Fréttablaðið - 10.10.2008, Side 34
18 10. október 2008 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
ELLERT B. SCHRAM
ER 69 ÁRA Í DAG.
„Það býr gott fólk á Nes-
inu. Það veit ég af góðu
nábýli við Seltirninga í
marga áratugi.“
Ellert B. Schram er þing-
maður Samfylkingarinn-
ar og fyrrverandi forseti
Íþróttasambands Íslands.
Verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi
var opnuð á þessum degi árið 2001. Þá
voru þar um sjötíu verslanir og þjónustu-
fyrirtæki en í dag eru þau um níutíu.
Gólfflötur hússins er um 63 þúsund
fermetrar en verslunarrýmið um 33 þús-
und fermetrar. Um 45 þúsund gestir
komu í verslunarmiðstöðina á fyrsta degi
sem var um 20 prósentum meira en gert
hafði verið ráð fyrir.
Þegar verslunarmiðstöðin var opnuð
voru tveir ungir nágrannar hennar fengn-
ir til að hleypa á hana straumi. Þetta
voru þau Linda Margrét Gunnarsdóttir og
Smári Páll Svavarsson.
Miklar umræður sköpuðust í kringum
hönnun verslunarmiðstöðvarinnar en úr
lofti þykir hún skírskota til æxlunarfæra
karla.
ÞETTA GERÐIST: 10. OKTÓBER ÁRIÐ 2001
Smáralind opnuð
MERKISATBURÐIR
1946 Mikill fjöldi glóandi loft-
steina sést víða á Norð-
urlandi og Austurlandi.
Á Kópaskeri töldu menn
400 loftsteina á 20 mín-
útum.
1970 Auður Auðuns tekur við
ráðherraembætti, fyrst
kvenna. Hún gegnir stöðu
dóms- og kirkjumálaráð-
herra í ríkisstjórn Jóhanns
Hafsteins í tæpt ár.
1972 Skyri slett á þingmenn og
fleiri sem eru á leið frá
Dómkirkjunni í Alþingis-
húsið til þingsetningar.
1974 Norræna eldfjallastöð-
in í Reykjavík er formlega
opnuð. Hlutverk henn-
ar er að stunda rannsókn-
ir í eldfjallafræði og þjálfa
unga jarðfræðinga á því
sviði.
Haldið er upp á alþjóða geðheilbrigð-
isdaginn víðs vegar um heiminn í
dag. Alþjóðlega yfirskriftin er Make
Mental Health a Global Priority. Ís-
lenska undirbúningsnefndin í ár ákvað
þó að bregða út af vananum og fylgja
eigin yfirskrift. Megináhersla er lögð
á geðheilbrigði ungs fólks með yfir-
skriftinni Hlúðu að því sem þér þykir
vænt um.
„Ástæðan er sú að það gefur betri
raun að vinna forvarna- en slökkvi-
liðsstarf og skila forvarnir mestum ár-
angri ef þær eru innleiddar snemma,“
segir Einar G. Kvaran, verkefnastjóri
í málefnum ungs fólks hjá Geðhjálp.
„Þá er margt sem bendir til þess að
andlegt álag sem þessi hópur er undir
sé vanmetið. Ekki síst nú þegar mikil
óvissa ríkir í samfélaginu.“
Í tilefni dagsins verður dagskrá í
Perlunni milli klukkan 16 og 18 í dag.
Þar flytja fulltrúar frá Barna- og ungl-
ingageðdeild Landspítalans, Götu-
smiðjunni og Regnbogabörnum erindi
en auk þess lætur unga kynslóðin í sér
heyra með tónlistarflutningi af ýmsu
tagi.
„Í fyrra nutum við góðs af góðær-
inu og rausnarlegum framlögum. Í
ljósi þjóðfélagsaðstæðna sóttumst við
ekki eftir stuðningi til að halda upp á
daginn heldur nýttum afgang frá því í
fyrra,“ segir Einar.
Fleira hefur verið gert í tengslum
við daginn og má þar nefna opnun
heimasíðunnar www.10okt.com. Vef-
síðan verður þróuð áfram í samstarfi
við ungt fólk en markmið hennar er að
veita fræðslu um geðrækt og aðstoða
við skipulagningu geðræktarviðburða.
Undanfarna viku hefur þar verið sér-
stakt geðræktarátak sem heitir Eitt í
einu. „Eitt af því sem einkennir and-
leg veikindi er að festast í vandamál-
um fortíðar eða framtíðar. Markmið
átaksins er að styrkja einbeitingu
en hún er ein af undirstöðum góðrar
heilsu og gefst þátttakendum kostur
á að skrá verkefni sem þeir vilja taka
sér fyrir hendur á síðuna. Það getur til
að mynda verið að njóta þess að vera
með fjölskyldunni án þess að hlusta á
útvarp eða lesa blöðin,“ útskýrir Einar
en upplýsingar um skráð verkefni
verða birtar á heimasíðunni.
