Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.09.2008, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 01.09.2008, Qupperneq 8
8 1. september 2008 MÁNUDAGUR Hringdu í síma ef blaðið berst ekki SVEITARSTJÓRNIR Samgönguráðu- neytið gerir ekki athugasemd við framkvæmd ráðningarsamnings Sigurðar Magnússonar bæjar- stjóra Álftaness. Ráðuneytið skoðaði málið að kröfu Guðmundar Gunnarssonar, oddvita minnihlut- ans í bæjarstjórn. Í úrskurði samgönguráðu- neytisins segir að 30 til 40 þúsund króna mánaðar- legar greiðslur til bæjarstjórans fyrir nefndarsetur utan stjórnsýslunnar séu ekki óhóflegar. Sveitarfélagið sé í fullum rétti að ákveða greiðslurnar. „Ég harma það þegar andstæð- ingar í stjórnmálum grípa til vinnubragða af því tagi sem gert var í þessu máli og ganga fram í að sverta og hafa æru af andstæð- ingi sínum þegar málefnaleg rök þrýtur,“ segir í yfirlýsingu frá Sigurði Magnússyni bæjarstjóra. - gar Úrskurður ráðuneytis: Bæjarstjóralaun ekki athugaverð SIGURÐUR MAGNÚSSON SAMGÖNGUR „Það er enginn burður í veginum lengur, þetta er bara drullusvað,“ segir Sonja Arnar- dóttir á Arabæ í Flóahreppi um fjögurra kílómetra vegakafla við Þjórsárver í Flóahreppi austan Sel- foss. Hún segir mikla umferð fara um veginn á degi hverjum, þar með talið skólabíll sem aki þar mörgum sinnum á dag. Henni finnst óvið- unandi að engar þungatakmarkan- ir gildi á veginum. Vöruflutninga- bílar aki oft þunghlaðnir um veginn og skemmi hann því enn frekar. „Það er búið að tala við sveitar- stjórnina og margbúið að hringja í Vegagerðina. Við viljum að það sé borið í veginn og hann sé gerður mönnum bjóðandi,“ segir Sonja. Svanur G. Bjarnason, svæðis- stjóri Vegagerðarinnar á Suður- landi, segir að fyrr í sumar hafi vegurinn verið heflaður og endur- mótaður. „Þá var efni tekið úr veg- köntum og heflað inn í veginn. En það hefur ekki heppnast nógu vel því þegar vegurinn blotnar þá veðst hann mikið upp í drullu,“ segir Svanur. Á fimmtudag var vegurinn heflaður og segir Svanur það hafa verið gert til að ýta helstu drull- unni ofan af veginum. Hann segir enga varanlega aðgerð áætlaða við umræddan veg fyrr en árið 2010 en þá standi til að leggja á hann bund- ið slitlag. Vegagerðinni sé ætlað að sjá til þess að vegurinn sé fær og því verði borið í veginn ef það þyki nauðsynlegt. - ovd Íbúar í Flóahreppi krefjast vegbóta á vegi við félagsheimilið Þjórsárver: Óboðlegur vegur í Flóahreppi DRULLUSVAÐ Eins og sjá má er vegurinn við Þjórsárver í Flóahreppi afar illa farinn, þrátt fyrir aðgerðir Vegagerðarinnar. LÖGREGLUMÁL Fíkniefnamarkaður á Íslandi virðist ótrúlega háþróaður. Þótt lögregla nái að leggja hald á mikið magn efna virðist það lítil áhrif hafa á framboð þeirra. Þetta segir Ari Matthíasson, fram- kvæmdastjóri félags- og útbreiðslu- sviðs SÁÁ. Ari rökstyður orð sín með því að vísa í að verð á fíkniefnum hafi ekki fylgt verðhækkunum í samfélaginu. Í átta ár hefur SÁÁ tekið saman tölur um verð á fíkniefnum með því að spyrja alla þá sjúklinga sem leita sér hjálpar hjá samtökunum um hvort þeir hafi keypt efni á síðastliðnum tveimur vikum og hvað þeir hafi greitt fyrir þau. Ari segir að jafnvel þegar mjög stórar sendingar af ólögleg- um efnum séu teknar, svo sem þegar lögreglan stöðvaði innflutn- ing á sextíu kílóum af örvandi vímu- efnum á Fáskrúðsfirði í fyrra, það er í svokölluðu smyglskútumáli, hafi það mjög tímabundnar verð- hækkanir í för með sér. Það sýni að framboð og eftirspurn eftir efnun- um séu mjög mikil. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir það rétt að áhrif af því þegar hald er lagt á fíkniefni, jafnvel mjög stórar send- ingar, virðist vara í skamman tíma. Fullyrðingar og útreikningar SÁÁ um stærð fíkniefnamarkaðarins á Íslandi virðist réttar – markaðurinn hér virðist óvenju umfangsmikill miðað við önnur lönd. Karl Steinar segir ekki hægt að benda á einfaldar lausnir til að draga úr innflutningi fíkniefna. Þó sé alltaf vert að benda á mikilvægi þess að borgararnir vinni með lög- reglunni og komi með ábendingar um ólöglega dreifingu á efnum. Staðan sé þó sú að nú geti lögreglan aðeins sinnt broti af þeim ábending- um sem berist. Á síðasta ári voru 650 fíklar í örv- andi efni greindir á sjúkrahúsinu Vogi. Rannsóknir sýna að eftir tíu ár má búast við því að um átta pró- sent þeirra verði látnir, stór hluti þeirra kominn með króníska sjúk- dóma svo sem lifrarbólgu og þá séu ótalin þau skaðvænlegu áhrif sem fíkniefnaneytandinn hefur á sam- félag sitt og fjölskyldu. „Þetta er skelfilegur faraldur sem nú er í hámarki,“ segir Ari. Hann segir að sú mikla fjölgun sem orðið hafi meðal fíkniefnaneytenda og sú aukna eftirspurn eftir efnum sem henni fylgi hafi átt að kalla á verð- hækkanir á efnum. Sú staðreynd að það hafi ekki orðið sýni vel hve framboðið sé mikið af ólöglegum vímuefnum. karen@frettabladid.is Framboð örvandi fíkni- efna í hámarki Þótt fíklum hafi fjölgað mjög hér á landi og eftir- spurn eftir efnum aukist hefur verð á fíkniefnum ekki verið í takt við verðlagsþróun. Lögregla getur aðeins sinnt broti af ábendingum um dreifingu efna. ARI MATTHÍASSON TÍMABUNDIN ÁHRIF Á MARKAÐINN Jafnvel þegar mjög mikið magn fíkniefna næst af lögreglu, svo sem í svokölluðu smyglskútumáli, virðist framboðið á efnum hér á landi það mikið að áhrifin af slíkum handlagningum eru mjög tímabundin. KARL STEINAR VALSSON Þetta er skelfilegur faraldur sem nú er í hámarki. ARI MATTHÍASSON FRAMKVÆMDASTJÓRI FÉLAGS- OG ÚTBREIÐSLUSVIÐS SÁÁ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.