Fréttablaðið - 07.07.2008, Blaðsíða 41
MÁNUDAGUR 7. júlí 2008 25
Valbjarnarvöllur, áhorf.: 1.107
Þróttur KR
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 15–11 (5-5)
Varin skot Bjarki Freyr 4 – Stefán Logi 5
Horn 5-4
Aukaspyrnur fengnar 16-15
Rangstöður 0-1
KR 4–4–2
Stefán Logi Magn. 6
Skúli Jón Friðgeirs. 6
Pétur Marteinsson 7
Grétar S. Sigurðars. 7
Guðmundur Gunnars. 6
Óskar Örn Hauks. 7
Jónas Guðni Sævars. 6
Viktor B. Arnars. 6
Atli Jóhannsson 4
(75., Jordao Diogo -)
Björgólfur Takefusa 5
(80., Guðm. Péturs. -)
*Guðjón Baldvins. 7
*Maður leiksins
ÞRÓTTUR 4–5–1
Bjarki Freyr Guðm. 6
Jón Ragnar Jónsson 6
Michael Jackson 7
Þórður S. Hreiðars. 6
Kristján Ó. Björnsson 7
Rafn Andri Haralds 4
(69., Andrés Vilhj. 5)
Hallur Hallsson 5
(83., Arnljótur Ástv. -)
Dennis Danry 5
Sigmundur Kristjáns. 4
(77., Adolf Sveinsson -)
Magnús M. Lúðvíks. 5
Hjörtur Hjartarson 4
0-1 Björgólfur Takefusa, vítaspyrna
(72.).
0-1
Einar Örn Daníels. (8)
Vodafonevöllur, áhorf.: 812
Valur Fram
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 20–5 (10–0)
Varin skot Kjartan 0 – Hannes Þór 7
Horn 6–2
Aukaspyrnur fengnar 8–17
Rangstöður 3–1
FRAM 4–5–1
Hannes Þ. Halldórs. 7
Jón Orri Ólafsson 5
Reynir Leósson 4
Auðun Helgason 6
(85., Grímur Gríms. -)
Sam Tillen 4
Halldór H. Jónsson 5
Ingvar Ólason 5
Heiðar Geir Júlíusson 3
(78., Örn Kato Hauks. -)
Paul McShane 4
Ívar Björnsson 4
(84., Guðm. Magnús. -)
Hjálmar Þórarinsson 4
*Maður leiksins
VALUR 4–2–2
Kjartan Sturluson 6
Birkir Már Sævars. 8
Atli Sveinn Þórarins. 7
Barry Smith 7
Rene Carlsen 7
Rasmus Hansen 6
*Pálmi R. Pálmas. 8
Sigurbjörn Hreiðars. 5
(68., Baldur Aðalst. 6)
Bjarni Ólafur Eiríks. 7
Helgi Sigurðsson 6
Guðmundur Ben. 7
(85., Albert Ingason -)
1-0 Pálmi Rafn Pálmason (75.), 2-0
Pálmi Rafn Pálmason (77.).
2-0
Þóroddur Hjaltalín (7)
FÓTBOLTI Valsmenn eru hægt og
rólega að klífa upp töfluna í
Landsbankadeild karla. Íslands-
meistararnir sýndu þolinmæði
þegar þeir unnu Framara 2-0 í
gær með tveimur mörkum frá
Pálma Rafni Pálmasyni.
Framarar nálguðust leikinn
afar varfærnislega. Dagsskipun-
in var greinilega að taka litla
áhættu og reyna frekar að keyra
hratt á Valsmenn með skyndi-
sóknum. Það gekk ekki. Framarar
héldu boltanum illa í fyrri hálf-
leiknum og sendingar sem áttu að
skapa hættu hjá markinu voru
lélegar. Þeir ógnuðu marki Vals
nákvæmlega ekki neitt.
Hannes hafði meira að gera í
marki Fram. Birkir Már
gerði vörninni lífið leitt
og hann skaut í stöngina
í upphafi leiks áður
en Hannes varði
meistaralega
skalla frá
Helga Sig-
urðssyni.
Hannes
varði aftur
ágætlega
frá Helga
en síðan
hættu Vals-menn nán-
ast að ógna Hannesi.
Þeir héldu boltanum vel,
gerðu hvað þeir gátu, en
náðu ekki að ógna að
neinu viti. Í sóknarlínu
Fram var Hjálmar
einangraður og ein-
mana. Eina skot
hans var nær því að
ná fellu í Keiluhöllinni í
Öskjuhlíð en að ógna Kjart-
ani markmanni. Svipað
var uppi á teningnum í
síðari hálfleik en Kjart-
an hoppaði ótt og títt til
að halda á sér hita enda
afar lítið að gera.
Valsarar sóttu og
besta færið áður en stíflan brast
fékk Helgi þegar Reynir Leósson
missti boltann fáránlega frá sér.
Sem fyrr varði Hannes frábær-
lega. Auðun var draghaltur í vörn-
inni en það virtist ekki koma að
sök. Vörn Fram hélt og hélt en
þolinmæði Valsmanna skilaði sér
loksins á 75. mínútu.
