Fréttablaðið - 01.09.2008, Qupperneq 18
1. september 2008 MÁNUDAGUR2
Vistvæn hreinsiefni eru nú til í
miklu úrvali og mörg þeirra
umhverfisvottuð. Efni eins og
ensím eru náttúruleg prótein
sem framleidd eru af lifandi
örverum sem flýta ferli niður-
brots sjálfrar náttúrunnar.
Einnig er til umhverfis-
merktur þynnir, kvoðu-
hreinsir, penslasápa,
málning og bílahreinsiefni
svo fátt eitt sé nefnt.
Það eina sem við þurfum að
gera er að velja frekar vistvæn
efni, þannig tökum við ábyrgð
gagnvart jörðinni og okkur
sjálfum. Þegar þú verslar og
sérð ekki vistvæn efni fyrir
það sem þig vantar, spurðu þá
sérstakleg hvort þau séu til.
Ef allir gera það verða vist-
vænu efnin í hillunum
innan tíðar.
Meira um bílinn og alla hluti í
bílskúrnum á:
http://www.natturan.is/husid/1261/
Bílskúrinn – Hreinsiefni
GÓÐ RÁÐ
fyrir þig og umhverfið
Náttúran.is – vefur með umhverfisvitund
Þótt sumarið sé senn á enda finnst
engin haldbær ástæða til að fara úr
grillskapinu góða.
Grillmatur er í miklu uppáhaldi hjá
Íslendingum yfir sumartímann, en
er ekki síður ljúffengur og freistandi
á öðrum árstíðum. Þetta vita margir
sem grilla jafnt í stórhríð sem slag-
veðri og láta veðurútlit aldrei hafa
áhrif á fyrirhugaðan matseðil.
Nú þegar sólin fer fyrr að sofa er
hægt að fá úrvals gasgrill í öllum
stærðar- og gæðaflokkum á afbragðs
afslætti hjá mýmörgum verslunum
og bráðupplagt að búa í haginn fyrir
komandi uppskerutíð þegar fátt kitl-
ar bragðlaukana eins undursamlega
og nýtíndar kartöflur, brakandi ferskt
grænmeti og kjöt af nýslátruðu.
Til að halda grillfletinum skínandi
hreinum er óbrigðult húsráð að skera
lauk í tvennt og nudda yfir grindurnar.
Grillaðar árstíðir
Forláta gasgrill fást nú
víða með góðum afslætti
þegar aðalgrilltíð ársins er
að ljúka.
KJÖRIÐ er að koma sér upp vinnuaðstöðu
heima í eldhúsi ef pláss er af skornum skammti. Setja
skrifborð á hjólum út í eitt hornið, sem má færa þegar þörf
krefur, og nýta afgangs krukkur undir ritföng og þess háttar.
Tilboðsdagar
20-50%
afsláttur
af öllum vörum
Verið Sængurfataverslun
Glæsibæ, s. 552-0978
www.damask.is
25