Fréttablaðið - 10.10.2008, Qupperneq 25
10. október föstudagur 5
Einn af þeim aðilum sem hafa haft tölu-
verð áhrif á mitt líf er Brynjar B. Pétursson,
nuddari og meðhöndlari í Grindavík. Ég fór
fyrst til Brynjars fyrir um sjö eða átta árum.
Strax í fyrsta tíma áttaði ég mig á að þessi
„ókunnugi“ maður virtist þekkja mig sér-
lega vel, í gegnum innsæi sitt eingöngu.
Það sem ég met svo mikils við Brynjar er
hið hreinskilna og hlutlausa mat hans á
þeim aðstæðum sem ég er að glíma við þá
stundina. Öll hans ráð og gjörðir eru sett
fram á óhlutdrægan en afar kærleiksrík-
an máta. Þá breytir engu um hvort hann er
að benda mér á það sem ég geri vel eða
ef ég hef verið óþekktarpjakkur og hann er
að „skamma“ mig. Hann hefur líka einstakt
lag á að fá mig til að hlæja að eigin
sjálfsvorkunn, ef sá gállinn er á mér,
og þá um leið að sjá skýrar allt það
góða í mínu lífi sem ég er þakklát-
ur fyrir.
Það var gæfuspor að ganga
inn í hina látlausu nudd-
stofu í Grindavík fyrir þetta
mörgum árum. Brynj-
ar hefur æ síðan hjálp-
að mér að verða betri
manneskja og
kann ég honum
góðar þakkir fyrir.
BRYNJAR B. PÉTURSSON
Brynjúlfur Jónatansson, jógakennari og einkaþjálfari
ÁHRIFA-
valdurinn
mafríið?
æfellsnes.
r er nokkuð sama hvar ég er en það
ör draumur að vera með fjölskyldu og
m vinum, elda góðan mat, dreypa á góðu
kella sér í sund og heitan pott, fara í
túra, spila, spjalla um lífið og listina.
ættir sand af seðlum hvað myndirðu
a þér?
veit vel að ókeypis er allt það sem er
S: Ég hef furðu lítinn áhuga á pening-
um almennt og þá
sérstaklega núna.
Það kannski út-
skýrir af hverju
ég á aldrei
mikið af þeim.
EIRRA
er eitthvað frelsi sem felst í því að
vita ekki hvað tekur við og geta þá
valið úr verkefnum eða gert eitt-
hvað sjálfur. Auðvitað er það erf-
itt því það er ekki örugg innkoma
og maður þarf að hugsa öðruvísi
þegar maður er komin með fjöl-
skyldu,“ segir Unnur.
„Ég hef verið sjálfstætt starf-
andi frá því að ég var 21 árs og ég
þekki ekkert annað. Þetta er oft
ógnvekjandi á sumrin, þá er lítið í
gangi, en svo er þetta bara þannig
að neyðin kennir naktri konu að
spinna og ef ég sé fram á verk-
efnaskort fer hugurinn í gang,“
segir Selma.
INNBLÁSTUR Í KREPPUNNI
Talið berst óhjákvæmilega að
kreppunni og því ástandi sem nú
ríkir í samfélaginu. Báðar segjast
Selma og Unnur finna fyrir mik-
illi grósku í leikhúslífinu þrátt fyrir
efnahagsástandið og sjá aukin
tækifæri til sköpunar. „Andleg
vakning verður oft í kreppum og
ég held að við séum að ganga í
gegnum eitthvert andlegt þroska-
stig í heiminum. Á svona augna-
blikum skipta listamenn miklu
máli. Þegar hryðjuverkaárásirnar
áttu sér stað fannst mér fáránlegt
og tilgangslaust að vera listamað-
ur og skemmtikraftur, en núna
þótt þetta sé grafalvarlegt erum
við ekki að tala um stríðsástand og
mér finnst göfugt að geta huggað
og glatt fólkið, leyft því að koma
og gleyma sér, gráta og hlæja. Það
er auðvitað það sem við erum allt-
af að reyna í leikhúsinu, en núna
er bara kvikan opin á fólki,“ segir
Unnur. „Mér finnst fólk vera hlýrra
og einlægara. Fjölskyldur þjapp-
ast saman og hjónabönd styrkjast
jafnvel því þótt það verði erfiðara
fjárhagslega fer fólk að hugsa um
hvað skiptir raunverulega máli.
Við erum búin að fara svo rosa-
lega geyst, en núna þurfum við
bara að færa okkur aftur í gamla
tímann, hittast og spila, fara í
göngutúra og gera hluti sem kosta
ekki jafn mikið en eru alveg jafn
skemmtilegir,“ segir Selma. „Það
er náttúrulega algjörlega absúrd
að það sé verið að slá aðsóknar-
met í Borgarleikhúsið á sama tíma,
en það hlýtur að segja okkur eitt-
hvað,“ segir Unnur. „Fólk fer ekki
endalaust til útlanda núna, en vill
kannski verða fyrir andlegri vakn-
ingu, láta leikhúsið hreyfa við sér
og eiga góðar stundir saman,“
segir Selma.
Eitt skemmtilegasta og mest
vaxandi kaffihús borgarinnar
er nú til sölu.
Segafredo hefur verið leiðandi
fyrirtæki í ítalskri kaffimenningu
á undanförnum árum.
Tilvalið fjölskyldufyrirtæki.
Nánari upplýsingar veitir Oliver
í síma 899 9795.
TIL SÖLU
LÆKJARTORGI
Nánari upplýsingar veitir
Steinþór í síma: 857 13 22