Fréttablaðið - 10.10.2008, Síða 37
FÖSTUDAGUR 10. október 2008 21
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 10. október
➜ Tónleikar
23.00 Tríó Andrésar
Þórs leikur frumsam-
inn djass í bland við
djassstandarda á Café
Rósenberg.
21.30 StandArt
heldur tónleika á veit-
ingastaðnum Gamli
Baukur, Hafnarstétt 9,
Húsavík.
➜ Dansleikur
Bermuda spilar á Players, Bæjarlind 4.
➜ Ljósmyndasýningar
12.00 Heima - Heiman Katrín
Elvarsdóttir ljósmyndari og Sigrún
Sigurðardóttir menningarfræðingur
fjalla um sýningu sína sem nú stend-
ur yfir á Ljósmyndasafni Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15, (6. hæð). Sýningin
stendur til 23. nóv. og er opin 12.00-
19.00 virka daga og 13.00-17.00 um
helgar.
➜ Ráðstefna
Að taka náttúruna með í reikninginn
Orkuveita Reykjavíkur ásamt sam-
starfsaðilum standa fyrir ráðstefnu um
endurheimt staðargróðurs og frágang
á gróðri og landslagi eftir rask fram-
kvæmda. Dagskrá ráðstefnunnar er á
www.or.is.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Listamennirnir og hjónin Samuel
og Marina Rees hafa dvalist í
gestavinnustofu Skaftfells á
Seyðisfirði nú í september. Þau
opnuðu sýningu í Skaftfelli um
síðustu helgi þar sem þau sýna
afrakstur vinnu sinnar í formi
eins konar furðudýrafræðisafns.
Marina Rees vitnar í þjóðsagna-
arfleifð á súrrealískan hátt í fram-
setningu sinni á hlutum, sem eru
ýmist raunverulegir safnmunir,
fundnir á förnum vegi eða
skapaðir til að passa inn í
heildina. Sam Rees hefur mikinn
áhuga á fáránlegum minjagripum
og klisjukenndri markaðssetningu
eða sölumennsku. Til að full-
komna furðudýrafræðisafnið mun
hann setja upp safnverslun þar
sem hann selur sína eigin
furðulegu framleiðslu, undir
áhrifum rannsókna og sköpunar-
verka konu sinnar.
Skaftfell er til húsa á Austur-
vegi 42 á Seyðisfirði og stendur
sýningin til 26. október. - vþ
Furðudýr
Rees-hjóna
FRÚ OG HERRA REES Marina og Samuel
Rees opnuðu sýningu í Skaftfelli um
síðustu helgi.
Listahátíðin Sequences fer af stað
með glæsibrag á morgun, en hana
einkenna sem áður fjölmargar
spennandi uppákomur. Sérleg
áhersla verður lögð á verk sem
innihalda tímalínu og eru þannig
bundin stað og stund. „Viðburðir,
gjörningar og tónleikar verða áber-
andi á hátíðinni í ár, einnig mun
danslistin ryðja sér til rúms,“ segir
Tinna Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar.
Sequences spannar aðeins fimm
daga að þessu sinni og er því held-
ur styttri en áður. „Við ákváðum að
hafa Sequences knappari og hnit-
miðaðri í ár en hún hefur verið;
þannig tekur hátíðin til að mynda
aðeins yfir eina helgi. En á móti
kemur að dagskráin er þéttskipuð
þennan stutta tíma og af nógu að
taka fyrir listáhugafólk,“ segir
Tinna.
Aðspurð um hápunkta hátíðar-
innar nefnir Tinna gjörning Rúríar
í samstarfi við Jóhann Jóhannsson
tónlistarmann, sem framinn verð-
ur í Hafnarhúsinu á sunnudag. „En
annars er margt annað spennandi á
dagskrá, til að mynda verk í
almenningsrými og myndlistar-
sýningar sem verða fólki aðgengi-
legar meðan á hátíðinni stendur.“
Áhugasömum er hollast að kynna
sér dagskrá Sequences vel til þess
að missa ekki af tímabundnum
uppákomum, en dagskrána má
nálgast á vefsíðunni sequences.is.
Þess ber einnig að geta að ókeypis
er á allar uppákomur Sequences,
sem eru góðar fréttir í ríkjandi
árferði. - vþ
Sequences knöpp og hnitmiðuð í ár
SKELEGGUR FRAMKVÆMDASTJÓRI Tinna Guðmundsdóttir stendur að baki listahátíð-
inni Sequences sem hefst á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA