Fréttablaðið - 14.07.2008, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 14.07.2008, Blaðsíða 10
10 14. júlí 2008 MÁNUDAGUR ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 4 23 61 0 5/ 08 • Árið 2009 verða liðin hundrað ár frá stofnun Vatnsveitunnar. www.or.is Sögur og sagnir í Elliðaárdal Gengið neðan Árbæjarstíflu. Þriðjudags- kvöldið 15. júlí verður farin göngu- og fræðsluferð í Elliðaárdal undir leiðsögn Stefáns Pálssonar sagnfræðings. Dalurinn á sér merka sögu allt frá komu Ketilbjarnar gamla, landnámsmanns, þangað. Gengið verður um og sagðar sögur. Gangan hefst kl. 19.30 við Minjasafnið í Elliðaárdal. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. RV U n iq u e 0 60 80 1 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Glerfínar gluggafilmur - aukið öryggi á vinnustað 3M gluggafilmur fyrir skóla, sjúkrahús, skrifstofur, verslanir og aðra vinnustaðiFagmenn frá RV sjá um uppsetningu FLÓTTAMENN Enginn þeirra 55 þing- manna sem Fréttablaðið spurði hvort dómsmálaráðherra ætti að „beita sér til að fá Paul Ramses aftur frá Ítalíu, að því gefnu að saga Pauls sé sönn“ svaraði því neitandi. Hins vegar vildu flestir, 30, ekki taka afstöðu og svara. „Dómsmálaráðherra hefur iðu- lega snúið við ákvörðunum Útlend- ingastofnunar,“ segir Haukur Guð- mundsson, starfandi forstjóri Útlendingastofnunar. Slík ákvörðun væri því ekki ýkja óvenjuleg. 25 þingmenn, bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu, svöruðu játandi, en 8 náðist ekki í, þrátt fyrir fjölda tilrauna, skilaboð og tölvupósta. 10 stjórnarþingmenn svöruðu ját- andi, 8 úr Samfylkingu og 2 úr Sjálf- stæðisflokki. Einn sjálfstæðismað- ur til viðbótar sagði reyndar já, en vildi ekki koma fram undir nafni. Hann telst ekki vilja svara. 20 sjálfstæðismenn svöruðu ekki og ekki náðist í 3 þeirra. Úr Sam- fylkingu vildu 6 ekki svara og ekki náðist í 4 þeirra. Úr stjórnarandstöðu sögðu 15 já, en 4 svöruðu ekki. Úr 7 manna þingflokki Framsóknar voru 5 sem sögðu já, en 2 vildu ekki svara. Af 4 þingmönnum Frjáls- lynda flokksins sögðu 2 já, en tveir svöruðu ekki. Af 9 þingmönnum Vinstri grænna náðist í 8 og voru þeir allir á því að dómsmálaráðherra skyldi beita sér. klemens@frettabladid.is Þingmenn um Paul Enginn 55 þingmanna svaraði neitandi spurningu Fréttablaðsins um hvort dómsmálaráðherra ætti að beita sér til að fá Paul Ramses aftur frá Ítalíu. 30 skoruðust undan svari, en 25 svöruðu játandi. Ekki náðist í 8 þingmenn. ARNBJÖRG SVEINSDÓTTIR, D ÁRMANN KR. ÓLAFSSON, D ÁRNI PÁLL ÁRNASON, S ÁRNI JOHNSEN, D ÁRNI M. MATHIESEN, D ÁSTA MÖLLER, D BIRGIR ÁRMANNSSON, D BJÖRK GUÐJÓNS- DÓTTIR, D BJÖRN BJARNA- SON, D EINAR K. GUÐ- FINSSON, D GUÐFINNA S. BJARNADÓTTIR, D GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON, F GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON, D GUÐNI ÁGÚSTS- SON, B ILLUGI GUNN- ARSSON, D INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR, S JÓN GUNNARS- SON, D KARL V. MATTHÍASSON, S KJARTAN ÓLAFSSON, D KRISTINN H. GUNNARSSON, F Þessir vildu ekki taka afstöðu og svara spurningunni. Útskýrðu þeir það með ýmsum hætti. Margir telja ósanngjarnt að svara já eða nei spurningu og geta svo ekki skýrt afstöðu sína betur. Einn reiddist og sagði ekki hlutverk fjölmiðils að hlera skoðanir þingmanna með þessum hætti. Annar sagði já en vildi ekki vera nafn- greindur. Þriðji vildi að farið yrði eftir barnalögum, en vildi ekki svara. Nokkrir lýstu yfir trausti sínu á Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra. Hann fyndi eflaust farsæla lausn. Björn sjálfur tekur fram að þingmenn setji fram- kvæmdavaldinu ekki ramma með skoðanakönnun. VILJA EKKI SVARA „Ætti dómsmálaráðherra að beita sér til að fá Paul Ramses aftur frá Ítalíu, að því gefnu að saga Pauls sé sönn?