi hún verið í skólaliðinu í íshokkí og segist hún enn taka einstaka leik þegar hún hefur tíma. Jafnframt segist hún ætla að kenna kærasta sínum, Benji Madden, hvernig spila eigi íþróttina. Þessa dagana er Paris annars að fara af stað með að kynna nýja sjónvarpsþátt- inn sinn sem ber heitið My New BFF. Spilar hokkí MJÖG GÓÐ Í HOKKÍ París Hilton hefur spilað íshokkí frá því hún var sextán ára gömul. Ofurhetjan Hancock hefur ekki átt sjö dagana sæla síðastliðin ár; hann drekkur viðstöðulaust, hann er hat- aður af almenningi og enginn til- gangur virðist vera fyrir lífi hans, eða svo heldur hann. Þegar Han- cock bjargar kynningarfulltrúa úr lífshættu býður hann honum að sjá um almannatengsl Hancocks og koma honum á rétta braut. Í leikstjórastólnum situr leikar- inn Peter Berg, sem hefur sýnt fram á að hann er efnilegur leik- stjóri með myndum á borð við ruðn- ingsmyndina Friday Night Lights og hinni nýlegu The Kingdom. Berg er hér með sína stærstu og dýrustu mynd hingað til, sem er bara af því góða. En ég fer ekki ofan af því að hann hafi verið kærulaus við gerð myndarinnar. Mörgum atriðunum er ágætlega leikstýrt en mörg hasar- og dramaatriðin eru klaufa- leg og vandræðaleg. Dramatíkinni er einnig örlítið ofaukið. Söguþráð- ur myndarinnar er góður og gaman er að fylgjast með fyrstu ofurhetj- unni sem þarf að taka til eftir sig sóðaskapinn. Will Smith leikur Hancock, drykkjurútinn sem endurheimtir æruna. Smith stendur yfirleitt fyrir sínu en er kannski ekki í ess- inu sínu hérna. Í sumum atriðum, þar sem reynt er á dramaleikinn, er stutt í hláturinn og hann er ekki nægilega sannfærandi. Jason Bate- man er þó frábær sem kynningar- fulltrúi Hancocks. Bateman er vandaður og góður leikari en virð- ist vera festast örlítið í sama hlut- verkinu; nú sleppur hann með skrekkinn. Þróun persónu Charlize Theron er fyndin en fyrirsjáanleg. Nú þegar ofurhetjumyndir tröll- ríða sumrinu með myndum á borð við Iron Man, The Incredible Hulk og hinni væntanlegu The Dark Knight, sem hafa sýnt hvers ofur- hetjumyndir geta verið megnugar, virðist ekki vera pláss fyrir fína mynd á borð við Hancock. Helsta ástæðan fyrir því er hversu góð hún hefði getað orðið með þennan áhugaverða söguþráð og flottan leikarahóp. Útkoman reynist vera fínasta sumarmynd en lítið meira en það. Vignir Jón Vignisson - Topp5.is Upprisa Hancocks KVIKMYNDIR Hancock Leikstjóri: Peter Berg. Aðalhlut- verk: Will Smith, Jason Bateman, Charlize Theron. ★★★ Fínasta sumarskemmtun en maður hugsar mest um hversu miklu betri hún hefði getað orðið. Þú missir ekki bara bílprófið ef þú ekur of hratt, heldur gæti bíllinn þinn verið gerður upptækur og þú greitt sekt sem jafngildir mánaðarlaunum margra. Hraðakstur borgar sig ekki - Í ALVÖRUNNI!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.