Fréttablaðið - 04.07.2008, Page 56
32 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
Í Kína til forna segir frá hundlötu
pöndunni Po, sem vinnur á núðlu-
stað en hugsar um lítið annað en
kung fu. Röð tilviljana leiðir til
þess að Po er útnefndur sem hinn
virðulegi drekastríðsmaður, sem
er eina von bæjarins til að yfir-
buga hin illa Tai Lung. Helstu
stríðsmenn Kína eiga því mikið
verk fyrir höndum við að þjálfa
Po, sem er erfiðleikum háð þar
sem hann kann ekki handtak í bar-
dagalistum.
Kung Fu Panda er nýjasta
afsprengi teiknimyndadeildar
DreamWorks sem gerði Shrek-
myndirnar og nú síðast Bee
Movie. Myndir þeirra hafa þó
flestar haldið sig í miðjumoðinu,
að minnsta kosti langt frá Pixar-
staðlinum, sé gerð undantekning
með Shrek og Aardman-
myndirnar. Með Kung Fu Panda
komast þeir aftur á móti á hærra
plan og gera eina bestu mynd sína,
og eina hressilegustu mynd sum-
arsins.
Grunnþráðurinn í myndinni er
kannski ekki sérlega frumlegur,
það er kunnuglega hugmyndin um
lúðann með rétta hjartalagið, sem
verður hetjan að lokum. En mynd-
in vinnur listilega með það efni og
hefur að geyma merkilega
skemmtileg bardagaatriði auk vel
heppnaðra brandara. Kung fu-ið
er afgreitt á sniðugan hátt og þar
sem þetta er teiknimynd eru nátt-
úrulögmálin jafnan beygð að vild,
með skemmtilegum árangri. Þetta
er einnig flottasta DreamWorks-
teiknimyndin til þessa og er sér-
staklega vel teiknuð og hönnuð.
Jack Black er í essinu sínu sem
pandan góða og hans líflegi per-
sónuleiki hentar myndinni vel.
Það er góður leikari í hverju hlut-
verki, þar ber helst að nefna Dust-
in Hoffman sem kung fu meistar-
inn, Angelina Jolie, Jackie Chan,
Seth Rogen, Lucy Liu, David Cross
og að lokum Deadwood-naglinn
Ian McShane sem skúrkurinn.
Það má því segja að Kung Fu
Panda yfirvinni afmarka sína með
glæsibrag. Hún höfðar kannski
frekar til yngri áhorfenda, en
grínið og hasarinn smitar frá sér
til þeirra eldri og úr verður frá-
bær skemmtun, ein sú besta það
sem af er sumri.
Loftur Ingi Bjarnason - Topp5.is
Pandan bjargar deginum
KVIKMYNDIR
Kung Fu Panda
Aðalhlutverk: Jack Black, Dustin
Hoffman, Angelina Jolie, Jackie
Chan, Seth Rogen, Lucy Liu, Dav-
id Cross, Ian McShane.
★★★★
Einföld og kunnugleg saga sem farið
er vel með. Frábært skemmtun sem
höfðar til allra aldurshópa.
Íslenska hljómsveitin
Bloodgroup tróð upp á
síðasta upphitunarkvöldinu
á Hróarskelduhátíðinni á
miðvikudagskvöld. Góður
rómur var gerður að tón-
leikum hljómsveitarinnar.
Kolbrún Björt Sigfúsdóttir
ræddi við krakkana í band-
inu eftir tónleikana.
„Þetta var ógeðslega gaman, alveg
klikkað!“ segir Lilja Kristín Jóns-
dóttir, söngkona hljómsveitar innar
Bloodgroup. Lilja var enn að ná
sér eftir tónleika hljómsveitarinn-
ar á Hróarskeldu þegar blaða-
maður ræddi við hana. „Það er svo
skrítið að fara á svið fyrir framan
svona mikið af fólki. Við höfum
aldrei gert það áður,“ segir Lilja.
Sviðsdýfa Janusar setti smá
strik í reikninginn. „Það var bara
allt svo brjálað og ég sá tækifæri
að það væri hægt. Það er ekki beint
vinsælt eftir 2000. Mjög bannað
meira að segja. Ég var alveg búinn
að gleyma þessu. Ég var geðveikt
skammaður. Hljómsveitir hafa
verið sendar út af svæðinu, klippt
af þeim böndin, fyrir þetta,“ segir
Janus. „Við sluppum með aðvörun
því við báðumst svo fallega afsök-
unar,“ segir Lilja.
Við beinum talinu að öðru.
Hvernig fannst þeim að heyra kall-
að Ísland á tónleikunum? „Það var
mjög skrítið. Komið svolítið ‚lands-
leikur í handbolta‘ í fólkið. Við
höfðum smá áhyggjur af þessu
áður en við fórum á svið. Að fólk
væri eins og það væri að halda
með okkur og hvetja okkur áfram
sem „besta bandið á Hróarskeldu“
en svo sá maður fólk sem maður
þekkir og þá var það bara gaman,“
segir Lilja.
