Fréttablaðið - 02.09.2008, Blaðsíða 40
24 2. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR
L.I.B.Topp5.is
Yfir 65.000 manns
Ásgeir j - DV
TSK - 24 stundir
ÁLFABAKKA SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍKKRINGLUNNI
TROPIC THUNDER kl. 5:40 - 8 - 10:20 16
TROPIC THUNDER kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP
SVEITA BRÚÐKAUP kl. 5:50 - 8 - 10:10 L
GET SMART kl. 5:50 - 8 - 10:10 L
DARK KNIGHT kl. 8:30 - 10:20 12
STAR WARS kl. 5:50 L
THE MUMMY 3 kl. 8 12
WALL-E m/ísl. tali kl. 6 L
DARK KNIGHT kl. 6 - 8 - 10 12
STAR WARS kl. 5:50D L
GET SMART kl. 10:10 L
WALL-E m/ensku tali kl. 5:50 - 8 L
SVEITA BRÚÐKAUP kl. 8 L
MAMMA MÍA Síð. sýn. kl. 8 L
SKRAPP ÚT kl. 10:10 12
X-FILES 2 kl. 10:10 16
TROPIC THUNDER kl. 8 - 10:20 16
SVEITABRÚÐKAUP kl. 8 - 10 L
SVEITA BRÚÐKAUP kl. 6 - 8 - 10 L
WALL-E. m/ísl. tali kl. 6 L
GET SMART kl. 8 - 10 L
- bara lúxus
Sími: 553 2075
TROPIC THUNDER kl. 5.40, 8 og 10.15 16
GET SMART kl. 5.40, 8 og 10.15 L
MAMMA MIA kl. 6 og 9 L
L.I.B Topp5.is/FBL
DV
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
S.V – MBL.
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
L
7
L
TROPIC THUNDER kl. 6 - 8 - 10.10
THE ROCKER kl. 10.10
MAMMA MIA kl. 6 - 8
16
7
L
TROPIC THUNDER kl. 5.30 - 8 - 10.30
TROPIC THUNDER LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
MAKE IT HAPPEN kl. 4 - 6 - 8 - 10.10
THE ROCKER kl. 5.40 - 8 - 10.20
MAMMA MIA kl. 5.30D - 8D - 10.30D
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
L
7
12
L
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5.45 – 8 – 10.15
THE ROCKER kl. 5.30 - 8 - 10.30
SKRAPP ÚT kl. 6 - 8 - 10
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 - 10.30
5%
5%
SÍMI 551 9000
L
16
12
16
L
MAKE IT HAPPEN kl. 5.40 - 8 - 10.20
X - FILES kl. 5.40 - 8
SKRAPP ÚT kl. 6 - 8 - 10
THE STRANGERS kl. 10.20
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 - 10.30
SÍMI 530 1919
“DUCHOVNY OG
ANDERSON SÝNA
GAMLA TAKTA”
-Þ.Þ., DV
FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA
GRÍNMYND ÁRSINS!
-L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV-S.V., MBL
Fjöldi fólks var samankom-
inn í blíðskaparveðri undir
Akrafjalli í gær þar sem
tökur stóðu yfir á sakamála-
þáttunum Hamrinum sem
hefja göngu sína í Ríkis-
sjónvarpinu á næsta ári.
„Rúlla kameru og ....aksjón! var
hrópað á tökustað rétt áður en
þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
LÍF, lenti á Reynisásum undir
Akrafjalli við mikinn hávaða.
Mikil spenna var í loftinu enda
tökur á umfangsmesta atriði Ham-
arsins í vændum. Auk þátttöku
þyrlunnar kom þar við sögu fjöldi
lögreglu-, sjúkraflutninga-, og
slökkviliðsmanna frá Akranesi.
Í umræddu atriði var þyrlan að
sækja slasaðan mann sem hafði
dottið fram af hömrum í beltis-
gröfu og eins og gefur að skilja
þurfti allt að ganga snurðulaust
fyrir sig, sem það og gerði. „Það
er gífurlega mikil hjálp sem við
höfum fengið frá Gæslunni og
öllum á svæðinu. Það er með ólík-
indum hvað fólk er til í að taka
þátt í þessu með okkur. Þetta er
ekki eins og raunverulegt slys
heldur þarf að gera þetta tíu eða
tuttugu sinnum,“ segir Snorri
Þóris son, framleiðandi þáttanna.
