Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.09.2008, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 01.09.2008, Qupperneq 17
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Aldur þessa skáps er á huldu, en amma mín fékk hann gefins fyrir langa löngu og þá var hann orðinn ævagamall. Á bernskuárum mínum var hann í öndvegi sem spariskápur í stofunni hjá afa og ömmu, en þegar ég fékk sérherbergi á tólfta árinu gaf amma mér skápinn og tók hann við fötunum mínum og fullt af púka- legum styttum sem nutu sín vel á bak við glerhurðirnar,“ segir marg- miðlunarhönnuðurinn Rósa Stefáns- dóttir um þann húsmun sem hún hefur mest dálæti á. „Skápurinn var í upphafi með viðarmunstri, en á einhverjum tímapunkti málaði afi hann hvítan til að gera hann nútímalegri. Nú er hann aftur kominn í stofuhlutverk og geymir mitt fínasta púss, spari- kjóla og spariskó, en í glerhlutann stilli ég til sýnis mínum flottustu skóm sem ég skipti út jafnóðum þegar nýrri og flottari bætast við í skósafnið,“ segir Rósa sem einnig heldur upp á ofursvalt, krómað skó- horn frá Manolo Blahnik, sem prýð- ir skápinn að ofan. „Stóllinn er húsbóndastóll sem kærastinn fékk í heimanmund frá pabba sínum og þar situr hann með gítar sem ég gaf honum í jólagjöf og æfir gripin. Við fluttum inn í ris- íbúð fyrir um ári og innbúið er að stórum hluta samtíningur frá for- eldrum okkar; tekkhúsgögn og fleira flott frá sextíunum, eins og þegar þau byrjuðu að búa. Okkur finnst notalegt að hafa í kringum okkur hluti sem búa yfir sál og minningum og sem stórfjölskyldan hefur umgengist í áranna rás. Þeim fylgir góður andi og við erum alsæl. Það er yndislegt að koma heim.“ thordis@frettabladid.is Heimanmundur með sál Undir súð í fögru risi í Sundunum stendur stolt heimilisins; stofuskápur með fortíð, sögu og sál. Sem í tímans rás hefur geymt það dýrmætasta í fórum íslenskra kvenna; bollapör, puntgripi og hælaskó. Rósa Stefánsdóttir og unnusti hennar búa hreiður sitt húsmunum úr fórum stórfjöl- skyldunnar, en þessi forláta skápur er í mestum metum hjá Rósu. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /G VA TÍMASPARNAÐUR getur hlotist af því að setja þvotta- körfu í herbergi allra fjölskyldumeðlima. Þegar körfurnar eru orðnar fullar er ráð að þvo innihaldið og þurrka og skila þvott- inum hreinum í körfunum til fjölskyldumeðlima.            • 5 tímar í skvass • 5 tímar í Golf • máltíð á BK Kjúkling • 5 tímar í ljós • frítt í allar ÍTR sundlaugarnar • frír mánuður fyrir vin • tækjakennsla • bolur • brúsi Sport Klúbburinn Arctic Spas • Kleppsvegur 152 • 104 Reykjavík Sími 554 7755 • www.heitirpottar.is Opið í dag frá kl 10.00 - 18.00 Frontier skel, verð áður 290.000,- Verð nú: 217.500,- Cub skel, verð áður 290.000,- Verð nú: 217.500,- Yukon skel, verð áður 290.000,- Verð nú: 217.500,- Fox skel, verð áður 250.000,- Verð nú: 187.500,- Eigum gríðarlegt úrval af rafmagnspottum Eigum gríðarlegt úrval af öllum fylgihlutum fyrir heita potta, tröppur, handriði, og fl eira.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.