Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.07.2008, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 07.07.2008, Qupperneq 35
MÁNUDAGUR 7. júlí 2008 19 Fjórða plata hljómsveitarinnar JJ Soul Band er komin út á vegum útgáfunnar Hrynjandi en Zonet dreifir. Diskurinn geymir hljóðritanir frá 2007 og eru öll lögin eftir Ingva Þór Kormáks- son. Þetta er fjórða plata sveitarinn- ar sem er kunn af tónleikum sínum og fyrri hljóðritun- um sem er bræðingur af blúsuðum stefjum með ýmsum bragðtegundum en spilamenn bandsins eru færir í flestan sjó dægur- tónlistar og bregða fyrir sig ýmsum stílum. Tólf lög eru á þessum nýja diski sem ber heitið Bright Lights. Take it outside heitir nýr geisladiskur sem Gunnar Waage hefur sent frá sér. Hann hefur að geyma fjórar tónsmíðar Gunnars, tvær þeirra voru hljóðritaðar í Iðnó, en við flutning- inn nýtur Gunnar aðstoðar Braga Bragasonar, Davids Garfi- eld, Kristins Einarssonar, Jóhanns Ásmundssonar, Ólafs Kristjánssonar, Péturs Valgarðs Péturssonar, Ríkarðs H. Friðrikssonar og Tonys Franklin. Höfundur gefur út. Fagur dagur heitir nýr diskur sem geymir lög eftir Ragnar Kristin. Á honum eru tólf lög í flutningi söngv- ara og tónlistar- manna en útsetningar annast þau Dsintra Erliha og Viktor Ritovs en söngur er í höndum Egils Ólafssonar og Þuríðar Sigurðardóttur. Undirleik annast stór hópur íslenskra tónlistarmanna. Lög Ragnars eru samin við ýmis kvæði eftir skáld á borð við Jakobínu Johnson, Jón Hermannsson og lagahöfund. Útgef- andi er Þingberg. Þorsteinn Haukur Þorsteinsson hefur sent frá sér disk með átta tónsmíð- um sem hann kallar Lofgjörð til þín. Flytjendur eru höf- undur og Gospelkór Vestfjarða undir stjórn Auðar Örnu Höskulds- dóttur. Hljóðritun fór fram í Ísafjarðarkirkju. Tónlist Þorsteins er trúarlegs eðlis. Höfundur gefur út. NÝJAR PLÖTUR Tölur voru birtar í fyrri viku um sölu á hljóm diskum í Bandaríkjunum og sýna svo ekki verður um villst að diskasala er að minnka. Frá miðju ári 2007 hefur salan minnkað um 11% og á sama tíma greina menn aukningu í niðurhali. Samkvæmt mælingu Nielsen voru seld rúm 206 milljón eintök frá áramótum til loka júní. Geisladiskar seljast minna en áður sem nemur 16% og kenna menn vestra um lokun á stórum keðjum hljómplötuverslana. Stafræn sala á heilum skrám af diskum eykst veru- lega: um 34% í 31,6 eintök sem er 15,5% af allri diskasölu. Þá eykst sala á stökum lögum enn, hækkar um 30% eða 125,4 milljón eintök. Það eru stóru fyrirtækin sem eiga stærstan hlut af allri plötusölu í Ameríku: Universal Music Group með 31,2%, Sony BMG með 25%, Warner Music Group með 20,9% og EMI með 9,1%. Svo kallaðir sjálfstæðir útgefendur eða „indies“ eiga 13,9% markaðshlutdeild. Universal er með sölu- hæstu plöturnar: The Carter III með Lil Wayne seldist í 1,5 milljónum eintaka, Sleep Through the Static með Jack Johnson í 1,2 milljónum eintaka og E=MC2 með Maríu Carey í 1,1 milljón eintaka. Til samanburðar má nefna að Hard Candy Madonnu seldist í 570.000 eintaka og nýtt safn þeirra Coldplay-pilta, Viva La Vida í 971.000 eintökum. Sala á vínyl-útgáfum eykst verulega: 803.000 eintök hafa selst það sem af er þessu ári, en í fyrra voru þau 454.000. - pbb Sala á diskum dregst saman HLJÓMPLÖTUR Madonna er hálf- drættingur á við Maríu Carey. LOKSINS ER KOMINN SMÁBÍLL FYRIR ÞÁ SEM HUGSA AF SKYNSEMI Hann er smábíll, en samt furðu rúmgóður. Hann er sparneytinn, en samt snar í snúningum. Hann mengar lítið og fær því frítt í bílastæði í miðborg Reykjavíkur. En umfram allt er þetta flottur bíll á flottu verði. Skyn- samlegur kostur í þessu árferði. Hann hentar líka öllum. Hann er nógu stór fyrir fjölskyldur með börn eða bara eldri hjón með golfsettin í skottinu. Og hann er nógu sætur fyrir unga fólkið, sem er að festa kaup á sínum fyrsta bíl. Líttu við hjá okkur í kaffi og kleinur og keyrðu hring á spánnýjum Hyundai i10 – hann bíður eftir þér. www.hyundai.is H ef ur g æ ði n B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - 575 1200 - www.bl.is Keflavík 421 4444 - Selfoss 575 1460 - Akranes 431 2622 - Akureyri 461 2533 - Egilsstaðir 471 2524 i10 er 5 dyra smábíll fyrir fjölskyldur i10 er eyðslugrannur i10 er á hagstæðu verði i10 getur lagt frítt í stæði í miðborginni i10 er einn rúmbesti bíllinn í sínum fl okki Lítill og sætur Sparneytinn og rúmgóður Hyundai i10 5 dyra, bensín og beinskiptur. 1.740.000 B& L ás ki lu r s ér ré tt til v er ð- o g bú na ða rb re yt in ga á n fy rir va ra

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.