Af öðru má nefna að tveir aðstand-
enda geðheilbrigðisdagsins hafa efnt
til sérstaks geðræktarátaks innan
sinna vébanda en það eru annars vegar
Samfés, Samtök íslenskra félagsmið-
stöðva, og hins vegar Vesturgarður,
þjónustumiðstöð Vesturbæjar.
„Á geðræktardeginum í fyrra var
síðan tekin upp sú nýbreytni að fram-
leiða stuttermaboli og var ákveðið að
geðorðin 10 yrðu þema þeirra. Í ár er
því komið að geðorði tvö, Hlúðu að því
sem þér þykir vænt um. Nýtt merki
geðheilbrigðisdagsins á Íslandi prýðir
framhlið bolsins.“
vera@frettabladid.is
ALÞJÓÐA GEÐHEILBRIGÐISDAGURINN: MEÐ ÁHERSLU Á GEÐHEILBRIGÐI UNGS FÓLKS
Hlúum að okkar nánustu
ALLTAF VON Nýtt merki geðheilbrigðisdagsins prýðir stuttermabol Einars G. Kvaran. Í því felast táknræn skilaboð um að þrátt fyrir erfiðleika er
alltaf von. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hjartans þakkir færum við þeim sem veitt
hafa okkur stuðning, samúð og vinarhug
við andlát og útför elsku sonar okkar,
bróður og unnusta,
Sverris Franz Gunnarssonar
Birtingakvísl 14, Reykjavík,
sem lést mánudaginn 08. september síðastliðinn.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnar Kristján Sigmundsson
Guðný Sverrisdóttir
Ari Þór Gunnarsson
Vala Hrönn Guðmundsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Fanney Halldórsdóttir
frá Ísafirði,
lést á Dvalarheimilinu Lundi, Hellu, sunnudaginn
5. október sl. Útförin fer fram frá Selfosskirkju
laugardaginn 11. okt. kl. 15.30.
Kristján Ó. Maríasson Helga Axelsdóttir
Guðmundur G. Maríasson Gladys Maríasson
Friðgerður K. Maríasdóttir Jón S. Baldursson
Halldór B. Maríasson Áslaug F. Guðmundsdóttir
Fanney M. Maríasdóttir
Nanna Bára Maríasdóttir Guðmundur Ingi Einarsson
ömmubörn, langömmubörn og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Margrét Björgvinsdóttir,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík þriðju-
daginn 7. október sl.
Björgvin Richard Andersen Hafdís Helgadóttir
Karl Andersen Lóa K. Sveinbjörnsdóttir
Fríða Bonnie Andersen Sjöfn Kristjánsdóttir
Thelma Margrét Andersen
Daði Örn Andersen
Viktor Orri Andersen
Kristófer Atli Andersen
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
Óskar P. Óskarsson,
áður til heimilis í Grænahjalla 11,
lést föstudaginn 3. október. Útför hans fer fram frá
Kópavogskirkju föstudaginn 10. október kl. 13.00.
Lilja Guðbjörnsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.
AFMÆLI
BAI LING
LEIKKONA
ER 38 ÁRA.
SARAH
LANCAS-
HIRE
LEIKKONA
ER 44 ÁRA.
AMANDA
BURTON
leikkona er
52 ára.
DAVID LEE
ROTH
SÖNGVARI
ER 53 ÁRA.
Allegro Suzuki-tónlistar-
skólinn hefur verið rekinn í
áratug. Í tilefni af því ætla
forsvarsmenn hans að slá
upp veglegri afmælisveislu í
skólanum sem hefst klukkan
15.15 í dag.
Þrennir tónleikar með
blönduðu efni verða haldnir í
dag auk þess sem boðið verð-
ur upp á kaffi og með því.
Það er þó aðeins for smekk-
urinn að því sem koma skal
því almenningi gefst síðan
tækifæri til að líta inn og
fylgjast með kennslu í hóp-
tímum frá klukkan níu um
morguninn og svo tónleikum
klukkan 11.30 á laugardag.
Samleikur verður svo
hafður í öndvegi á síðustu
tónleikunum, þar sem fiðlu,-
selló- og píanóhópar munu
koma fram í Salnum í Kópa-
vogi klukkan 15 á sunnudag.
Heimasíða Suzukiskólans
er www.allegro.is og verður
hún opnuð í nýjum búningi í
tilefni af afmælinu.
Hátíð um helgina
NÁM Kennt er á fiðlu, píanó og
selló.