Fréttablaðið - 10.10.2008, Blaðsíða 22
2 föstudagur 10. október
núna
✽ kreppan bítur ekki...
þetta
HELST
Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is
Penni Alma Guðmundsdóttir alma@frettabladid.is Forsíðumynd Stefán Karlsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
augnablikið
helgin
MÍNBRYNJAR MÁR VALDIMARSSON Ég er að spila á Café Oliver
alla helgina. Maður sefur sennilega inn á milli, glápir á kassann og er svo úti
að skokka og í matarboði áður en ég fer að spila á morgun. Ég er síðan að
senda plötuna mína út í prentun um helgina og áætlaður lendingartími er 1. nóvember.
S öngkonan Birgitta Haukdal og unnusti hennar, Benedikt Ein-
arsson lögmaður, ætla að ganga í
það heilaga á morgun, 11. októb-
er. Parið er búið að vera saman
síðan þau léku bæði í söngleikn-
um Grease sem settur var upp í
Borgarleikhúsinu árið 2003. Þar fór
hún með aðalhlutverkið en Bene-
dikt var dansari í sýningunni.
Brúðkaupið hefur verið í undir-
búningi lengi og lét Birgitta sér-
sauma á sig kjól í París fyrir stóra
daginn. Sjálf athöfnin fer fram í
Dómkirkjunni en veislan verður
í Turninum. Það mun án efa
verða mikill glaumur og gleði
í brúðkaupinu en sjónvarps-
konan Ragnhildur Steinunn
verður veislustjóri en hún og
Birgitta hafa verið bestu vinkon-
ur um nokkurra ára skeið. Föstu-
dagur hefur heimildir fyrir því að
ekki verði þverfótað fyrir þotuliði
en með brúðkaupinu sameinast
tveir ólíkir heimar þar sem
poppheimurinn mætir við-
skiptalífinu, en faðir Bene-
dikts er Einar Sveinsson,
stjórnarformaður Íslands.
Á meðan þjóðin heldur
að sér höndum með
sparnaði er annað
uppi á teningnum hjá
Birgittu og Benedikt
því í apríl festu þau
kaup á tæplega 200
fm húsi við Bakkaflöt í Garðabæ.
Var ætlunin að endurnýja húsið
að hluta með minni háttar breyt-
ingum. Síðar kom í ljós að hluti
hússins var ónýtur og stendur
húsið núna nánast fokhelt. Birg-
itta og Benedikt sóttu um leyfi
til að breyta þaki hússins, hækka
lofthæðina, breyta gluggunum og
skipulagi innanhúss. Nú hefur
skipulagsstjórinn í Garðabæ sam-
þykkt tillögur skipulagsnefndar
með fyrirvara um grenndarkynn-
ingu. Hildur Bjarnadóttir arkitekt
á heiðurinn af endurbótunum en
hún hefur unnið til verðlauna
fyrir hönnun sína.
Ég og Lóa Auðunsdóttir mágkona mín erum tvær saman í þessu.
Ég átti hugmyndina en Lóa skrif-
aði og hannaði bókina,“ segir Þórey
Vilhjálmsdóttir um bókina Reykja-
vík barnanna sem Salka forlag
gefur út. Bókin inniheldur upplýs-
ingar um hvað foreldrar geta gert
með börnum sínum í Reykjavík og
viðtöl við foreldra um hugmynd-
ir þeirra að skemmtilegum degi í
höfuðborginni.
„Þetta er hugmynd sem ég hafði
gengið með lengi því ég hef sjálf
notast mikið við svona bækur er-
lendis. Þær eru til úti um allan
heim, bæði í stórum og smáum
borgum og mér hefur fund-
ist vanta svona bók hér á landi.
Manni dettur sjaldan eitthvað
nýtt í hug til að gera með börn-
unum sínum svo mér fannst til-
valið að safna því saman,“ segir
Þórey. - ag
Þórey Vilhjálmsdóttir og Lóa Auðunsdóttir:
Góðar hugmyndir
ENGIN KREPPUKLÆÐI Dorrit og
Þorgerður Katrín voru ansi vel búnar
þegar þær mættu í boð á vegum
Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Dorr it
var í fatnaði frá Steinunni Sigurðar-
dóttur en Þorgerður mætti í Prada -
stígvélum...
Birgitta Haukdal og Benedikt Einarsson ganga í það heilaga á morgun
RAGNHILDUR STEINUNN
VERÐUR VEISLUSTJÓRI
Bakkaflöt 3 Svona lítur húsið út í dag
Bakkaflöt 3 Svona leit húsið út í apríl áður en breytingar hófust.
Egill heillaði upp úr
skónum
Leikkonan Ingibjörg Reynisdótt-
ir var gæsuð á dögunum en hún
mun ganga í það heilaga seinna í
mánuðinum. Vinkonur Ingibjarg-
ar komu henni heldur betur á óvart
þegar stórsöngvarinn Egill Ólafs-
son mætti í gæsapartíið sem hald-
ið var á veitingastaðnum Domo.
Hann þandi raddböndin fyrir gæs-
ina þegar hann tók lagið Slá í
gegn. Það á vel við þar sem leik-
ferill Ingibjargar er bara rétt að
byrja.
Stjörnupar Birgitta og Benedikt kynntust
þegar þau unnu saman í söngleiknum Grease.
Svo 2007
Margir fengu hland fyrir hjart-
að þegar þeir horfðu á sjón-
varpsþáttinn Innlit/útlit í vik-
unni. Þátturinn heimsótti svart/
hvítt smartheitaheimili á Völlunum
í Hafnarfirði og höfðu margir orð á
því að það væri eins og fólk væri
að horfa á ársgamlan þátt. Smart-
heitin hafi nefnilega
ekki verið í takt
við október 2008
heldur hafi verið
svo 2007. Hver
þarf sturtu-
klefa með
síma og
díóðulýst-
ar veggflísar
á tímum sem
þessum?
Þórey og Lóa
Voru heilt ár
að vinna að
bókinni.