Fréttablaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 54
30 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Annar Olsen-tvíburanna, Mary-
Kate, gæti verið á leið aftur í
meðferð. Stúlkan hefur verið iðin
við drykkju og skemmtanahald
upp á síðkastið og eru hennar
nánustu farnir að hafa áhyggjur
af henni. Nýlega náðust myndir af
Mary-Kate þar sem hún hrundi í
götuna í annarlegu ástandi.
Tvíburinn eyddi næstu dögum í
heilsulind þar sem hún jafnaði sig
eftir drykkju kvöldsins. „Mary-
Kate þarf nauðsynlega að fara í
meðferð. Hún heldur að þar sem
hún er ung og nýmóðins að hún
geti lifað lífinu eins og henni sýn-
ist. En drykkjan er farin að hafa
slæm áhrif á allt sem hún gerir,“
sagði heimildarmaður við tímarit-
ið Star. Margir telja að Mary-Kate
sé með þessu móti að drekkja
sorgum sínum en hún hefur átt
erfitt með að jafna sig á fráfalli
vinar síns, leikarans Heaths
Ledger.
MARY-KATE Á erfitt uppdráttar
eftir fráfall Heaths Ledger
Mary-Kate saknar Heaths
Sjálfur Holy B, Helgi Björns,
varð fimmtugur í gær. Sama
dag hittist svo skemmtilega
á að nýja sólóplatan hans,
Ríðum sem fjandinn, skaust
beint í fyrsta sæti Tónlist-
ans og ýtti sjálfri Sigur Rós
niður fyrir sig.
„Það er aldeilis, þetta er skemmti-
legt,“ sagði Helgi þegar honum
voru færð tíðindin í gær. Hann var
að koma ofan af Vatnajökli á jepp-
anum sínum. „Hér er búið að vera
alveg æðislegt. Við erum bara að
flækjast saman, konan og dóttir
mín. Við sáum Hvannadalshjúk,
Kverkfjöll og Snæfell, allt á sama
tíma, sem gerist víst ekki oft. Þeir
hafa skartað þessu öllu fyrir mig í
afmælisgjöf.“
Helgi segist ekki hafa nennt í
bæinn eftir Landsmót hestamanna
á Hellu heldur haldið í austurátt.
„Maður er bara eins og sígauni.
Hver dagur býður upp á eitthvað
nýtt. Við gætum þess vegna verið
komin yfir Kjöl á morgun. Planið
er samt að flækjast um Austurland
næstu daga en þaðan förum við til
Sardiníu. Ég hef ferðast töluvert
um Ítalíu en aldrei komið þangað
áður.“ Helgi segist líklega bjóða til
fimmtugsveislu í haust, hann hafi
bara ekki nennt því núna. „Það er
bara frábært að hafa náð þessum
áfanga, maður hefur meiri yfir-
sýn, held ég. Ég er ekki frá því að
mér hafi liðið aðeins betur þegar
ég vaknaði í gær en daginn áður.“
En hvað með ævisöguna? „Ævi-
söguna?! Tja, það er aldrei að vita,
en samt ekki næstum því strax.
Mér finnst ég þurfi að hafa frá ein-
hverju meiru að segja.“
gunnarh@frettabladid.is
Helgi fagnaði fimmtugs-
afmælinu uppi á Vatnajökli
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
VATNAJÖKULL Í DAG, SARDINÍA
Á MORGUN Helgi Björns heldur
upp á hálfu öldina með flækingi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR