Fréttablaðið - 07.07.2008, Side 1

Fréttablaðið - 07.07.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI FLÓTTAMENN Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra bað sendiherra Íslands að beita sér í máli keníska flóttamannsins Pauls Ramses á föstudaginn, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Sem kunnugt er var Paul vísað úr landi og til Ítalíu, á grundvelli Dyflinnar-samningsins, en hann hafði sótt um pólitískt hæli hér á landi. Hann dvelst nú nálægt Róm, ásamt öðrum flóttamönnum. Paul hefur verið viðloðandi Ísland lengi og kona hans og barn eru hér enn. Sendiherrann mun hafa átt í við- ræðum við ítölsk stjórnvöld og flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna á Ítalíu, en hún getur haft inngrip í málefni einstaklinga. Staða Pauls er sögð mun sterkari en ella af þessum sökum. Meiningin er að tryggja að Paul fái réttláta málsmeðferð og ítölsk stjórnvöld séu vel upplýst um hans aðstæður. Ekki fengust upplýsing- ar um hvort stefnt er að því að hann komi hingað aftur. Í utanríkisráðuneytinu er rætt um afskipti sendiherrans sem fyrstu skref. Ekki náðist í utanríkisráðherra í gær og þegar Fréttablaðið ræddi við Kristrúnu Heimisdóttur, aðstoðarmann ráðherra, vildi hún ekkert tjá sig um málið. „En ég get staðfest það að sendi- herrann í Róm fylgist með máli Pauls og að ráðherra er umhugað um málið,“ sagði hún. - kóþ / sjá síðu 6 fasteignir 7. JÚLÍ 2008 Fasteignasalan Ás hefur til sölu fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum í fjórbýli á Völlum í Hafnarfirði veggir og loft eru sandspörsluð og máluð. Gluggar og útihurðir eru úr tré frá GluK l Bílskúr og suðursvalir Nýtt fjórbýli á góðum stað í Hafnarfirði. Allar innréttingar og tæki vönduð. U.þ.b. 180 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð, opið vinnurými, skrifstofa fundahergi og mót k Til leigu Vagnhöfði Bæjarlind U.þ.b. 120 fm bil með innkeyrsluhurð ca. 240 á hæð. U.þ.b. 410 fm kjallari, áður trésmiðja með rampi og innkeyrsluhurð. HÚSIN Í BORGINNI • Klapparstíg 5 • 101 Reykjavík • Sími 511 5005 • Fax 511 5009 • www.husin.is Fr u m Telma Róbertsdóttir Löggiltur fasteignasali HÚSIN Í BORGINNI … það borgar sig! 39.900.000 Fallegt mikið endurnýjað 163,6 fm raðhús á tveimur hæðum, þar af 30 fm bílskúr. Þóra s. 865-7202 tekur á móti gestum Fr um Álfhólsvegur 26a - 200 KópOpið hús í dag mánudaginn 7. júlí milli kl. 18-19 HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Við tifandi læk í Hafnarfirði speglast hvítir logar úr töfrandi arni. „Ég er alltaf svolítið kulvís, með hálfgerðan hroll, og veit ekkert notalegra en að kveikja upp í arnin- um og horfa á róandi og fallegan eldinn, hvort sem það er um hábjart sumarið eða á köldum vetrum “ segir Telma Róbertsdóttir ei d ar Húsi í b „Við erum ofsalega dugleg að kveikja upp í arnin- um, sögum niður jólatréð og brennum annan eldivið sem til fellur. Þarna njótum við fjölskyldan þess að spjalla saman og vera til; sjónvarpið er þarna líka og hentugt að líta undan í eldinn ef eitth ð á skjánum “ segir T lÉ Notalegt snark í eldinum Telma Róbertsdóttir fasteignasali er alin upp við snark í arni og lét drauminn um eigið heimili með arni rætast. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Rispur í glösum, þótt smáar séu, geta sett leiðinlegan svip á ann-ars fallegan borðbúnað. Gott ráð til þess að fjarlægja smáu rispurnar í glervörunum á heim-ilinu er að smyrja örlitlu af tannkremi yfir þær. Tannkremið mýkir hrjúft yfirborðið og virkar örlítið eins og slípiefni fyrir það. Blómavasar setja líflegan svip á heimilið yfir sumarið. Gaman er að skreyta heimilið með nýtíndum blóm-um sem finna má villt í garðinum. Það er um að gera að finna vasa í fjörlegum litum. Litrík blóm og líflegir blóma-vasar gleðja augað og setja sumar legan blæ á heimilið. Sumarhreingerningar geta verið sniðugar á þeim tímum þegar ský dregur fyrir sólu. Í rigningarúða er tilvalið að drífa sig inn og hreinsa hús-gögn heimilisins. Gott húsráð við hreinsun húsgagna er að þrífa þau með klúti sem dýft hefur verið í blöndu af sterku tei því þá mun skína af þeim. Sími: 512 5000 MÁNUDAGUR 7. júlí 2008 — 183. tölublað — 8. árgangur VEÐRIÐ Í DAG KRYDDSMJÖR Skrifar á Ísafirði Auður Jónsdóttir rithöf- undur flytur til Ísa fjarð- ar þar sem hún ætlar að klára bókina Vetrarsól. FÓLK 30 Dóttir Jóns Gnarr á leið- inni í Merzedes Club Margrét Edda Jónsdóttir er ein tveggja sem kemur til greina sem bakraddasöng- kona Merzed- es Club. FÓLK 20 Vilja bæta þjónustuna Hjónin Gunnur Hafsteinsdóttir og Stefán Jónsson opnuðu fyrsta gisti- heimilið í Þorlákshöfn á dögunum. TÍMAMÓT 16 TELMA RÓBERTSDÓTTIR Ekkert notalegra en að kveikja upp í arninum • heimili Í MIÐJU BLAÐSINS FASTEIGNIR Innbyggð uppþvottavél og amerískur ísskápur Sérblað um fasteignir FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG ÓLAFUR DE FLEUR Heimsótti George Lucas Fór á Skywalker-búgarðinn með fólki úr kvik- myndaheiminum. FÓLK 30 17 13 16 16 16 GÓÐVIÐRI Í dag verður hæg norð- læg eða breytileg átt. Sum-staðar skýjað norðan til annars yfirleitt nokkuð bjart veður. Hætt við þoku með ströndum. Hiti 12-22 stig hlýjast sunnan og vestan til. VEÐUR 4 PRÚÐBÚIN Í SUNNUDAGSBÍLTÚR Hjónin Sævar Pétursson og Ragnheiður Sigurðardóttir skörtuðu sínu fegursta á árlegum fatadegi Fornbílaklúbbsins á Árbæjarsafni í gær. Sævar er formaður klúbbins og kom akandi á þessari glæsikerru, Ford-bifreið frá árinu 1930. FRÉTTABLAÐIÐ / AUÐUNN Utanríkisráðherra kominn í mál Pauls Sendiherra Íslands í Róm á nú í viðræðum við ítölsk stjórnvöld og flóttamanna- stofnun Sameinuðu þjóðanna. Paul Ramses eigi að fá sem besta málsmeðferð. Í utanríkisráðuneytinu er talað um þetta sem fyrsta skref í máli Keníamannsins. FÓLK Guðfinna Sigurðardóttir, líkamsræktarkennari og einka- þjálfari, kemur fólki í form á átta vikum á einu af Meridian- hótelunum í Dubai. Guðfinna kann vel við sig í furstadæminu þar sem hún hefur verið búsett síðastlið- in sex ár, en upphaflega fluttist hún til Dubai þegar eiginmaður hennar, Michael Hansen, fékk flugmannsstöðu hjá Emirates-flugfélaginu. Hún segir það hafa tekið um tvö ár að venjast menningu Dubai þar sem gífurlega mikil uppbygging á sér stað og segir hálfóhugnanlegt hversu miklir peningar séu í landinu. - ag /sjá síðu 30 Guðfinna Sigurðardóttir: Kemur íbúum Dubai í form á átta vikum GUÐFINNA SIGURÐARDÓTTIR ÍSLAMABAD, AP Að minnsta kosti fimmtán fórnarlömb liggja í valnum og yfir tuttugu eru sárir að auki eftir sjálfs morðs - sprengjuárás í Íslamabad, höfuðborg Pakistans, í gær. Meðal þeirra látnu eru átta lögreglu menn, að sögn pakist- anskra yfirvalda. Eitt ár er liðið frá því að um hundrað manns biðu bana þegar löngu umsátri um Rauðu moskuna í borginni lauk með hörðum átökum. Árásin í gær var gerð í nágrenni lögreglustöðvar nærri Melody-verslunarhverfinu. Lögreglu þjónarnir sem munu hafa látist eru sagðir hafa verið að gæta að mótmælendum þegar sprengjan sprakk. - sh Átta lögregluþjónum banað: Fimmtán létust í sprengjuárás Ég get staðfest það að sendiherrann í Róm fylg- ist með máli Pauls og að ráðherra er umhugað um málið. KRISTRÚN HEIMISDÓTTIR AÐSTOÐARMAÐUR UTANRÍKISRÁÐHERRA Dramatík í toppslagnum Keflvíkingar unnu FH með marki í uppbót- artíma. ÍÞRÓTTIR 24

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.