Allt of gott veður
Handritshöfundurinn Sveinbjörn
I. Baldvinsson fylgdist einnig
með tökunum í fyrsta sinn síðan
þær hófust 11. ágúst. Eins og
gefur að skilja var hann mjög
spenntur að sjá útkomuna, en tók
þó fram að veðrið væri í raun allt
of gott því í handritinu hefði hann
gert ráð fyrir rigningu og dumb-
ungi.
Tökur á Hamrinum halda áfram
út þennan mánuð í leikstjórn
Reynis Lyngdal. Með aðalhlut-
verk fara Björn Hlynur Haralds-
son og Dóra Jóhannsdóttir sem
leika rannsóknarlöggurnar Helga
Marvin Rúnarsson og Ingu Ara-
dóttur. „Þetta hefur gengið rosa-
lega vel og verið ótrúlega gaman,“
segir Dóra, sem er að leika rann-
sóknarlöggu í fyrsta skiptið. „Við
fórum á lögreglustöðina og töluð-
um við rannsóknarlögregluna.
Mín persóna er frá Selfossi og ég
fór og talaði við þá líka. Það var
ekkert smá skemmtilegt og hjálp-
aði okkur rosalega mikið. Það
skiptir miklu máli að þetta sé eins
trúverðugt og hægt er,“ segir
hún.
Þættirnir verða sýndir á RÚV
snemma á næsta ári og hafa þeir
þegar verið seldir til sjónvarps-
stöðva í Svíþjóð, Noregi og Finn-
landi.
freyr@frettabladid.is
Þyrluatriði þrungið spennu
DÓRA JÓHANNSDÓTTIR OG JÓN ATLI HELGASON Dóra Jóhannsdóttir á tökustað
ásamt hinum blóðuga Jóni Atli Helgasyni, sem lék manninn sem féll fram af hamrin-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÞYRLAN MÆTT Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar spilaði stóra rullu í atriðinu sem
var tekið upp í gær.
SNORRI OG SVEINBJÖRN Framleiðand-
inn Snorri Þórisson frá Pegasus og
Sveinbjörn I. Baldvinsson handritshöf-
undur fylgdust spenntir með tökunum.
REYNIR LYNGDAL Leikstjórinn Reynir
Lyngdal hafði í nógu að snúast í góða
veðrinu.
Sumartilboð Regnbogans verður
framlengt út veturinn, ef ekki lengur, en
á sumartilboði bíóhússins hefur kostað
650 krónur á sýningar Regnbogans.
„Þetta gekk bara mjög vel,“ segir Jón
Gunnar Geirdal, markaðsstjóri Senu.
„Við bjuggumst alveg við því að þetta
myndi fá góðar viðtökur, með öllu
hækkandi í þjóðfélaginu, en þetta fór
meira að segja fram úr væntingum,“
segir Jón Gunnar.
Sumartilboð Regnbogans skiptir því
um nafn og heitir nú bara tilboð Regn-
bogans, eða jafnvel bara eðlilegt verð í
Regnboganum. „Við munum allavega
halda þessu áfram út veturinn og jafnvel
til frambúðar. Maður veit ekkert hvað
gerist í bíómálum á næstunni, en fólk
mun geta gengið að Regnboganum vísum
í vetur,“ segir Jón Gunnar.
Fram undan eru sýningar á myndum á borð við Burn after
Reading, Quantum of Solace og Australia. - sun
Tilboð framlengt
Raddbandið VoxFox hefur verið
valið til að taka þátt í a capella-
hátíð sem verður haldin í Svíþjóð
síðar í mánuðinum. Í tilefni þess
verða haldnir tónleikar á Café
Rosenberg í kvöld til að afla fjár
fyrir ferðalagið.
Þar verður flutt bæði gamalt og
nýtt efni, meðal annars frumflutn-
ingur á útsetningu sem var
sérstaklega gerð fyrir VoxFox
ásamt verkum eftir Hreiðar Inga
Þorsteinsson, einn af meðlimum
bandsins. Einnig munu gestirnir
Kristjana Stefánsdóttir djasssöng-
kona, Páll Óskar Hjálmtýsson og
Monika Abendroth syngja og
spila, bæði með VoxFox og hver
fyrir sig. Tónleikarnir hefjast kl.
20.30 og er miðaverð kr. 2.000.
VoxFox með
tónleika
TILBOÐ Í VETUR Regnbog-
inn er vinur litla mannsins í
kreppunni og heldur áfram
með tilboð sitt, 650 krónur á
allar myndir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON