Fréttablaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 32
Á meðan alþjóð hefur séð Rebekku Kolbeinsdóttur á sviði með Merzedes Club hefur lítið sem ekkert verið fjallað um söngkonuna sjálfa í fjöl- miðlum. Á bakvið sterka ímynd bandsins býr viðkunnanleg stelpa sem veit hvað hún vill. „Ég var rosalega iðin sem barn, var alltaf í söng, annaðhvort í kórum eða einsöng, æfði ballett, fimleika og var lengi vel í hesta- mennsku. Eftir að hafa dottið af baki nokkrum sinnum fékk ég hins vegar nóg og er of hrædd til að fara á bak í dag.“ segir Rebekka sem ólst upp í Hafnarfirðinum fram að tólf ára aldri, en þá ákváðu móðir hennar og stjúpfaðir að flytjast á Hvolsvöll. „Ég man að ég var alls ekki sátt við þessa ákvörð- un þeirra, en við fluttum að Mið- túni, sem er heimabær mömmu á Hvolsvelli. En áður en ég vissi af var ég byrjuð að kynnast krökk- unum og eignast vini. Ég fór svo í skólakórinn um tíma og byrjaði að æfa einsöng,“ segir Rebekka sem fékk snemma sína fyrstu reynslu á sviði. „Ég fékk hlutverk Ídu í Emil í Kattholti sem Leikfélag Rangey- inga setti upp þegar ég var þrettán ára. Þá hafði ég fengið smá reynslu af því að leika því ég lék hlutverk Mjallhvítar í fjórða bekk í barna- skóla. Það var gaman að fá bæði að syngja og leika og það spillti ekki fyrir að besti vinur minn var í hlutverki Emils,“ segir Rebekka sem smitaðist snemma af leiklist- arbakteríunni. „Mig langaði alltaf að verða leikkona eða söngkona og þá helst að leika í bíómyndum. Þegar ég var átta ára gömul fékk ég gefins gamla vídeóupptökuvél og lék mér þá tímunum saman að því að búa til bíómyndir með vin- konum mínum, leikstýra og gera handrit. Mig langar enn þá til að spreyta mig í leiklistinni og gæti vel hugsað mér að gera það í fram- tíðinni,“ segir Rebekka. Flutt að heiman sextán ára Þegar Rebekka var sextán ára langaði hana að fara í mennta- skóla í bænum svo hún flutti frá Hvolsvelli ein síns liðs. „Mig langaði að fara í Mennta- skólann við Sund svo ég ákvað að flytja og fór að leigja íbúð rétt hjá, í bílskúr sem búið var að inn- rétta. Ég fór á málabraut og kunni vel við mig í skólanum en bók- námið átti engan veginn við mig. Ég verð að fást við eitthvað skap- andi og get ekki bara setið og lesið bækur, svo ég hætti eftir tveggja ára nám,“ segir Rebekka og sér ekki eftir því að hafa sagt skil- ið við skólann. „Ég fór að vinna á leikskóla og kom víða við í mis- munandi störfum á meðan ég var að velta fyrir mér hvað mig lang- aði til að gera. Ég leiddi hug- ann að því að fara í Iðnskólann og feta jafnvel í fótspor mömmu og læra grafíska hönnun. Á þess- um tíma bjó Ívar Örn bróðir minn með mér og við byrjuðum að fikta okkur áfram í tónlistinni þegar ég kom heim á kvöldin. Þá fékk hann mig stundum til að syngja yfir eitthvað sem hann var búinn að semja, en þetta var áður en hann byrjaði í Dr. Mister and Mr. Hand- some,“ útskýrir Rebekka og segir söngáhugann hafa kviknað fyrir alvöru um þetta leyti. „Ég fann að þetta var það sem mig langaði til að gera og fór að átta mig á að ég vildi leggja sönginn fyrir mig.“ Óvænt kynni Rebekka er í sambúð með Magn- úsi Haraldssyni tónlistarmanni en þau kynntust óvænt fyrir rúm- lega tveimur árum og hafa verið saman síðan. „Það er frekar fyndið hvern- ig við kynntumst, því ég var bara að labba heim á föstudagskvöldi þegar hann gekk á móti mér og við fórum að spjalla saman. Í kjölfar- ið bauð hann mér upp á drykk og innan tveggja mánaða vorum við byrjuð að búa saman,“ segir Re- bekka og brosir. Spurð um þátttökuna í for- keppni Evróvisjón segir hún til- komu hennar hafa komið mjög óvænt á daginn. „Ég ætlaði sko aldrei að fara í Evróvisjón. Ég hafði verið að syngja bakraddir fyrir The End, bandið hans Magga kærasta míns, og var eiginlega nýkomin inn í hljómsveitina þegar Valli Sport hringdi í mig. Hann spurði hvort ég vildi syngja lag eftir Barða Jó- hannsson í forkeppni Evróvisjón, en honum hafði þá verið bent á mig og heyrt mig syngja með The End,“ útskýrir Rebekka. „Evróvisjónkeppnin heillaði mig ekki sem slík en mér hefur alltaf fundist Barði töff og fíla tónlistina hans svo ég fór og hitti hann og Valla til að heyra lagið. Mér fannst það strax mjög flott og stemningin í því átti vel við mig, svo eftir að hafa farið í prufu var ákveðið að ég yrði með. Þá voru bara þrír dagar í keppnina sjálfa, svo ég hitti strákana strax og við byrjuðum að æfa eins og brjálæð- ingar, enda lítill tími til stefnu. Þá átti líka eftir að redda öllu sem Rebekka Kolbeinsdóttir skaust fram á sjónarsviðið á síðasta ári þegar hún tók þátt í forkeppni Evróvisjón með hljómsveitinni Merzedes Club. Margir bjuggust við að lagið „Ho, ho, ho, we say hey, hey, hey“ yrði framlag okkar Íslendinga í Evróvisjón í ár en svo varð ekki. Rebekka segist vera fullkomlega sátt við lyktir mála og nýtur velgengni hljómsveitarinnar til hins ítrasta. Alma Guðmundsdóttir hitti Rebekku og fékk að skyggnast inn í líf skvísunnar í silfurgallanum. Fer í ræktina til að fita sig Rebekku þekkja margir sem stelpuna í spandexgallanum. Hún segist kunna vel við sig á sviðinu og hlakkar til sumarsins með Merzedes Club. MYND/AUÐUNN. 8 • FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2008 Í HNOTSKURN Besti tími dagsins: Kvöldin Sjörnumerki: Steingeit Uppáhaldsmatur: Pizzan henn- ar mömmu Uppáhaldsdrykkur: Eðal toppur Mesta freistingin: Fatakaup Skemmtilegast: Syngja og vera á sviði Leiðinlegast: Að gera ekki neitt Diskurinn í spilaranum: Smáskífan Í frelsarans nafni með Sigga Lauf Draumafrí: Á einhverjum sólrík- um stað með Magga kærastan- um mínum Hverju myndirðu sleppa ef þú ættir að spara: Keyra minna og minnka fatakaup
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.