Fréttablaðið - 14.07.2008, Page 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
Í dag er mánudagurinn 14. júlí,
197. dagur ársins.
3.39 13.33 23.26
2.53 13.18 23.40
Sumar ríkisstjórnir fylgjast vel með þegnum sínum. Í bók
sinni um „Sögu Bretlands frá
stríðslokum“, segir Andrew
Marr (bls. 580), að eftir því sem
næst verði komist sé nú um fjór-
um komma tveimur milljónum
eftirlitsmyndavéla beint að
íbúum landsins. Lundúnabúi sem
heldur til vinnu sinnar og heim
aftur hefur verið kvikmyndaður
að meðaltali þrjúhundruð sinn-
um þegar hann kemur heim
aftur. Þar að auki hefur verið
fylgst með honum úr lofti, úr
þyrlum og gervihnöttum, auk
þess sem staðsetningartæki í bíl
og farsíma gefa upplýsingar um
hvar hann er staddur hverju
sinni. Andrew Marr telur að
nákvæmara eftirlit með borgur-
um þekkist hvergi, nema ef vera
kynni í Kína.
ÞESSU til viðbótar hefur lög-
reglan í Bretlandi leyfi til að
taka DNA-sýni úr öllum þeim
sem eru handteknir, auk þess
sem henni er gert að safna ljós-
myndum af lithimnum augans úr
sem allra flestum borgurum.
Skattrannsóknamenn í Bretlandi
hafa heimild til að fara inn á
heimili fólks og taka ljósmyndir
til að staðfesta hvort innbúið sé
verðmætara en skattframtalið
gefur til kynna ellegar hvort
fólk hefur laumast til að koma
sér upp glerhúsi á svölum eða að
húsabaki án tilskilinna leyfa.
ALLT þetta gerir stjórnin af
umhyggju fyrir þjóðinni, til að
auka öryggi og draga úr glæpum
og einkum hryðjuverkum. Það
er að vísu óleyst vandamál
hvernig hægt sé að nota allt
þetta gífurlega efni í forvarna-
skyni, því að það þyrfti stjarn-
fræðilegan fjölda fólks til að
skoða daglega þrjúhundruð kvik-
myndir um hvern Lundúnabúa
og ráða það af svip hans og fasi
hvort hann hafi illt í hyggju. Þó
er mögulegt í ákveðnum tilvik-
um að nota þetta mikla upplýs-
ingasafn til að auðvelda lögregl-
unni að upplýsa glæpi sem þegar
hafa verið framdir.
FORVIRKAR rannsóknarað-
ferðir til að koma í veg fyrir
glæpi hafa ennþá ekki verið
fundnar upp. Njósnir virðast
ekki duga til að draga úr glæp-
um. Það gerir hins vegar gamal-
dags umhyggja og virðing fólks
hvert fyrir öðru. Þar sem yfir-
völd bera virðingu fyrir almenn-
ingi ber almenningur virðingu
fyrir yfirvöldum.
Forvirkar
rannsóknir
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar