Fréttablaðið - 07.07.2008, Síða 21
fasteignir
7. JÚLÍ 2008
Fasteignasalan Ás hefur til sölu fjögurra
herbergja íbúð á tveimur hæðum í fjórbýli á
Völlum í Hafnarfirði
Um er að ræða 122,6 fermetra íbúð í nýbyggðu fjórbýli sem skilast fullbúin með gólfefnum. Með íbúðinni fylgir tæplega 30 fermetra bíl-
skúr.
Húsið er staðsteypt, steinað að utan með ljósum lit
en er dökkt við tröppur og innganga. Útveggir eru
einangraðir að innan og klæddir með tvöföldu gifsi.
Innveggir eru steyptir eða úr tvöföldu gifsi. Allir
veggir og loft eru sandspörsluð og máluð. Gluggar og
útihurðir eru úr tré frá Gluggasmiðjunni og glerið er
K-gler frá Íspan. Svalahandrið eru klædd með dökk-
um álplötum, en stórar suðursvalir fylgja íbúðinni.
Lofthæð íbúðarinnar er mikil, eða 2,70 metrar.
Halogen-lýsing er í stofu og holi. Innréttingar eru
Designa, frá EGG Smáratorgi, og gert er ráð fyrir
amerískum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél í eld-
húsið. Borðplatan er ljós Quarts pearl-steinn frá Sól-
steinum. Öll hreinlætistæki eru frá Tengi. Innihurðir
eru spónlagaðar með eik.
Lóðin verður fullfrágengin við afhendingu með
gróðri, hellulögn og bílastæðum.
Bílskúr og suðursvalir
Nýtt fjórbýli á góðum stað í Hafnarfirði. Allar innréttingar og tæki vönduð.
U.þ.b. 180 fm skrifstofuhúsnæði á
2. hæð, opið vinnurými, skrifstofa,
fundahergi og móttaka.
U.þ.b. 231 fm „penthouse“ áður Lindasól
frábært útsýni.
Til leigu
Vagnhöfði
Bæjarlind
U.þ.b. 120 fm bil með innkeyrsluhurð
ca. 240 á hæð.
U.þ.b. 410 fm kjallari, áður trésmiðja
með rampi og innkeyrsluhurð.
Upplýsingar í símum
895 8299 og 849 9987.
HÚSIN Í BORGINNI • Klapparstíg 5 • 101 Reykjavík • Sími 511 5005 • Fax 511 5009 • www.husin.is
Fr
u
m
Telma Róbertsdóttir
Löggiltur fasteignasali
HÚSIN Í BORGINNI
… það borgar sig!
39.900.000
Fallegt mikið endurnýjað 163,6 fm raðhús á tveimur hæðum, þar af 30
fm bílskúr.
Þóra s. 865-7202 tekur á móti gestum
Fr
um
Álfhólsvegur 26a - 200 Kóp
Opið hús í dag mánudaginn 7. júlí milli kl. 18-19
Leigðu og eigðu …
ibud.is
Ný leið til fasteignakaupa
Sími 660 9791
Fr
u
m