En hvernig undirbýr maður sig
fyrir svona tónleika? „Við erum
búin að vera að taka allt í gegn
sem við fílum ekki. Annaðhvort
að taka lögin í gegn eða einfald-
lega henda þeim af listanum. Því
er live-prógrammið ekkert eins
og á plötunni heldur eru lögin í
stöðugri þróun,“ segir Styrmir.
Hljómsveitin ætlar að vera á
hátíðinni og sjá tónleika. „Við
ætlum að sjá Radiohead, Bonnie
„Prince“ Billie, MGMT, Kings of
Leon, Goldfrapp, Chemical Broth-
ers, Yeahsayer …“ Lilja segist
eiga erfitt með að velja milli
Mugison og Band of Horses, sem
spila á sama tíma. „Það er spurn-
ing hvort maður fer í áfram
Ísland-pakkann,“ segir hún. „Eftir
svona kvöld þá verður maður eig-
inlega að gera það,“ vill Styrmir
meina. „Það er þannig stemming í
fólki. Það tekur hljómsveit og
gerir landslið úr henni.“ Blood-
group þarf að fara að finna sér
tjaldsvæði innan fjölmiðla- og
hljómsveitasvæðisins. „Við erum
náttúrlega með barnið þannig að
við förum ekkert á kaf í heróínið,“
segir Lilja og hlær.
kolbruns@frettabladid.is
Voru hvött áfram eins og
handboltalandsliðið
BLOODGROUP Á HRÓARSKELDU Söngkonan Lilja Kristín Jónsdóttir fór fyrir íslensku
sveitinni á miðvikudagskvöldið. MYND/THOMAS ARNBO
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA.
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 6 - 8 L
HANCOCK kl. 8 - 10 12
NARNIA 2 kl. 5 7
INCREDIBLE HULK kl. 10 12
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 4D - 6D L
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 4 - 6 VIP
KUNG FU PANDA M/ENSKU kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
HANCOCK kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 12
HANCOCK kl. 8 - 10:10 VIP
WANTED kl. 5:30 - 8 - 10:20 - 10:40 16
NARNIA 2 kl. 5 - 8 7
INDIANA JONES 4 kl. 8 - 10:20 12
WANTED kl. 8:30D - 10:50D 16
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 4:30D - 6:30D L
NARNIA 2 kl. 3D-6D 7
SEX AND THE CITY kl. 6 - 9 14
THE BANK JOB kl. 9 - 11:10 16
SPEEDRACER kl. 3 L
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 6 L
WANTED kl. 8 - 10 12
NARNIA 2 kl. 6 7
THE BANK JOB kl. 9 16
HANCOCK kl. 8 - 10:10 12
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 6 - 8 L
NARNIA 2 kl. 5 7
WANTED kl. 10:10 16
DIGITAL
DIGITAL
DIGITAL
ÞAÐ ER KOMINN NÝR HROTTI Í
FANGELSIÐ...AF MINNI GERÐINNI!
HEIMSFRUMSÝNING NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
12
12
12
10
HANCOCK kl. 6 - 8 - 10*
BIG STAN kl. 8
THE INCREDIBLE HULK kl. 10
* kraftsýning
12
7
16
HANCOCK D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
HANCOCK LÚXUS D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
KUNG FU PANDA D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 ÍSL. TAL
BIG STAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE INCREDIBLE HULK kl. 5.30 - 8 - 10.30
ZOHAN kl. 8 - 10.30
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
12
12
14
HANCOCK kl. 6 - 8.30 - 10.30
KUNG FU PANDA kl. 6 - 8 -10 ENSKT TAL
BIG STAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
SEX AND THE CITY kl. 6 - 9
5%
5%
SÍMI 551 9000
12
16
7
14
10
12
THE INCREDIBLE HULK kl. 5.30 - 8 - 10.30
HAPPENING kl. 8 -10.10
MEET BILL kl. 5.50 - 8
SEX AND THE CITY kl. 7 - 10
ZOHAN kl. 5.30
INDIANA JONES 4 kl. 10.20
SÍMI 530 1919
Jack Black sannar
að hann er einn af
fyndnustu grínleikurunum
í heiminum í dag.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
HANCOCK kl. 4, 6, 8(D) og 10(D) 12
KUNG FU PANDA kl. 4 (D) og 6 (D) L
WANTED kl. 8 og 10.10 16
NARNIA: PRINCE CASPIAN kl. 4 og 7 7
SEX AND THE CITY kl. 10 14
M Y N D O G H L J Ó Ð M Y N D O G H L J Ó Ð
SparBíó 550kr
Föstudag
SPEED RACER
kl. 3 í kringlunni
NARNIA 2
kl. 5 í Álf., á Self., og í kefl.,
kl. 3 í Kringl., og kl. 6 á Ak
WANTED
kl. 5:30 í Álfabakka
HANCOCK
kl. 4 í Álfabakka
KUNG FU PANDA
kl. 4 í Álfabakka með íslensku og ensku tali
kl. 4:30 í Kringlunni með íslensku tali
kl. 6 á Selfossi, Akureyri og í Keflavík með íslensku tali