Fréttablaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 10
10 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
KJARAMÁL Forystumenn stéttar-
félaga á opinberum vinnumark-
aði velta fyrir sér hvernig kjör
kvennastétta verða leiðrétt ef það
er ekki gert í gegnum kjarasamn-
inga og hafa áhyggjur af því hve
skammt á veg komin nefnd um
aðgerðir til að jafna launamun
kynjanna á opinberum markaði
er ef kynna eigi aðgerðirnar í
haust.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélags Íslands,
segir að loforð ríkisstjórnarinnar
um að minnka óútskýrðan launa-
mun hafi verið hermd upp á ríkis-
stjórnina í kjaraviðræðum síð-
ustu mánuði en ekkert sé gert til
leiðréttingar í kjarasamningum.
„Mér skilst að ríkisstjórnin ætli
að spila þessum aðgerðum út sér-
tækt í haust en skil ekki hvernig
það verður gert. Ef þetta verður
ekki gert í gegnum kjarasamn-
inga þá átta ég mig ekki alveg á
því hvernig það á að gerast,“
segir Kristín og spyr hvort kven-
ráðherrarnir séu „undir skóhæl-
um karlráðherranna með sama
hætti og við á vinnumarkaðnum
og fái engu ráðið í ríkisstjórninni,
sérstaklega ekki gagnvart Árna
Mathiesen fjármálaráðherra“.
Þrír starfshópar vinna að því
að jafna launamun kynjanna og
er vinna þeirra mislangt á veg
komin. Í skipunarbréfi í starfs-
hóp um launamun á opinberum
markaði segir að hópurinn eigi að
setja fram áætlun um að minnka
óútskýrðan launamun hjá hinu
opinbera með það að markmiði að
minnka hann um helming á kjör-
tímabilinu og gera tillögur um
hvernig endurmeta eigi kjör
kvennastétta.
Ólöf Nordal, formaður starfs-
hópsins, segir að nefndin hafi sett
sig inn í málin og rætt ýmislegt
en ekki neinar tillögur. Engin sér-
stök tímapressa sé í gangi fyrir
haustið og ekki von á að nefndin
ljúki störfum fyrir þingið í
október en vonandi fáist þá við-
brögð við vinnu nefndarinnar eða
áfangaskýrslu. Mestu skipti að
nefndarmenn nái saman um not-
hæfar og góðar tillögur.
Maríanna Traustadóttir, full-
trúi í starfshópi um aðgerðir á
almennum markaði, segir stefnt
að því að kynna aðgerðir í sér-
stakri málstofu á þinginu. Tillög-
urnar gangi út á að gefa út veg-
vísi fyrir fyrirtæki, koma á
starfsmati svipað og hjá Reykja-
víkurborg og þróa vottunarkerfi
á framkvæmd jafnréttisstefnu,
svipað og á Bifröst.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sagði á ráðstefnu í
nóvember að tími aðgerða væri
runninn upp, ætlast væri til
árangurs. ghs@frettabladid.is
Skilur ekki
hvernig kjörin
verða jöfnuð
Formaður Sjúkraliðafélagsins skilur ekki hvernig
launamunur kynjanna verður jafnaður hjá hinu
opinbera ef ekki í gegnum kjarasamninga og spyr
hvort kvenráðherrar séu undir hælum karlráðherra.
UNDIR SKÓHÆLUM KARLRÁÐHERRANNA? Kristín Á. Guðmundsdóttir, formað-
ur Sjúkraliðafélagsins, spyr hvort kvenráðherrarnir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála- og tryggingaráðherra séu
„undir skóhælum karlráðherranna“, eins og hún orðar það, „og þær fái engu ráðið í
ríkisstjórninni.“
Mér
skilst að
ríkisstjórnin ætli
að spila þessum
aðgerðum út
sértækt í haust en
skil ekki hvernig
það verður gert.
SJÁVARÚTVEGUR Sævar Gunnars-
son, formaður Sjómannasam-
bands Íslands, segir kjarastöðu
sjómanna misgóða. „Hún er
þokkaleg gagnvart sjómönnum á
vinnsluskipum sem njóta þess að
gengið [krónunnar] er lágt. Það
hefur ekki skilað sér með sama
hætti til þeirra sem landa
aflanum á landi,“ segir hann.
Sævar segir að mikil gengis-
lækkun frá áramótum sé mikil-
væg sjómönnum, nú þegar
eldsneytiskostnaður eykst og afli
er skorinn niður. Hann segir
hækkandi heimsmarkaðsverð á
sjávarafurðum hafa gert útgerð-
um kleift að standa undir háu
gengi krónunnar síðustu ár. Nú sé
hins vegar útlit fyrir að sú þróun
sé að snúast við, karfi hafi til
dæmis fallið mjög í verði.
