Fréttablaðið - 14.07.2008, Qupperneq 42
18 14. júlí 2008 MÁNUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Vesalings Gordon
Brown. Hann er með
óheppnari forsætis-
ráðherrum Breta; hann
tók við sökkvandi skútu
og nú er honum kennt
um allt sem miður fer á
meðan forveri hans, hinn
elskaði og dáði Tony Blair, flengist
glottandi um heiminn og vinnur sér
inn stig í stóru mannvinakeppni
fyrrum þjóðarleiðtoga. Á meðan
sekkur Bretland, svipað Íslandi, í
vonlaust kreppufen og almenning-
ur hefur upp raust sína og formæl-
ir áætlaðri vanhæfni forsætisráð-
herrans.
Gordon gefst þó ekki upp og
reynir sitt besta til þess að vera
rödd skynseminnar á þessum ógn-
vekjandi efnahagstímum. Í síðustu
viku hélt hann ræðu þar sem hann
hvatti samlanda sína til þess að
hætta að sóa matvælum. Hver
bresk fjölskylda kastar matvöru að
andvirði 64.000 íslenskra króna í
ruslið á ári hverju og að auki sóa
fyrirtæki, verslanir og veitinga-
staðir enn meiru. Gordon blöskraði
eðlilega þessar ógnvænlegu tölur
og hvatti því samlanda sína til
aðhalds í matarinnkaupum og
skipulagningar í matargerð. Tveim-
ur dögum eftir að Gordon lét þessa
skoðun frá sér var gerð könnun á
meðal kjósenda Verkalýðsflokksins
sem leiddi í ljós að 75 prósent
þeirra telja forsætisráðherrann
ömurlegan lúða.
En hægan, hægan. Þó að það sé
vissulega fremur asnalegt að hvetja
almenning til þess að borða minna
af mat þegar maður er sjálfur á leið
í átján rétta matarboð í Japan, þá er
Gordon bara alls ekkert svo galinn.
Hver sá sem hefur þurft á þremur
gulrótum að halda en neyðst til að
kaupa tvö kíló, því annað er ekki til
í búðunum, þekkir pirringinn sem
því fylgir að verða að borða gulræt-
ur í hvert mál í viku ellegar henda
einu og hálfu kílói, og þar með pen-
ingum, í ruslið. Hægt væri að
argintætast endalaust út í skítlegt
eðli stórmarkaðanna og þátt þeirra
í offitufaraldrinum, sem klárlega
er mikill, en það er sannarlega
þjóðráð að líta jafnframt í eigin
barm og kynnast frystinum og
niðursuðuvörum eilítið betur.
STUÐ MILLI STRÍÐA Hlustið á rödd skynseminnar
VIGDÍS ÞORMÓÐSDÓTTIR KYNNIST NIÐURSUÐUVÖRUM BETUR
Æ Æ Æ! Nýjar aðvaranir frá
framleiðendunum!
Drykkja getur
leitt þig út á
dansgólfið
En það á nú ekki
við alla!
Við vonum
bara það
besta! Skál!
Palli, ég bara verð að fá að
vita hvernig það kom gat á
vegginn á baðherberginu!
Þú vilt ekki
vita það.
Ha? Pældu í því. Ef ég segi þér allt sem gerist í mínu lífi þá er
ekkert sem við getum
uppgötvað um hvort
annað.
Og þá er ekkert sam-
band okkar á milli.
Ég er mamma þín. Það er ekkert
samband okkar á milli, við
verðum bara að þola
hvort annað. Og ég neyðist
til að halda
þessu fyrir
sjálfan mig.
Dagurinn byrjar ekki
fyrr en ég hef fengið
kaffi.
Ég nenni
ekki að
spila
meira.
Ekkert rugl. Þú
hættir ekki fyrr en
ég hef sannað að
þetta er svindl!
Fólk eyðir þúsundum
króna í svona spil og það
er svindlað á því!
Bangsarnir eru
búnir. Á ég að
velja mat-
vinnsluvélina
eða leikjatölv-
una?
Ég er að segja þér það
Halli, þessi hattur dregur
að stelpurnar!
Sendu SMS s
keytið
BT XXX á núm
erið 1900.
Þú færð spur
ningu og svar
ar með því að
senda
SMS skeytið
BT A, B eða C
á númerið 19
00.
TAKTU ÞÁTT!
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
10. HVER VINNUR!
*Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum þann 8. ágúst 2008. Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu. Leik líkur 8.ágúst 2008
SMS
LEIKUR
Aðalvinningur er
MEDION tölva
ásamt 19“ LG skjá!
Geggjaðir aukavinningar
PANASONIC MINIDV · iPod Nano · Playstation 3
GARMIN GPS · HP Prentarar · Olympus myndavélar
SonyEricsson gsm símar · PSP tölvur · Gjafabréf á Tónlist.is
Kippur af Gosi, Guitar Hero bolir og enn meira af
DVD myndum, geisladiskum og tölvuleikjum!