“ Eftirtaldir sögðu já: BJÖRN BEITI SÉR STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON, V STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR, S VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR, B ÞURÍÐUR BACKMAN, V ÖGMUNDUR JÓNASSON, V ATLI GÍSLASON, V ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON, S ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR, V ÁSTA R. JÓHANN- ESDÓTTIR, S BIRKIR J. JÓNSSON, B BJARNI HARÐARSON, B EINAR MÁR SIGURÐARSON, S ELLERT B. SCHRAM, S GRÉTAR MAR JÓNSSON, F GUÐBJARTUR HANNESSON, S GUNNAR SVAVARSSON, S HERDÍS ÞÓRÐAR- DÓTTIR, D HÖSKULDUR ÞÓRHALLSSON, B JÓN BJARNASON, V JÓN MAGNÚSSON, F KATRÍN JAKOBS- DÓTTIR, V KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR, S KOLBRÚN HALL- DÓRSDÓTTIR, V MAGNÚS STEFÁNSSON, B RAGNHEIÐUR RÍK- HARÐSDÓTTIR, S ELDING Í KÍNA Þessari miklu eldingu laust niður í Ningbo Zheijang-héraði í austanverðu Kína, þar sem vatnsflóð og aurskriður hafa plagað íbúa í kjölfar tveggja daga úrhellis. NORDICPHOTOS/AFP BÓKMENNTIR Stjórn Rithöfunda- sambands Íslands telur ekki leika vafa á að stjórn Bókmenntasjóðs hafi starfað innan ramma laga, við úthlutun úr sjóðnum í maí. Stjórnin vill því ekki verða við beiðni 29 höfunda um að álykta sérstaklega um störf hins unga Bókmenntasjóðs. Höfundarnir höfðu meðal ann- ars farið fram á afstöðu stjórnar- innar til þess að engin ný íslensk skáldverk hefðu fengið styrki í fyrstu úthlutun sjóðsins. Telja þeir sjóðinn hafa „gengið í berhögg við eigin úthlutunarlög“ með þessu. Stjórn Rithöfundasambandsins telur að óæskilegt sé að fella dóma um einstakar úthlutanir eða umsóknir. Að auki sé lítil reynsla komin af sjóðnum. „Látum að minnsta kosti þau þrjú ár líða sem núverandi stjórn situr áður en við kveðum upp dóma um störf hennar,“ segir í svari stjórnarinnar. Minnir stjórn sam- bandsins á að í stjórn Bókmennta- sjóðs sitji tveir fulltrúar þess. „Stjórn RSÍ ber fullt og óskorað traust til þessara fulltrúa sinna,“ segir stjórnin. - kóþ Stjórn Rithöfundasambands hafnar beiðni um að álykta um Bókmenntasjóð: Sjóðurinn hafinn yfir vafa MATTHÍAS JOHANNESEN Fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins er meðal þeirra 29 sem skrifuðu undir bréfið til stjórnar Rithöfundasambandsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BANDARÍKIN, AP Íbúar í nágrenni eldfjallsins í Anchorage í Alaska þurftu að flýja ösku og steina sem rigndi yfir allt svæðið þegar eldgos hófst í nærliggjandi eldfjalli. Í sprengingunni flaug grjót í mikla hæð og öskuskýið náði allt að fimmtán þúsund metra hæð. Tíu manns flúðu staðinn, þar á meðal þrjú börn. Þau létu vita af sér með gervihnattasíma eftir að steinum og ösku rigndi yfir þau. Eldfjallið gaus síðast árið 1997 og þá rann mikið hraun frá eldfjallinu en það hefur ekki gerst að þessu sinni. Síðustu mánuði hefur eldfjallið sýnt merki um virkni. - mmr Eldgos í Alaska: Íbúar flýja ösku og steina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.