Fréttablaðið - 10.10.2008, Page 38
10. október 2008 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Bolurinn með áletruninni „Bank-
anum þínum er sama um þig“
hefur átt vel við síðustu daga.
Sigurður Harðarson, Siggi pönk,
lét framleiða bolinu í góðærinu
miðju. „Það voru nú bara við-
brögð við auglýsingum bank-
anna,“ segir hann. „Þeir lugu því
stanslaust að þeim væri annt um
einstaklingana.“
En er ekki bolurinn orðinn
úreltur í ljósi nýjustu atburða?
„Jú, ætli ég geri ekki annan
með áletruninni „Mér er sama um
bankann minn“,“ segir Siggi og
hlær. „Það var svo sem viðbúið að
þetta gerðist. Þetta er bara grund-
vallareðlisfræði. Það sem þenst
út dregst aftur saman.“
Siggi seldi fimmtán boli á
Bubba-tónleikunum á miðviku-
daginn. Bolina má einnig fá í búð-
inni Ranimosk. Allir ágóði rennur
í að fjármagna bókaútgáfu. „Ég
sé um bókasafnið í Hljómalind og
þar eru titlarnir að nálgast þús-
und. Þar eru alls konar pælingar,
meðal annars hvernig hægt er að
reka efnahagskerfið eftir öðrum
aðferðum en þeim sem hafa tíðk-
ast til þessa.“
Siggi grætur ekki hrun kapítal-
ismans. „Ég tók aldrei þátt í góð-
ærinu og tek því ekki þátt í
kreppunni. Nú er gott að vera
hjúkrunarfræðingur. Margir þeir
sem eru að missa vinnuna voru
hvort sem er ekki að gera neitt,
bara að velta tölum til og frá. Nú
eru Pólverjarnir að fara svo þar
losna störf. Það vantar alltaf fólk
í fiskvinnslu og á hjúkrunarheim-
ilin. Ég myndi segja að við lifum á
spennandi tímum og ég held að
fólki væri hollt að tala við gamla
fólkið. Það upplifði kreppur og
heimsstyrjöld og kann á þetta.“
- drg
Við lifum á spennandi tímum
BARA GRUNDVALLAR EÐLISFRÆÐI
Siggi rífur sig úr bankabolnum í pönk-
æsingi.
Hljómsveitin Amiina á lag á nýrri
plötu Disney-fyrirtækisins með
endurgerðri tónlist úr brúðumynd-
inni The Nightmare Before Christ-
mas. Á meðal þeirra sem eru í
félagsskap með Amiinu á plötunni
eru rokksveitirnar heimsfrægu
Korn og Marilyn Manson.
Platan nefnist Nightmare Revis-
ited og var gefin út í tilefni af
fimmtán ára afmæli myndarinnar,
sem Tim Burton leikstýrði. Danny
Elfman, sem samdi tónlistina í
myndinni, hélt um taumana við gerð
plötunnar. „Það var mjög gaman að
fá þetta verkefni í hendurnar. A
Nightmare Before Christmas er
auðvitað stórskemmtileg mynd og
við höfum gaman af því að vinna út
frá svona ævintýraheimum,“ segir
Sólrún Sumarliðadóttir úr Amiinu.
„Svo er reyndar skondið frá því að
segja að við höfum oftar en einu
sinni fengið þá athugasemd að tón-
listin okkar gæti vel átt heima í Tim
Burton-mynd,“ segir hún.
Í góðum félagsskap
AMIINA Hljómsveitin Amiina á lag á
nýrri plötu með endurgerðri tónlist úr
brúðumyndinni The Nightmare Before
Christmas.
> BANNAÐ AÐ NOTA LAG
Bandaríska rokksveitin Foo Fighters
hefur bannað John McCain, forseta-
frambjóðanda repúblikana, að nota
lag þeirra My Hero í kosningabar-
áttu sinni. Segja þeir að lagið hafi
verið notað án samþykkis hljóm-
sveitarinnar og þessi misnotkun
McCains hreinlega eyðileggi lagið.
Bjartmar Þórðarson fær
góða dóma fyrir fyrsta
leikstjórnarverkefni sitt í
London.
„Við erum voðalega sáttir við
þetta. Það er frekar óvenjulegt
að sýning sem gengur aðeins í
tvær vikur fái gagnrýnanda inn
frá Timeout, svo það sem slíkt er
mikils virði,“ segir Bjartmar
Þórðarson um dóma á verkunum
Monster í leikstjórn Ryland Alex-
ander og Mr. Kolpert sem hann
leikstýrir sjálfur í Greenwich
Playhouse í London. Mr. Kolpert
er frumraun Bjartmars í leik-
stjórn, en hann er nú að ljúka
meistaranámi í leikstjórn frá
Rose Bruiford-leiklistarskólan-
um.
„Það er mikill sigur fyrir okkur
að fá fjórar stjörnur af sex, sér-
staklega þegar sýning er sett upp
af miklum vanefnum með um
100.000 krónur til umráða. Þá
þarf maður að treysta á snilli
leikaranna og ég er rosalega
ánægður með þá. Fjórar stjörnur
af sex þýðir yfirleitt að sýning-
arnar fara í „recommended“-
flokk með sýningum sem Time out
mælir með. Fimm af sex þýðir
„critic‘s choice“, eða sýning sem
gagnrýnandi heldur upp á, og svo
fá engar sýningar sex stjörnur,“
útskýrir Bjartmar.
Auk góðra dóma á vefsíðu
Timeout hlaut sýning Bjartmars
mikið lof á vefsíðu The British
Theatre Guide, þar sem gagnrýn-
andinn sagði Mr. Kolpert vera
eina fyndnustu sýningu sem hann
hefur séð. „Dómur þeirra er í
raun enn þá jákvæðari, en
Time out er þekktara svo við
erum stoltari af þeirra dómi. Þótt
það sjái kannski ekki allir sýn-
inguna er maður alla vega með
eitthvað á pappírum um að þetta
hafi verið skemmtilegt og vel
útfært. Síðasta sýningin er á
sunnudag svo allir sem ætla að
skella sér í helgarferð í kreppunni
ættu að kíkja á hana,“ segir Bjart-
mar að lokum og hlær.
alma@frettabladid.is
Fékk fjórar stjörnur í Timeout
ÁNÆGÐUR MEÐ DÓMINN Bjartmar segir óvenjulegt að sýningar sem ganga aðeins í
tvær vikur fái gagnrýni frá Timeout og er að vonum ánægður með fjórar stjörnur af
sex.
Útflutningsráð íslenskrar tónlist-
ar, ÚTÓN, segir að tónlistarráð-
stefnunni You Are In Control verði
ekki aflýst þrátt fyrir orð róm þess
efnis vegna neikvæðra frétta um
Ísland í Bretlandi.
Ráðstefnan verður því haldin á
Hótel Sögu 15. og 16. október eins
og áætlað hafði verið. „Núna er
rétti tíminn til að horfa fram á
veginn og einbeita sér að því
jákvæða sem Ísland hefur upp á
að bjóða í hinu alþjóðlega samfé-
lagi,“ segir Anna Hildur Hildi-
brandsdóttir hjá ÚTÓN í yfirlýs-
ingu sinni.
Ráðstefnu ekki aflýst
ANNA HILDUR HILDIBRANDSDÓTTIR
Anna Hildur segir að nú sé rétti tíminn
til að horfa fram á veginn.