Fréttablaðið - 04.07.2008, Síða 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
Ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í
þig, söng Megas um árið og syngur
víst enn í nýlegri auglýsingu frá
Toyota. Þetta er góð speki og sett
fram á svo miklu einfaldari hátt hjá
meistara Megasi en hjá þeim sem
reyndu að selja okkur „The Secret“-
þvæluna. Það borgar sig að brosa,
svo einfalt er það. Ætli maður að
takast á við lífið með fýlusvip upp-
sker maður ekkert nema leiðindi.
ÞEGAR ég var yngri þóttu mér
gamlar ljósmyndir af Íslendingum
frekar niðurdrepandi. Það voru allir
svo skelfilega alvarlegir á þeim,
störðu svipbrigðalausir í myndavél-
ina með samanbitnar varir eins og
þeir væru nýbúnir að missa alla
fjölskylduna úr svartadauða eða
eitthvað þaðan af verra. Með til-
komu öflugri myndavéla gat fólk
farið að brosa framan í linsuna og
enn síðar lærðum við það af Amer-
íkönum að segja „sííís“. Hvað síðan
gerðist er svolítið á reiki en ein-
hverra hluta vegna er mikill fjöldi
fólks (einkum kvenfólk) hættur að
segja „sííís“ þegar smellt er af og
segir þess í stað „mök“ eða „kjöt“ til
að fá kynþokkafullan stút á varirn-
ar. Það er varla hægt að fletta í
gegnum fjölskyldualbúm eða skoða
myndir á Facebook án þess að þess-
um undarlega myndasvip bregði
fyrir. Hvað eiga komandi kynslóðir
eftir að halda? Önnur hver mann-
eskja er á svipinn eins og þorskur.
AUÐVITAÐ er við hinn illræmda
tískuiðnað að sakast. Af myndum
tískublaðanna má ráða að það sé
ekki lengur í tísku að brosa. Fyrir-
sæturnar virðast forðast það í
lengstu lög að kreista fram svo
mikið sem brosvipru út í annað og
stara þess í stað út í tómið, með
undar legum þjáningarsvip sem á
víst að vera kynþokkafullur. Maður
verður hálfþunglyndur af því að
skoða tískuþættina enda ekki annað
að sjá en að fyrirsæturnar sjálfar
séu að sálast úr leiðindum – já, og
hungri. Ólíkt stjörfum Íslendingun-
um á gömlu ljósmyndunum tekst
þeim þó að hreyfa eins og þrjá and-
litsvöðva með því að skjóta vörun-
um örlítið fram og búa til þennan
eftirsóknarverða þorskamunnsvip
sem allir reyna síðan að apa eftir.
ÞETTA er óskiljanlegt. Meira að
segja drottning kynþokkans, Mar-
ilyn Monroe, brosti þegar kjóllinn
fauk upp um hana en var ekki að
rembast við að setja setja upp til-
gerðarlegan hálfstút.
MEÐ speki Megasar í huga má
hafa af þessu nokkrar áhyggjur.
Við vitum að heimurinn smælar
framan í þá sem brosa en hvernig
fer fyrir þeim sem takast á við
lífið með stút?
Sííís!
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
...ég sá það á visir.is
Segir grafhýsi Kleópötru fundið
Myndir berast frá Mars
Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett
Býst við minni verðbólgu
MEST LESIÐ:
Glitnir og Byr sameinast síðar í mán ðin m
Hlupu inn á flugvöll il að mótmæla brottflutningi Keníabúa
Grímseyjarhrottinn á Litla-Hraun
Meirihluti stjórne da telur efnahagshorfur slæmar
Í dag er föstudagurinn 4. júlí,
187. dagur ársins.
3.13 13.32 23.50
2.13 13.17 0.18