Fréttablaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 26
fréttir
Tískulöggan Arnar Gauti úr sjónvarpsþáttunum Inn-
lit/útlit ætlar að kvænast unnustu sinni, Aðalbjörgu
Einarsdóttur, hinn 8.8. 08 kl. 18.00. Þegar hann er
spurður að því hvort þetta sé ekki aðeins of stílis-
erað segir hann svo ekki vera.
„Áttan er tákn eilífðarinnar og þar sem ég ætla að
vera kvæntur þessari konu það sem eftir er þá fannst
okkur það viðeigandi. Svo eru líka átta ár síðan við
byrjuðum saman og því fannst okkur þetta eiga vel
við,“ segir Arnar Gauti.
Hann bað Aðalbjargar fyrir tveimur og hálfu ári.
„Það var mjög fallegur dagur. Við hættum snemma í
vinnunni og fórum saman á skauta. Eftir það fórum
við heim og borðuðum góðan mat og svo færði ég
henni armband frá gullsmiðunum í OR og inni í því
stóð: Viltu giftast mér?“ segir hann. Vígslan fer fram
í Dómkirkjunni og þegar þau fóru á fund með Hjálm-
ari Jónssyni dómkirkjupresti fyrir tveimur árum
spurði hann brúðhjónin hvort það væri einlægur
ásetningur að giftast því honum fannst fyrirvarinn
eiginlega of góður. Ertu búinn að ákveða í hverju þú
ætlar að vera? „Nei, ég hef engar áhyggjur af því,“
segir hann og hlær. - MMJ
Ætlar að kvænast 08.08.08
Arnar Gauti og Aðalbjörg með börnin sín, París og Kiljan
Gauta.
KALLI BJARNI SITUR
VIÐ SKRIFTIR
Idolstjarnan Kalli Bjarni, sem af-
plánar dóm sinn á Kvíabryggju
lætur sér ekki leiðast. Þegar hann er
ekki að búa til mat handa samföng-
um sínum situr hann
við skriftir. Kunnugir
segja að Kalli Bjarni
sé að hamra barna-
bók á lykla-
borðið. Nú er
aðalspenn-
ingurinn á
bryggjunni
góðu hvort bókin
muni bera nafn-
ið Kalli fær sér
kók eða Kalli
í klandri?
„Ég ætla að skella mér í Miami-partí í kvöld hjá
snillingi sem heitir Sesselja,“ segir Anna Pála
Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna.
Vinkona hennar ætlar að halda stórt sumarpartí
og slá tvær flugur í einu höggi, afmælispartí og
kveðjupartí því hún fer til Miami í Bandaríkjunum
í skiptinám í næsta mánuði.
„Svo ætla ég í útilegu Ungra
jafnaðarmanna á Klepp-
járnsreykjum á laugardag-
inn. Við eigum von á mjög
góðu stuði og allir sem
hafa áhuga á félagsskap
ungra jafnaðarmanna eru
velkomnir. Við segjum að
þetta sé hátíð ástar og
friðar.“
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ
GERA UM HELGINA?
Anna Pála Sverrisdóttir, formaður
Ungra jafnaðarmanna
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Ritstjóri Marta María Jónasdóttir
martamaria@365.is
Alma Guðmundsdóttir
alma@365.is
Þórunn Elísabet Bogadóttir
thorunn@365.is
Forsíðumynd Arnþór Birkisson
Útlitshönnun
Arnór Bogason og
Kristín Agnarsdóttir
Auglýsingar Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462
Föstudagur Skaftahlíð 24
105 Reykjavík, sími 512 5000
FÖSTUDAGUR
P
artíið var haldið í Forbes
House í London og var rosa-
lega flott, enda haldið af há-
tískuhúsinu Ermenegildo
Zegna til heiðurs Garðari,“ segir
Einar Bárðarson umboðsmaður
Garðars um teiti sem haldið var í
tilefni af útgáfu plötunnar When
you say you love me og samningi
Garðars við tískuhúsið.
„Garðar var valinn sendiherra
Zegna sem er eitt stærsta og flott-
asta herratískuhús í heimi,“ út-
skýrir Einar sem var að vonum
ánægður með teitið, enda mættu
margir góðir gestir úr fjölmiðla-
og tónlistarheiminm. Þar á meðal
var útvarpsmaðurinn David Jen-
sen ásamt konu sinni Guðrúnu
Jensen, en David er einn þekkt-
asti útvarpsmaður Bretlands. Auk
þess mætti Harvey Goldsmith
sem sá meðal annars um Live Aid
tónleikana með Bob Geldof, en það
var engin önnur en Dorrit Mouss-
aieff forsetafrú sem kynnti Garð-
ar fyrir gestum kvöldsins.
alma@365.is
Dorrit mætti í rauðum skóm í útgáfuboð Garðars Cortes:
Garðar í stjörnufansi
Garðar Cortes
ásamt umboðs-
manni sínum
Einari Bárðarsyni
og Carl Mach-
in, en Carl hefur
séð um Garðar á
ferðalögum hans
víðsvegar um
Bretland.
Dorrit Moussaieff var
glæsileg að vanda þar
sem hún mætti í rauð-
um skóm og dökk-
bláum kjól í teitið, en
hún kynnti Garðar fyrir
gestum Forbes House.
Skór og töskur
Þráinn Skóari Skóbúð • Grettisgata 3
„Við erum búin að búa hér í fimmtán ár og okkur
langar bara að breyta aðeins til,“ segir Þorgrímur
Þráinsson, en hann og konan hans, Ragnhildur
Eiríksdóttir, hafa sett hús sitt við Tunguveg
í Reykjavík á sölu. Húsið er rúmir 210 fer-
metrar að stærð, en þar af er 60 fermetra
íbúð í kjallaranum, sem Þorgrímur og
Ragnhildur eru nýbúin að gera upp.
„Okkur langar jafnvel að minnka að-
eins við okkur og eignast sumarbústað.
Það er engin ástæða til þess að eiga of mikið
þegar aldurinn færist yfir,“ segir Þorgrímur og
hlær. „Maður verður aðeins að þora að fara út úr
þægindahringnum og breyta aðeins til. Mér finnst
það bara skemmtilegt.“
Nú þegar hafa þau fengið tilboð í húsið, og eiga
von á öðru. „Enda er þetta flott hús og á góðum
stað,“ segir Þorgrímur. Hann segir þau hjónin þó
ekki vera búin að finna sér annað húsnæði. „Við
ákváðum að leita ekkert fyrr en við værum búin
að selja til þess að vera ekki að lenda í vandræð-
um eins og margir, að kaupa og treysta á einhverja
sölu. Þessir tímar eru ekki beint gæfulegir í þeim
efnum.“ - þeb
GLÆSIHÚS ÞORGRÍMS ÞRÁINSSONAR KOMIÐ Á SÖLU
Langar í sumarbústað
Tunguvegur 12 er falt fyrir 59.9 milljónir.
2 • FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2008