Fréttablaðið - 01.09.2008, Side 1

Fréttablaðið - 01.09.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MÁNUDAGUR 1. september 2008 — 237. tölublað — 8. árgangur VEÐRIÐ Í DAG RÓSA STEFÁNSDÓTTIR Heldur upp á muni með sögu • heimili Í MIÐJU BLAÐSINS nýttnýtt OPIÐ LAUGARDAG KL:11-16 FÓLK Íslensk fyrirtæki sem sinna erlendum kvikmyndafyrirtækjum hafa sjaldan haft jafn mikið að gera og í sumar. Helga Margrét Reykdal hjá True North segir að fyrirtækið hafi haft í nægu að snú- ast síðustu vikur. „Ágústmánuður er búinn að vera sérstaklega þéttur og fjörugur.“ segir Helga. Magnús Viðar Jónsson hjá Saga- Film og Andrea Brabin hjá Esk- imo hafa sömu sögu að segja. „Það hefur verið töluvert mikið að gera hjá okkur í sumar, mun meira en á sama tíma í fyrra. Fyrirspurnum frá erlendum fyrirtækjum hefur einnig fjölgað til muna,“ segir Magnús Viðar. Ástæðan að baki þessu mun vera slæmt gengi krón- unnar. „Staða krónunnar er mjög veik miðað við erlenda gjaldmiðla og það er fyrirtækjum eins og okkar í hag,“ segir Magnús Viðar. - sm / sjá síðu 30 Mikil eftirspurn eftir kvikmyndatökum á Íslandi eftir hrun krónunnar: Aldrei verið meira að gera GUÐBJÖRG ASTRID SKÚLADÓTTIR Lætur gott af sér leiða í dansi Klassíski listdansskólinn fimmtán ára TÍMAMÓT 18 FASTEIGNIR Nýtt og vel skipulagt einbýlishús Sérblað um fasteignir FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Sló kennurum sínum við Arkitektinn Guðni Björn Valberg átti þátt í vinningstillögu að Listaháskóla Íslands. Hann hafði betur gegn gömlum kennurum sínum úr skólanum. FÓLK 30 Spurt er um blöðrubólgu Auður Alfífa og Feministafélagið halda pub-quiz með fjölbreyttara spurn- ingavali en tíðkast. FÓLK 30 Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Aldur þessa skáps er á huldu, en amma mín fékk hann gefins fyrir langa löngu og þá var hann orðinn ævagamall. Á bernskuárum mínum var hann í öndvegi sem spariskápur í stofunni hjá afa og ömmu, en þegarég fékk é h b viðarmunstri, en á einhverjum tímapunkti málaði afi hann hvítan til að gera hann nútímalegri. Nú er hann aftur kominn í stofuhlutverk og geymir mitt fínasta púss, spari-kjóla og spariskó í pabba sínum og þar situr hann með gítar sem ég gaf honum í jólagjöf og æfir gripin. Við fluttum inn í ris-íbúð fyrir um ári og innbúið er að stórum hluta samtínin f á Heimanmundur með sálUndir súð í fögru risi í Sundunum stendur stolt heimilisins; stofuskápur með fortíð, sögu og sál. Sem í tímans rás hefur geymt það dýrmætasta í fórum íslenskra kvenna; bollapör, puntgripi og hælaskó. Rósa Stefánsdóttir og unnusti hennar búa hreiður sitt húsmunum úr fórum stórfjöl-skyldunnar, en þessi forláta skápur er í mestum metum hjá Rósu. FRÉTTA B LA Ð IÐ /G VA TÍMASPARNAÐUR getur hlotist af því að setja þvotta-körfu í herbergi allra fjölskyldumeðlima. Þegar körfurnar eru orðnar fullar er ráð að þvo innihaldið og þurrka og skila þvott-inum hreinum í körfunum til fjölskyldumeðlima. • 5 tímar í skvass • 5 tímar í Golf • máltíð á BK Kjúkling • 5 tímar í ljós • frítt í allar ÍTR sundlaugarnar• frír mánuður fyrir vin • tækjakennsla • bolur • brúsi Sport Klúbburinn Opið í dag frá kl 10.00 - 18 00 fasteignir 1. SEPTEMBER 2008 Fasteignasalan Ás hefur til sölu nýbyggt ein-býlishús með tvöföldum bílskú í ýj svefnherbergi og baðherbergi I Nýtt hús í nýju hverfi Fallegt og vel skipulagt einbýli innst í botnlanga. HÚSIN Í BORGINNI • Klapparstíg 5 • 101 Reykjavík • Sími 511 5005 • Fax 511 5009 • www.husin.is Fr u m Telma Róbertsdóttir Löggiltur fasteignasali Kristín Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali Steinunn Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali HÚSIN Í BORGINNI bjóða Kristínu og Steinu velkomnar til starfa … það borgar sig! NORÐURBAKKI 5 - HFJ. Fr u m OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 17.00 OG 18.00Sérlega vandaðar 3ja og 4ra herb. íbúðir m/stæði í bíla-geymslu í glæsilegu lyftuhúsi á frábærum stað í miðbæ Hfj. GLÆSILEGAR SÝNIGARÍBÚÐIR.KYNNIÐ YKKUR FRÁBÆRA GREIÐSLUMÖGULEIKA.Vandaðar innréttingar og tæki frá EGGGólfhiti m/hitastýringu í hverju rýmiExtra hljóðeinangrun milli hæðaExtra lofthæð Vandaðar