Fréttablaðið - 10.10.2008, Síða 20
10. október 2008 FÖSTUDAGUR4
ÞESSIR skór eru hluti af nýrri afmælisútgáfu af Stinky Rat-línu
tískuhönnuðarins Marc Jakobs. Hann fékk graffítí-listamanninn Kaws
í lið með sér við hönnun línunnar sem var fyrst sett á markað fyrir
tíu árum. Eins og hér má sjá hefur samstarfið borið góðan árangur.
Edda Ósk Ólafsdóttir framleiðir
snyrtivörur á heimili sínu undir
vörumerkinu EÓ Cosmetics.
„Ég kynntist þessu á netinu fyrir
um það bil tveimur árum. Um er að
ræða svokallað „mineral makeup“
eða steinefnafarða en hann hefur
notið mikilla vinsælda erlendis. Ég
panta efniviðinn í snyrtivörurnar
og umbúðirnar frá Bandaríkjunum
og blanda vörurnar heima,“ segir
Edda Ósk en hún framleiðir meðal
annars augnskugga, gloss, farða,
kinnalit og krem.
Vörurnar innihalda hvorki rot-
varnarefni né önnur aukaefni og
eru því að sögn Eddu Óskar góðar
fyrir húðina. „Þær eru einnig lyktar -
lausar að undanskildum kremunum
en ég blanda ilminum í grunninn
sem ég kaupi tilbúinn. Um 22
mismunandi ilmtegundir eru í boði
og má nefna kókos, mangó og
lavender.“
Edda Ósk er tölvunarfræðingur
að mennt og heldur utan um síðuna
www.eocosmetics.com. Þar er hægt
að nálgast vörur hennar ásamt fróð-
leik. Vörurnar er síðan hægt að fá
sendar í póstkröfu en auk þess
býður Edda Ósk upp á kynningar.
vera@frettabladid.is
Heimatilbúnar snyrtivörur
Tölvunarfræðingurinn Edda Ósk Ólafsdóttir kynntist heimatilbúnum snyrtivörum á netinu og þær fram-
leiðir hún á heimili sínu í Grafarholti. Hún býður meðal annars upp á augnskugga, gloss, krem og farða.
Edda Ósk segir steinefnafarðann njóta mikilla vinsælda víða erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Edda Ósk bræðir glossið á heimili sínu
og bætir litarefnum út í.
Augnskuggar í úrvali.
Arctic Trading Company
Arctic Trading Company
Alla laugardaga
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Dvöl
Opnunartími:
kl. 9-16 virka daga (10-16 á fimmtudögum)
og kl. 11-14 á laugardögum.
athvarf í Kópavogi
Dvöl // Reynihvammi 43 // Kópavogi // sími 554 1260
Markmiðið með starfsemi Dvalar er að rjúfa félagslega einangrun,
draga úr fordómum og auka lífsgæði þeirra sem eiga við geðraskanir
að stríða. Gestir koma í athvarfið á eigin forsendum eða með
stuðningi annarra og njóta þeirrar þjónustu sem í boði er. Áhersla
er lögð á að efla sjálfstæði og virkni gestanna, en jafnhliða eru
gestir aðstoðaðir við að leita nýrra leiða, sé þess óskað.
Dvöl er athvarf en ekki meðferðarstofnun en gestir og aðstandendur
geta fengið góð ráð hjá starfsmönnum ef þeir óska þess.
Við leggjum áherslu á gagnkvæma virðingu í samskiptum gesta,
starfsmanna og sjálfboðaliða og viljum gjarna fá alla þá í heimsókn
sem þurfa á athvarfinu að halda.
Auglýsingasími
– Mest lesið