Fréttablaðið - 10.10.2008, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
ÁRLEGT KJÓLABALL hljómsveitarinnar Heimilistóna fer fram í Iðnó á
laugardagskvöld. Þar mun hljómsveitin, sem skipuð er landsþekkt-
um leikkonum, flytja á íslensku þekkt lög frá gullaldarárum
rokksins. Tónleikarnir hefjast klukkan 23 og ekki er verra að
mæta prúðbúin til fara.
Inga Rósa Ágústsdóttir er mat-
reiðslumaður á leikskólanum
Ásborg og líkar vel. Þar matreiðir
hún hollan og góðan mat ofan í
börnin og segir leikskólann leggja
metnað í að bjóða ekki upp á
tilbúinn mat.
„Ég elda mikið af grænmetis-
réttum sem krakkarnir eru mjög
hrifnir af. Svo er líka hefðbundið
hakk og spagettí og súpa sem við
köllum orkusúpu. Grunnurinn að
henni er eins og kjötsúpa nema
hún inniheldur bara grænmeti og
er í miklu uppáhaldi hjá krökkun-
um.“
Inga segist dugleg að elda heima
enda hafi fólk með börn yfirleitt
ekki val um annað. Hún eldar mikið
af grænmetisréttum og segir enga
matvendni á heimilinu. „Maðurinn
minn er líka kokkur svo það er bara
í genunum í börnunum okkar að
borða allan mat. Við erum með
barn með mjólkuróþol þannig að
hér er ekki skyr og jógúrt í matinn
og ég bý allt til frá grunni.“
Inga býður lesendum Frétta-
blaðsins upp á uppskrift að
bananabrauði sem hún segir mjög
gott að baka í frystinn. „Banana-
brauðið er eitthvað sem börnin eru
rosalega hrifin af. Það er mjög ein-
falt; allir geta bakað brauðið og ég
baka það oft í leikskólanum.“
Hún segir tilvalið að nota banana
sem eru farnir að þroskast full
mikið í brauðið í stað þess að henda
þeim og svo sé gott að frysta það.
Uppskriftina að bananabrauði
Ingu Rósu er að finna á blaðsíðu 2.
heida@frettabladid.is
Bananabrauð í kreppu
Inga Rósa Ágústsdóttir kokkur býður lesendum upp á uppskrift að góðu bananabrauði í frystinn. Hún
bakar brauðið oft í leikskólanum Ásborg þar sem hún matreiðir ofan í leikskólakrakka.
Inga Rósa Ágústsdóttir er matreiðslumaður á leikskólanum Ásborg, þar sem lögð er áhersla á að matreiða frekar frá grunni en að
bjóða upp á tilbúinn mat. Hún segir bananabrauð vinsælt hjá krökkunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Villibráðarhlaðborð hefst 16. október.
Jólahlaðborð hefst 20. nóvember.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
g
b
ro
t
Banfi kvöldverður
26. september - 15. október
26. september er á ný boðið upp á Banfi kvöldverð
í Perlunni, þar sem andi Toscana héraðsins á Ítalíu
svífur yfir vötnum. Á föstudögum og laugardögum
spilar Jazztríó Björns Thoroddsen.
Aðeins
3 vikur!
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Parmaskinka
með fíkjusalati og balsamico
Tígrisrækjur og smokkfiskur
á pappardelle pasta í tómat-basilsósu
Kálfahryggur á beini
með grilluðu grænmeti, kartöflumauki og madeirasósu
Sítrónugrass–kókoshneta og vanillu panna cotta
með kirsuberjaís og ávöxtum í chili-sírópi
6.590 kr.
Með 4 glösum af víni: 10.490 kr.