innréttingar og tæki frá EGGFlísalagðar svalir og timburverandirStórar rennihurðar út á svalir og garðSjónvarpsdyrasími Þakgarður Afhending við kaupsamning. - Verð frá 26,7 millj. BJART Í FYRSTU Í dag verða norðlægar áttir, 3-10 m/s, hvassast með ströndum. Rigning norðan og austan til en bjart veður fram eftir degi á landinu sunnan- og vestan- verðu. Hiti 10-17 stig, hlýjast syðst. VEÐUR 4 10 11 11 15 13 STJÓRNMÁL Drög að reglum um skráningu á fjárhagslegum hags- munatengslum alþingismanna voru send úr forsætisnefnd til umsagnar þingflokka í mars 2007. Enginn þingflokkur svaraði erindinu nema VG, sem kom með breytingartillögur, um að hert yrði á reglunum og þær festar í lög, svo refsa mætti fyrir brot á þeim. Enginn þingflokksformaður hinna flokkanna man nákvæm- lega hvers vegna bréfinu var ekki svarað á sínum tíma, en þess skal getið að tveir þeirra voru ekki þingsflokksformenn þá. Málið er sagt hafa gleymst í aðdraganda alþingiskosninga í maí. Drögin eru að danskri fyrirmynd og sam- kvæmt þeim myndu þingmenn meðal annars gefa upp eignir sínar og gjafir sem þeir þiggja, yfir ákveðnu verðmæti. Bréfið hefur nú verið ítrekað, og liggur hjá þingflokksformönnum. „Það er eina vitið að menn setji heildstæðar reglur um þessa hluti, þannig að þetta sé gegn- sætt,“ segir Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylking- ar. Siv Friðleifsdóttir, formaður þingflokks Framsóknar, segir reglurnar lítið mál fyrir flokkinn. „Því við birtum þetta nú þegar á heimasíðu okkar. Við erum mjög opin fyrir þessu,“ segir hún. Vinstri græn birta einnig á heimasíðu sinni upplýsingar um eignir þingmanna og Þuríður Backman, fulltrúi VG í forsætis- nefnd, segir að flokkur hennar hafi lengi kallað eftir slíkum regl- um. Verst sé að drögin geri ráð fyrir að þingmenn velji hvort það fylgi reglunum eður ei. Valkvæðnin er „tóm vitleysa“ að mati Kristins H. Gunnarssonar, þingflokksformanns Frjálslyndra. „Það væri nær að gera þetta með lagafrumvarpi, svo þetta hafi einhverja lagalega stoð. Annað er tvískinnungur,“ segir hann. Annars er ekki á Kristni að heyra að þingmenn eigi að þurfa að gefa upp þessa hluti. Arnbjörg Sveinsdóttir, for- maður þingflokks sjálfstæðis- manna, telur ekki að reglurnar eigi að binda í lög. „Nei, ég sé enga ástæðu til þess. Kjörnir fulltrúar bera fyrst og fremst ábyrgð gagnvart kjósend- um sínum,“ segir hún. Baldur Þórhallsson, prófessor við Háskóla Íslands, segir val- kvæðar reglur „hálfkák“. „Annað hvort er að hafa reglur sem öllum ber að fylgja eða ekki. Og það má spyrja í framhaldinu: við hvað eru menn hræddir?“ - kóþ / sjá síðu 2 Þingmenn tefja reglurnar um eigin hagsmunatengsl Um átján mánuðir eru síðan drög að reglum um eignir þingmanna voru send til allra flokka. VG var eini flokkurinn sem svaraði. Ekki verður skylt að gefa upp eignir. „Við hvað eru menn hræddir?“ spyr prófessor. Bestu pólitíkusarnir Íslendingar eru ekki bara bestu handboltamennirnir heldur líka bestu stjórnmálamennirnir, skrifar Guðmundur Andri Thorsson. Í DAG 16 KJARAMÁL Samningafundi ljós- mæðra og samninganefndar ríkisins í gær lauk án árangurs. Guðlaug Einars- dóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segist ekki sjá neina viðleitni hjá samninganefnd ríkisins til þess að leysa deiluna. „Það ber mikið í milli. Við erum svartsýnar á að þetta leysist næstu daga.“ Verkföll ljósmæðra hefjast að óbreyttu á fimmtudag. Að sögn Guðlaugar er næsti fundur klukkan tvö í dag. Einnig er félagsfundur hjá Ljósmæðra- félaginu í kvöld þar sem þessi mál verða rædd. - þeb Kjaramál ljósmæðra: Svartsýnar á að deilan leysist GUÐLAUG EINARSDÓTTIR Fjölnir í úrslitaleikinn Tómas Leifsson tryggði Fjölnis- mönnum sigur, 3-4, á ögur- stundu gegn Fylki í gær. ÍÞRÓTTIR 26 BÚIST TIL BROTTFARAR Íbúar New Orleans voru hvattir til að yfirgefa borgina í gær fyrir komu fellibylsins Gústavs. Talið er að stormurinn komi til New Orleans í dag. Íbúar eru enn að jafna sig eftir að stormurinn Katrína fór þar um fyrir þremur árum og lagði borgina í rúst, segir Gestur Ólafsson prófessor sem býr norðvestan við New Orleans. Sjá síðu 4. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.