- gh
Sævar Gunnarsson:
Staða sjómanna
er þokkaleg
KRISTÍN Á. GUÐ-
MUNDSDÓTTIR
SJÁVARÚTVEGUR Heildarafli íslenskra
skipa árið 2007 var tæp 1.396 tonn
en það er 73 þúsund tonnum meira
en árið 2006 sem er um 5,5 prósenta
aukning. Heildaraflinn var hins
vegar meiri árið 2005 en 2007. Þetta
kemur fram í tímaritinu Afli, afla-
verðmæti og ráðstöfun afla 2007
sem Hagstofa Íslands gaf út í gær.
Aflaverðmæti fisksins var rúmir
80 milljarðar króna og jókst um 5,4
prósent frá fyrra ári. Stærsti hluti
heildaraflaverðmætisins var enn
sem fyrr þorskurinn en þorskafli
nam 29,6 milljörðum eða um 37
prósentum.
Samdráttur var í öllum tegund-
um botnsjávarfiska frá því árið
2006 nema ýsu en þar jókst aflinn
um 13,2 prósent. Uppsjávaraflinn
jókst um 13,1 prósent.
Heildarafli þorsks var rúmlega
174 þúsund tonn en var tæplega
200 þúsund tonn árið 2006. Þorsk-
afli hefur dregist saman jafnt og
þétt frá því árið 1987 en þá var
heildaraflinn tæp 400 þúsund tonn.
Samkvæmt nýrri ákvörðun um
heildaraflamark verður 130 þús-
und tonnum úthlutað fyrir næsta
fiskveiðiár.
Á árinu 2007 veiddust 109 þús-
und tonn af ýsu. Afli í ýsu hefur
ekki verið meiri frá því kvótakerf-
ið komst á en reynt hefur verið að
auka ýsuaflann vegna minnkandi
heildaraflamarks í þorski. Heildar-
aflamark ýsu á komandi fiskveiði-
ári verður 93 þúsund tonn. - vsp
Heildarafli og heildarverðmæti íslenskra skipa jókst milli áranna 2006 og 2007:
Mesta ýsuveiði í langan tíma
LÖNDUN SMÁÝSU Heildarafli ýsuveiði
hefur aukist mikið milli ára og hefur ekki
verið jafnmikill í langan tíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
REYKJAVÍK „Borgin verður að fara
að lögum og reglum. Það er ekki
bara hægt að taka einhverjar geð-
þóttaákvarðanir. Meirihlutanum
virðist í sjálfvald sett hvaða lögum
þeir fylgja,“ segir Sóley Tómas-
dóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri
Grænna.
Nýlega var hrint af stað átaki
gegn veggjakroti í Reykjavík.
Málað hefur verið á veggi í einka-
eign án þess að tala við eigendur að
sögn Sóleyjar. Hún segir að farið
sé á svig við stjórnsýslulög með
því að gefa eigendum ekki kost á
því að tjá sig.
Sigurður Helgi Guðjónsson, for-
maður Húseigendafélagsins, er
sammála Sóleyju. „Það á að gefa
eigendum kost á að bregðast við
þessu. Einhver
móðursýki virð-
ist vera í gangi
og farið er fyrir-
varalaust í
aðgerðir. Þetta
samrýmist ekki
neinu meðal-
hófi,“ segir Sig-
urður.
Í bókun meiri-
hluta frá því á
borgarráðsfundi í gær segir að í
tveimur tilvikum virðist hafa verið
um mistök að ræða þegar málað
var yfir húsvegg. „Það er miður, en
breytir engu um þann mikla árang-
ur sem borgarbúar hafa orðið vitni
að á undanförnum vikum og mán-
uðum,“ segir í bókuninni. - vsp
Harma harkalegar aðgerðir í veggjakrotsmálum:
Á að gefa húseigendum
kost á að bregðast við
SIGURÐUR HELGI
GUÐJÓNSSON
LIST Belgi og Kínverji framkvæma
Sútra-ballet á alþjóðlegri listahátíð í
Avignon í Frakklandi. NORDIC/PHOTOS
HEILBRIGÐISMÁL Ríkisendurskoðun
ætlar að gera stjórnsýsluúttekt á
Heilbrigðisstofnun Austurlands.
Stefán Þórarinsson,
framkvæmda stjóri lækninga,
segir að skoðunin sé nýhafin og
að um sé að ræða almenna
skoðun á stofnuninni.
Fréttablaðið greindi frá því
nýlega að Heilbrigðisstofnun
Austurlands hefði verið rekin
með 200 milljóna króna halla
fyrstu fimm mánuði ársins og
væri komin í vanskil við birgja.
Sífellt yrði erfiðara að reka
stofnunina og að vandinn væri
stærri en svo að stjórnendur
réðu einir við hann. - ghs
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja:
Stjórnsýslu út-
tekt nýhafin