Þá skoraði Pálmi Rafn tvö mörk
á tveimur mínútum en fram að
því hafði hann ekki látið mikið til
sín taka. Fyrst skoraði hann frá-
bært mark með viðstöðulausu
skoti eftir sendingu Birkis Más
og síðan hirti hann lausan bolta í
teignum og skoraði undir hjálpar-
lausan Hannes. Leikurinn fjaraði
svo út og lauk með verðskulduð-
um 2-0 sigri Vals.
„Við töluðum um það fyrir leik-
inn að við þyrftum að vera þolin-
móðir. Það er erfitt að fara í gegn-
um þá en sem betur fer náðum
við að ógna og setja á þá tvö
mörk. Ég held að það sé ekki
ósanngjarnt að kalla þetta verð-
skuldaðan sigur. Markmaður
þeirra varði mjög vel en ég hafði
það alltaf á tilfinningunni að
þetta myndi detta,“ sagði marka-
skorarinn Pálmi Rafn glaðbeitt-
ur.
„Þetta hafðist að lokum,“ sagði
Bjarni Ólafur. „Mér fannst við
ívið sterkari og þeir sóttu ekki á
mörgum mönnum og lágu bara til
baka,“ sagði Bjarni en útsendarar
frá nokkrum félögum fylgdust
með honum í leiknum. Hann lof-
aði því ekki að Valsarar væru að
komast á beinu brautina með sigr-
inum. „Það er leiðinlegt að bjóða
upp á þessa klisju en við tökum
bara einn leik fyrir í einu.“
Auðun Helgason, varnarmaður
Fram, segist aldrei hafa átt að
spila leikinn. Hann spilaði í 86
mínútur draghaltur en hann er
meiddur á liðböndum á ökkla.
„Heiðar Geir er líka meiddur og
Reynir var veikur í nótt. Við erum
frekar þunnskipaðir og þá er
þetta erfitt en þetta var sann-
gjarn sigur Vals,“ sagði Auðun.
- hþh
Pálmi Rafn Pálmason skoraði mörk sín númer sex og sjö í deildinni í sumar í sigri Valsara á Frömurum:
Þolinmæði skilaði Val þremur stigum
FRÁBÆR Pálmi Rafn Pálmason
skoraði bæði mörk Valsmanna
í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SKOTHRÍÐ Íslandsmeistarar Vals gerðu harða hríð að marki Framara í gærkvöld og
áttu sigurinn skilið. Framarar vörðust af krafti en Valsmenn hirtu stigin þrjú.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
FÓTBOLTI KR hélt uppteknum hætti og vann
Þrótt á Valbjarnarvelli 0-1.
Það voru fastir liðir eins og venjulega hjá
KR í gærkvöldi. Liðið sigraði sinn fjórða deild-
arleik í röð með því að leggja Þróttara að velli
í Dalnum, það hélt marki sínu hreinu og
Björg ólfur Takefusa skoraði mark. Í stórum
dráttum hefur sagan verið svona í tæpan
mánuð, eða frá því að KR-ingar biðu síðast
lægri hlut deildinni, í Keflavík þann 8. júní.
Stöðugleikinn virðist hafa náð fótfestu í her-
búðum Vesturbæinga og fyrir vikið er liðið
komið í sterka stöðu í 3. sæti deildarinnar með
18 stig, tveimur stigum betur en liðið fékk allt
tímabilið í fyrra.
„Það er bullandi sjálfstraust í liðinu og við
höfum alls ekki sagt okkar síðasta. Við erum
vissulega á miklum skriði en ég get ekki séð af
hverju við getum ekki haldið áfram á sömu
braut,“ sagði Jónas Guðni Sævarsson, fyrirliði
KR-inga, eftir leik. Einn stór munur var þó á
leik KR í gærkvöldi og í síðustu leikjum - liðið
lék alls ekki vel og fram að vítaspyrnunni, sem
var réttilega dæmd þegar Þórður Hreiðarsson
braut á Guðjóni Baldvinssyni, hafði fátt bent
til þess að liðinu tækist að skora mark. „Það er
rétt að við vorum ekki upp á okkar besta en sú
staðreynd að við unnum samt leikinn segir
ýmislegt um hversu sterkt lið við erum orðnir.
Við erum að vinna ljótu leikina og það getur
verið gríðarlega mikilvægt þegar upp er stað-
ið,“ sagði Jónas Guðni.
Eins og Jónas benti réttilega á var leikurinn
í Dalnum í gærkvöldi í afar lágum gæðaflokki.
Bæði lið voru varnarsinnuð og lögðu megin-
áherslu á að verja sitt mark og sat sjálfsagt
einhver þreyta í leikmönnum KR eftir mikið
leikjaálag að undanförnu. Þeim til happs voru
heimamenn í Þrótti sérlega daprir í gærkvöldi.
Liðið virðist vera í ákveðinni lægð, hefur nú
tapað tveimur heimaleikjum í röð og líkt og
gegn Val í síðustu umferð benti fátt til þess að
liðinu tækist að skora. Hjörtur Hjartarson var
ævintýralega einmana í fremstu víglínu liðsins
í gærkvöldi og sú litla ógn sem KR-ingar þurftu
að glíma við komu úr langskotum. - vig
Björgólfur Takefusa tryggði KR sigur á Þrótti með marki úr vítaspyrnu á Valbjarnarvelli í gærkvöld:
Fastir liðir eins og venjulega hjá KR
HART TEKIST Á Guðjón Baldvinsson átti góðan
leik í gær og lét varnarmenn Þróttar finna vel
fyrir sér. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN